Vikan - 05.02.1959, Blaðsíða 22
Smellin smásaga eftir DOIM EAGLE
♦ i
r V
litntur
:*~tRÆC
'X1 að 1
3GUR sálfræðingur hefur haldið þvi fram
þegar tveir menn hafi lifað saman í tölu-
verðan tíma, dragi þeir svo dám hvor að
öðrum að þeir hugsi næstum því eins. Ég vona að
ég hafi ekki orðið fyrir þessu.
Þetta hófst allt með því að ég lá i rúmi mlnu
morgun einn og reyndi að festa ofurlítinn blund
í viðbót við nætursvefninn. Ida eiginkonan mín,
var eitthvað að bardúsa i íbúðinni og hafði meiri
hávaða I frammi en nauðsynlegt var. Rétt þegar
mér var að renna i brjóst, heyrði ég fótatak henn-
ar nálgast.
„Karl Haralds," sagði hún, „þú ert hættur að
elska mig. Ég verð fljótt vör við slíkt. . .“
; Það umlaði eitthvað í mér.
„Þú ert ekki búinn að ráða þér nýjan einkarit-
ara, er það?“
Ida var lævísleg á svip þegar hún lagði þessa
.'ipurningu fyrir mig og tyllti sér á rúmstokkinn.
1 „Neeeeeei," svaraði ég. Það gat varla átt sér
stað að hún hefði áhyggjur út af einkaritaranum,
sem hjá mér var um þessar mundir, Margrét
Hattfeld. Hún var engin manneskja til að setja
mann út af laginu en þó hafði það dregist um
tvo tíma að ég kæmi mér heim fyrsta daginn sem
hún vann hjá mér.
„Ef þú eft orðinn þreyttur á mér, þá skaltu
ekki hika við að segja mér það,“ sagði Ida með
dapurlegum hreim í röddinni.
„Neeeei, neeeeeei," umlaði í mér hálfsofandi um
leið og ég dró særtgina upp fyrir haus.
„Allir karlmenn eru ruddar," sagði Ida, „þeir
fara að missa áhugann um leið og eiginkonurnar
missa minnsta vott af æskuljóma sínum."
Ég fann að Ida reis upp af rúminu og þorði að
veðja að hún fór að skoða sig í speglinum.
„Þeir segja að rómanska kynið láti fyrr á sjá,"
sagði Ida sorgmædd á svip, „konurnar verða
feitar og: Ijótar á einni nóttu."
Það vildi svo til að einhver ættingi Idu, sem
flæktist um öll heimsins höf, tók sér spánska
stúlku að eiginkonu og þess vegna reyndi Ida oft
að ímynda sér að hún væri alls ekki af írskum
uppruna.
„Svona er mannlífið, Ida,“ sagði ég í heim-
spekilegum huggunartón og reis upp við dogg,
„allt er í heiminum hverfult."
Ég bar koddann fyrir mig sem skjöld þegar
hún otaði að mér hárbursta að vopni.
„Ég — ég hata þig, Karl Haralds," öskraði Ida
og reif i sítt svart hár sitt. „Þú þarft ekki að
vera hissa þó ég verði á bak og burt, þegar þú
kemur heim í kvöld. Og þú getur sjálfur mallað
morgunmatinn oní þig.“
Ida brast í grát og hljóp á brott, ég heyrði að
hún læsti sig inni á baðherberginu.
Þegar ég hafði hvolft í mig nokkrum bollum
af korguðu kaffi og hámað í mig tvær kolbrennd-
ar brauðsneiðar, fór ég á lögfræðiskrifstofu Karls
Haralds, en þar er ég, forseti. Ég gaf mig allan
að póstinum. Ég ásetti að kaupa einhverja dýr-
mæta gjöf til að gefa Idu í kvöld.
Það gerðist fátt markvert um morguninn. Rétt
eftir matinn kemur Margrét inn á skrifstofuna
og segir mér að einhver frú Cortez vilji endilega
hafa tal af mér; það sé mjög áríðandi.
„Vísaðu konunni inn,“ sagði ég.
Úm leið og Margrét opnaði dyrnar, sveif inn í
skrifstofu mína kvenmaður einn með hrafnsvart
hár svo sló á það bláleitri slikju, hún gekk að
borðinu mínu með voldugu mjaðmaskaki.
„Buenos Noches, Senorita Cortez," sagði ég óg
heilsaði henni á minni beztu spönsku. Þefurinn
af ilmvatninu, sem hún notaði, var svo þungur að
ég var næst um viss um að það kæmi beint úr
hvalnum.
„Buenos Dias,“ sagði konan hásri röddu. „Ég
virti fyrir mér ávalar mjaðmir hennar um leið
og hún bjóst til að fá sér sæti. Mér fannst ég
einhvern veginn kannast við hreyfingarnar, ég
reyndi að koma henni fyrir mig en tókst ekki að
grufla það upp. Hún hafði slör fyrir andlitinu og
þar undir grillti ekki í neitt nema þykkan varalit,
púður og allskyns andlitsfarða.
„Hvað get ég gert fyrir yður senorita?" spurði
ég-
„Verið svo vænir að kalla mig Estrellitu,"
sagði hún, „ég er að vona að okkur komi vel
saman í þessu máli og við skulum bara vera
dálítið kammó."
Lágur rómur hennar hljómaði svo kunnuglega
að ég þóttist sannfærður um að hafa heyrt í
henni fyrr.
Allt í einu rann upp fyrir mér ljós. Ég mtnntist
samskiptanna við Idu nokkrum klukkustundum
áður og gerði mér nú grein fyrir því hversvegna
mér virtust þessar hreyfingar og fas gamalkunn-
ugt. Það er deginum ljósara að nú á að koma
upp um mig sem ótrúan eiginmann, leiða mig í
22
VIKAN