Vikan - 05.02.1959, Síða 24
TÍU GODAR REGLUR
FYRIR OVANAR
1. Notið alltaf (ef mögulegt er)
þá tegund af garni sem gefin er
upp í uppskriftinni.
2. Kaupið allt garn í einu sem þarf
að nota í flíkina og aðgætið að
sama litanúmer sé á öllum
hespunum.
3. Vindið garnið laust upp. Það er
gott ráð að vinda það upp á
bréfmiðana sem litarnúmerið er
á svo hægt sé að fá aftur sömu
gerð og sama lit ef maður þarf
á meiru að halda.
4. Prjónið smá sýnishorn 20 lykkj-
ur á breidd og sem svarar 20
prjónum á lengd, með þeim
prjónum sem i uppskriftinni
stendur. Þá er hægt að sjá hvort
maður prjónar of fast eða of
laust, eða þörf er á grófari eða
finni prjónum.
PRJONAKONUR
5. Ef erfitt verður að fá venjulegt
slétt prjón til að líta eins eða
jafnt út þá verður að nota fínni
prjón við þann sem er brugðinn.
6. Ef það sem maður er að prjóna
er látið liggja óhreyft í lengri
tíma, jafnvel þótt ekki sé nema
um nokkra daga að ræða, verður
annaðhvort að taka prjónana úr
áður en prjónið er lagt til hliðar,
eða prjóna síðasta prjóninn upp
að nýju áður en haldið er áfram.
7. Vefjið einhverju utan um flíkina
sem verið er að prjóna til þess
að hún óhreinkist ekki né vol-
ist meðan á verkinu stendur.
8. Ef verið er að prjóna útprjón
er nauðsynlegt að merkja við
þann prjón í uppskriftinni sem
hætt er áður en flíkin er lögð
til hliðar.
9. Þegar aukið er við eða tekið
úr, er ágætt að láta garnspotta
liggja með til að sýna hverja
úrtöku og nota þá garn í öðrum
lit, ef úrtökur eru margar.
10. Verið ósparar á títuprjónana
þegar flíkin er breidd út og
pressuð varlega. 2 cm. bil er
gott. Pressið líka saumana þeg-
ar búið er að sauma saman flík-
ina.
1 síðasta tbl. Vikunnar var sýnd
mynd af peysu og hlýrapilsi. Upp-
skrift var gefin af pilsinu en nú kem-
ur uppskriftin af peysunni.
PEYSAN
Fitjið upp með hvítu garni 92
lykkjur á prjón nr. 2 Vz og prjónið
4 V2 cm. breiða fit. (1 sl og 1 br).
Prjónið síðan sléttprjón. Aukið í eina
lykkju í byrjun og lok 8. hvers prjóns
5 sinnum, því næst á 6. hverjum
prjón. Fitjið upp 2 lykkjur við lok
fjögurra næstu prjóna, 5 1. í lok
næstu 4 prjóna 6 1. við lok næstu 2ja
prjóna (142).
Prjónið 8V2 cm., bætið við 1 lykkju
í byrjun og lok áttunda hvers prjóns
tvisvar (146).
Prjónið 6 prjóna með rauðu garni
og aðra 6 prjóna með hvítu garni.
Haldið því næst áfram með randa-
prjónið 6 p. rautt, 6 p. hvítt, þar til
prjónaðar hafa verið 3 rauðar rendur
og 2 hvítar. Látið 10 miðlykkjurnar
(Hálsmálið) á byrjun annarrar rauðu
randarinnar upp á öryggisnælu og
prjónið hverja öxl fyrir sig.
Fellið af frá miðju hálsmáli tvisv-
ar sinnum 3 lykkjur, tvisvar sinnum
2 lykkjur og eina lykkju. Þegar búið
er að prjóna þriðju rauðu röndina
fitjið þá upp 14 lykkjur að hálsmál-
inu, prjónið þvínæst með hvítu, en
prjónið tvær síðustu lykkjurnar að
hálsinum sléttar á hverjum prjóni
þegar búið er að prjóna eins marga
prjóna eftir þriðju rauðu röndina á
bakinu eins og frá síðustu útaukn-
ingu á ermi framstykkisins. Upp að
þriðju rauðu rönd eru teknar 2 lykkj-
ur saman á 8. hverjum prjóni tvisvar
sinnum við ermina. Haldið áfram
þar til þér hafið prjónað 8 prjóna
frá síðustu ítöku. Fellið af 5 lykkj-
ur við ermina. Endið við Erma-saum-
inn.
Látið lykkjurnar á öryggisnál, þar
til búið er að prjóna öðru megin.
Takið allar lykkjurnar upp á einn
prjón og prjónið bakið samsvarandi
framstykkinu með affellingu og úr-
töku við erma- og hliðarsauma og
síðast fitina að neðan.
24
VIKAN