Vikan - 12.02.1959, Side 22
Hl I S T I B
JANA kipptist við þegai' hún sá hann sitja
í rökkrinu úti á gangi fyrir framan her-
bergisdyrnar hjá henni. Hann sat á ferða-
pokanum sínum og var ósköp þreytulegur að
sjá, drúpti höfði og einkennisbúningurinn hans
var farinn að láta á sjá. Eitt andartak laust því
í huga hennar þegar hún sá hann sitja þarna
að þetta væri Davíð Cotter, hélt að eitthvert
kraftaverk hefði fært hann heim til hennar; en
köld rödd skynseminnar sagði henni að Davíð
Cotter mundi aldrei koma aftur.
Og þessi maður — hann reis fimlega á fætur
þegar hún opnaði — var hávaxnari en Davíð,
dekkri á brún og brá og eldri að árum og það
var ekki þessi æskuljómi í augunum. En ef til
vill hafði æskuljóminn í augum Daviðs einnig
slokknað áður en dauðinn sótti hann.
„Ungfrú Pellev?" Röddin var hljómfögur og
þýð og brosið undarlega hlýlegt.
„Jú, ég er Jana Pellev. Ég býst við að þú sért
— sért vinur Davíðs.“
Hann kinkaði kolli: „Og þar að auki bezti
vinur hans. Ég heiti Tim Ryden. Ég er nýkom-
inn heim. Ég — ég þekki engan hérna og þar
að auki hafði ég oft lofað Davíð að líta inn til
þín ef ég nokkru sinni kæmi til stórborgarinnar.
Og nú er ég kominn, — heldur þreyttur og út-
-slitinn eftir stríðið. Mig langaði að sjá stúlkuna
sem Davíð elskaði svo mjög.“
Þau horfðust í augu drykklanga stund.
„Mér sýndist það vera Davíð sem sat þarna,“
sagði hún seinlega, „ég hrökk við.“
„Þú elskaðir hann afar mikið."
„Já, afar mikið.“
„Hann dýrkaði þig. Hann hafði með sér mynd
af þér hvert sem hann fór. Hann gaf upp and-
ann með þetta í höndunum. Ég hélt kannski þú
mundir vilja fá það.“
Jana horfði á litla gyllta nistið sem hann rétti
henni. Hún tók ósjálfrátt við því og grannir
fingur hennar lokuðust um það.
„Má ég ekki bjóða þér inn, hr. Ryden.“ Hún
leitaði að lyklinum og opnaði dyrnar. „Ég get
fundið eitthvað snarl handa þér — og þú getur
sagt mér frá Davíð . . .“
Hann gekk inn í íbúðina á eftir Jönu, stór og
hrikalegur líkami hans stakk í stúf við lítil og
fínleg húsgögnin sem Jana hafði orðið sér út um
meðan hún vann við forngripaverzlun. Hún
benti honum á að setjast í bezta þægindastól-
inn eftir að hún hafði kveikt ljósin og settist
sjálf í eftirlætisstól sinn við gluggann.
„Þú ert ennþá fallegri að sjá en á myndinni
sem Davíð hafði með sér af þér,“ ég er með
hana einhversstaðar í fórum mínum. Ég skal
finna hana handa þér á eftir . .
„Það er fallegt af þér. Þá skiptir það engu
máli úr því sem komiö er.“
„Nei, ég býst við að nistið nægi,“ sagði hann,
„þú munt alltaf hafa mikið dálæti á þvi. Hann
gætti þess alltaf vandlega. Hann skildi það
aldrei við sig. Ef til vill hefði átt að grafa
það með honum.“
„Það hefði átt að gera það,“ svaraði Jana, „já
ég held að það hefði átt að vera betra."
HÚn handlék nistið og lét það síðan frá sér
á lítið borð. Svo reis hún á fætur.
„Ég ætla að finna eitthvað handa okkur að
borða,“ sagði hún, „en ef þú ert eitthvað líkur
Davíð, þá finnurðu það sem þig vantar í litla
skápnum við hlið þér. Ismolarnir eru í ísskápnum
frammi í eldhúsi."
„Sjáðu nú til. Það er ekki réttlátt af mér að
vaða svona inn á þig án fyrirvara. Eigum við
ekki heldur að fara út að borða?“
Hún hristi höfuðið.
„Það er miklu skemmtilegra svona. Ég hef
verið heldur einmana upp á síðkastið hér. Það
er gaman að matreiða fyrir karlmenn. Davíð
var sá síðasti."
Hún flýtti sér fram í eldhús og von bráðar
barst ilmur af lambasteik og kaffi um allt her-
bergið. Hann gekk fram í dyrnar og virti hana
fyrlr sér þögull nokkra hríð.
Hún brosti til hans, fölt andlitið eldroðnaði,
rautt hrokkið hárið myndaði fallega umgerð um
snoturt andlitið. Hún hafði græna svuntu bundna
framan á sig og hún var ung og grönn og yndis-
ieg.
„Ert þú alkominn heim?“
„Já, ég er laus úr herþjónustunni. Ég er á
heimleið. “
„Hvar áttu heima?“
„Montana. Þar á ég lítinn búgarð."
„Og ég þori að veðja að þú ert með mynd af
einhverri í vasanum."
„Nei.“ sagði hann og hristi höfuðið hægt. „Ég
hef ráðskonu og nokkra kaupamenn. Ég hef
aldrei verið mikið upp á kvenhöndina . . .“
„Kaldrani?“ spurði Jana og hvessti á hann
augun, „svo þú trúir ekki á ástina, hina eilífu
ódauðlegu ást?“
„Gerir þú það?“
Hún svaraði ekki. Hún flýtti sér að setja mat-
inn á borðið og settist hjá honum í skini af kerta-
ljósi. Þeim leið notalega í hálfrökkrinu og jafn-
vel þótt þau fyndu bæði til nærveru Davíðs
Cotters fannst þeim það ekki ónotalegt.
Þegar búið var að borða og þau höfðu lagt
diskana til hliðar, kveikti Jana eld í litla arninum
og þau fengu sér sæti og röbbuðu saman um
Davíð.
Það var þó öllu frekar Tim sem hafði orðið,
hann sagði frá ævintýrum, sem þeir höfðu rat-
að í og sagði frá því hvað Davíð hafði reynst
honum góður félagi. Jana hlustaði og augna-
ráð hennar var svo fjarrænt að Tim efaðist
um að hún heyrði helminginn af þvi sem hann
sagði.
• •
Orstutt smásaga
eftir
Louis Arthur Cunningham
Loks var kominn tími fyrir hann að fara.
Þau stóðu andspænis hvort öðru við bjarma
eldsins og Jana færði sig þétt upp að homun,
horfði á hann með dularfullri eftirvæntingu í
svipnum. Hún var næstum því áköf.
Tim var ráðleysilegur á svip, feiminn næstum
hræddur, hann rétti út sterklega handleggi sína
og faðmaði hana að sér, þrýsti henni að sér af
öllu afli, í fyrstu voru kossar hans léttir og gæl-
andi én brátt brarm eldur á vörum þeirra.
Þau náðu ekki andanum þegar þau losuðu
loksins faðmlögin og færðu sig fjær hvort öðru.
„Eilíf ást og ódauðleg," sagði hann bitur í
bragði, „þú sérð hvernig það er. Og ég sem
á að vera trúr bezta vini mínum. Þú hefur strax
gleymt unnusta þínum. Þú vildir — vildir þetta?“
„Já,“ hvislaði hún, „ég vildi það. Þetta var
unaðslegt.“
Hún gekk að borðinu, tók nistið og rétti hon-
um það.
Hann sló reiðilega á hönd hennar svo nistið
hrökk á gólfið og opnaðist. Tim beygði sig niður
og tók það upp.
„Þér tókst þó að opna það,“ sagði hann, „það
gat ég aldrei."
Hann leit á myndina og greip andann á lofti.
„Hva-hvað er þetta? Myndin er ekki af þér,
Jana. Þetta — “
„Nei, Tim. Og ég á ekkert í nistinu heldur.
Mig grunaði alltaf að það væri einhver önnur en
ég trúi þó ennþá á hlna eilífu ódauðlegu ást —“
Hann leit á hana og gekk síðan til hennar
og var ekki lengur þreyttur og vonsvikinn stríðs-
maður.
22
VIKAN