Vikan


Vikan - 12.03.1959, Blaðsíða 25

Vikan - 12.03.1959, Blaðsíða 25
BÆRNÆ GAMAN Strákurinn hér á myndinni heitir Bjarni. Honum þyldr afskaplega gaman að gera að gamni sínu. Nú er hann ein- mitt að glettast við vin sinn. I>ið sjáið fætur hans á myud- inni. Ef ykkur langar til að vita, hvað hann er að gera, skulið þið draga línur eins og hér segir. Byrjið á A-2 og dragið til 1-18. Dragið frá H-18 til H-16, Frá G-18 tíl 0-2, M-l, H-l. — Dragið frá C-6, ttl D-7, E-6, F-7, G-6, H-7, 1-6, J-7, K-6, L-7, M-6. — Dragið frá F-12 tU G-ll, H-12, 1-11, J-12. — Dragið frá E-10 tíl J-10. Frá E-9 tili J-9. — Dragið frá P-8 tíl L-ll. — Dragið línur G-6 til E-3 nokkurn veginn og G-6 til H-4 nokkurn veginn. — Bætið við línu A-2 til D-2. GOÐUR DRENGUR „Hverju hefir þú nú fundið upp á? Prú Mejer kom til mín og klagaði þig, Hún sagði, að þú hefðir barið Róbert son sinn til óbóta, hann væri allur blár og marinn eftir þig.“ Hjálmar stokkroðnaði. En það var ekki vegna þess, að hann kviði fyrir hegningunni. Hann óttaðist, að móðir sín vildi fá að vita, hvers vegna hann hefði barið Róbert. En það vildi hann ekki tala um, þá var betra að þola refsingu þegj- andi. ,,Nú, komdu með það, dreng- ur. Hvernig stóð á þessu?“ „Við lentum í rifrildi út af dálitlu, og svo tók ég hann og hristi hann duglega." „Já, einmitt það. Maður skammast sín fyrir að eiga svona áflogasegg eins og þig fyrir son. Ég var búinn að lofa því að fara með þér út að róa á sunnudaginn kemur. En nú verður ekkert úr þvi, skilurðu það.“ Hjálmar skildi. Hann langaði eiginlega mest að fara að skæla. Hann hafði hlakkað svo til að fá að koma út á sjóinn. En það var bezt að bíta á jaxlinn og bera harm sinn í hljóði. Hann hafði vissulega enga refsingu átt skilið í þetta sinn. Hann hafði ekki ráðist á Róbert af neinni áflogalöngun. Nei, og aftur nei! Róbert átti sannarlega fyrir því, að tekið væri í lurginn á honum. Hann hafði gert gys að móður Hjálm- ars í áheyrn félaganna. Hún var svo lotin og bogin í bakinu, og hann hafði hæðst að því. Sjáið þið, drengir, hvernig hún vaggar áfram. Svo hafði hann beygt sig í keng og reynt að herma eftir henni. En lengi fékk hann ekki næði til þess, þvi að þá réðist Hjálmar á hann með reiddum hnefum og hristi hann og barði. „Það er ekki nema rétt á hann,“ sagði þá Valgeir félagi Hjálmars og margir höfðu kink- að kolli þegjandi framan í Hjálmar, en sumir sögðu „alveg rétt“ í hálfum hljóðum. „Ef þú vogar að gera gys að henni mömmu minni aftur, þá skal ég berja þig til óbóta.“ Róbert var engin hetja. Hann flýtti sér heim til þess að sýna marblettina. En hann minntist ekki með einu orði á, hvers vegna Hjálmar hefði barið hann. Og Hjálmar var neyddur til að þegja líka. Hann var viss um, að það mundi særa móður hans svo djúpt, ef hún fengi að vita ástæðuna. Móðir Hjálmars hafði snemma orðið ekkja. Og ekk- ert átti hún til nema drenginn sinn. Þá hafði hún fengið vinnu við að staga fyrir verksmiðju eina, þar í grendinni. Dag eftir dag, viku eftir viku og ár eftir ár hafði hún gengið hálfbogin með byrði sína af fatnaði þeim, er hún hafði lokið við að staga, til verksmiðjunnar. Nú var hún orðin lúin og lotin í herðum af þessu sífellda striti. Og svo gerði þessi ungi sláni, sem aldrei hafði gert ærlegt hand- artak á æfi sinni, gys að henni fyrir það. „En fátt er svo með öllu ilt, að ekki boði nokkuð gott.“ Aug- un á Hjálmari opnuðust, og hann skildi móður sína betur og veitti henni nákvæmari eftir- tekt eftir þetta. Hún hafði alltaf unnið verk sín, án þess að kvarta, og þess vegna hafði Hjálmar ekki hugs- að út í, hve erfitt hún átti, og hve þreytuleg hún var orðin. Nú stalst hann til að horfa á hana, svo að hún vissi ekki. Og hann sá, að augu hennar voru stund- um rauð og þrútin og hún var dauðþreytt. Að hann skyldi Framh. I nœsta blatli. Sigga, sem myndin er af neðst til hægri, hefur boðizt tíl þess að fylgja þromur vinkonum sinum heim tíl bekkjasystur þeirra, sem á afmæli í dag, en þær eru allar boðnar til hennar og ætla að gefa henni eitthvað fallegt í afmælisgjöf eins og þú sérð. Getur þú nú fundlð leiðina, sem Sigga fer, þegar hún sækir þær? Hún fer í röð 1, 2, 3 og fer með þær til hússins efst til hægri, merkt 4. VIKAN 25

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.