Vikan - 12.03.1959, Page 25
BÆRNÆ GAMAN
Strákurinn hér á myndinni heitir Bjarni. Honum þyldr
afskaplega gaman að gera að gamni sínu. Nú er hann ein-
mitt að glettast við vin sinn. I>ið sjáið fætur hans á myud-
inni. Ef ykkur langar til að vita, hvað hann er að gera,
skulið þið draga línur eins og hér segir.
Byrjið á A-2 og dragið til 1-18. Dragið frá H-18 til H-16,
Frá G-18 tíl 0-2, M-l, H-l. — Dragið frá C-6, ttl D-7, E-6,
F-7, G-6, H-7, 1-6, J-7, K-6, L-7, M-6. — Dragið frá F-12 tU
G-ll, H-12, 1-11, J-12. — Dragið frá E-10 tíl J-10. Frá E-9
tili J-9. — Dragið frá P-8 tíl L-ll. — Dragið línur G-6 til E-3
nokkurn veginn og G-6 til H-4 nokkurn veginn. — Bætið
við línu A-2 til D-2.
GOÐUR DRENGUR
„Hverju hefir þú nú fundið
upp á? Prú Mejer kom til mín
og klagaði þig, Hún sagði, að
þú hefðir barið Róbert son sinn
til óbóta, hann væri allur blár
og marinn eftir þig.“
Hjálmar stokkroðnaði. En
það var ekki vegna þess, að
hann kviði fyrir hegningunni.
Hann óttaðist, að móðir sín
vildi fá að vita, hvers vegna
hann hefði barið Róbert. En
það vildi hann ekki tala um, þá
var betra að þola refsingu þegj-
andi.
,,Nú, komdu með það, dreng-
ur. Hvernig stóð á þessu?“
„Við lentum í rifrildi út af
dálitlu, og svo tók ég hann og
hristi hann duglega."
„Já, einmitt það. Maður
skammast sín fyrir að eiga
svona áflogasegg eins og þig
fyrir son. Ég var búinn að lofa
því að fara með þér út að róa
á sunnudaginn kemur. En nú
verður ekkert úr þvi, skilurðu
það.“
Hjálmar skildi. Hann langaði
eiginlega mest að fara að skæla.
Hann hafði hlakkað svo til að
fá að koma út á sjóinn. En það
var bezt að bíta á jaxlinn og
bera harm sinn í hljóði. Hann
hafði vissulega enga refsingu
átt skilið í þetta sinn. Hann
hafði ekki ráðist á Róbert af
neinni áflogalöngun.
Nei, og aftur nei! Róbert átti
sannarlega fyrir því, að tekið
væri í lurginn á honum. Hann
hafði gert gys að móður Hjálm-
ars í áheyrn félaganna.
Hún var svo lotin og bogin í
bakinu, og hann hafði hæðst að
því.
Sjáið þið, drengir, hvernig
hún vaggar áfram. Svo hafði
hann beygt sig í keng og reynt
að herma eftir henni. En lengi
fékk hann ekki næði til þess,
þvi að þá réðist Hjálmar á hann
með reiddum hnefum og hristi
hann og barði.
„Það er ekki nema rétt á
hann,“ sagði þá Valgeir félagi
Hjálmars og margir höfðu kink-
að kolli þegjandi framan í
Hjálmar, en sumir sögðu „alveg
rétt“ í hálfum hljóðum.
„Ef þú vogar að gera gys að
henni mömmu minni aftur, þá
skal ég berja þig til óbóta.“
Róbert var engin hetja. Hann
flýtti sér heim til þess að sýna
marblettina. En hann minntist
ekki með einu orði á, hvers
vegna Hjálmar hefði barið hann.
Og Hjálmar var neyddur til að
þegja líka. Hann var viss um,
að það mundi særa móður hans
svo djúpt, ef hún fengi að vita
ástæðuna.
Móðir Hjálmars hafði
snemma orðið ekkja. Og ekk-
ert átti hún til nema drenginn
sinn. Þá hafði hún fengið vinnu
við að staga fyrir verksmiðju
eina, þar í grendinni. Dag eftir
dag, viku eftir viku og ár eftir
ár hafði hún gengið hálfbogin
með byrði sína af fatnaði þeim,
er hún hafði lokið við að staga,
til verksmiðjunnar. Nú var hún
orðin lúin og lotin í herðum af
þessu sífellda striti. Og svo
gerði þessi ungi sláni, sem
aldrei hafði gert ærlegt hand-
artak á æfi sinni, gys að henni
fyrir það.
„En fátt er svo með öllu ilt,
að ekki boði nokkuð gott.“ Aug-
un á Hjálmari opnuðust, og
hann skildi móður sína betur og
veitti henni nákvæmari eftir-
tekt eftir þetta.
Hún hafði alltaf unnið verk
sín, án þess að kvarta, og þess
vegna hafði Hjálmar ekki hugs-
að út í, hve erfitt hún átti, og
hve þreytuleg hún var orðin. Nú
stalst hann til að horfa á hana,
svo að hún vissi ekki. Og hann
sá, að augu hennar voru stund-
um rauð og þrútin og hún var
dauðþreytt. Að hann skyldi
Framh. I nœsta blatli.
Sigga, sem myndin er af neðst til hægri, hefur boðizt tíl þess að fylgja
þromur vinkonum sinum heim tíl bekkjasystur þeirra, sem á afmæli í dag,
en þær eru allar boðnar til hennar og ætla að gefa henni eitthvað fallegt
í afmælisgjöf eins og þú sérð. Getur þú nú fundlð leiðina, sem Sigga fer,
þegar hún sækir þær? Hún fer í röð 1, 2, 3 og fer með þær til hússins efst
til hægri, merkt 4.
VIKAN
25