Vikan


Vikan - 16.04.1959, Blaðsíða 14

Vikan - 16.04.1959, Blaðsíða 14
Callas og maður hennar. minjar frá sögu og lífi Vilhjálms Keisaradrottningin lézt í Doom 1921 en var jarðsett i Potssam. Hálfu 1921 en var jarðsett í Potsdam. Hálfu ingarinnar kvæntist Vilhjálmur öðru sinni, hinni ungu prinsessu Herminu af Reuss. 1 fyrra hjónabandi sínu eignaðist Vilhjálmur 7 böm, 6 syni og eina dóttur, og er hún ein á lífi af börnum keisarans. Sjálfsagt verður Vilhjálmi II. og æfistarfi hans gerð gleggri og rétt- látari skil í fram'tíðinni en verið hefur gert hingað til. Það sannaðist á honum, sem ætíð vill verða, að sekur er sá einn sem tapar. 100 ár liðin frá fæðingu Vilhjálms II. síðasta keisara Þýzkalands. — Svipmyndir úr lífi hans. Hún býr yfir þvílíkum skapofsa, að hvert meðalkvenskass myndi dauðskammast sín, hún er grimm og óhlífin — en hún kann að syngja, Það hefur verið sagt, að skap- ofsi hennar stafi af engu öðru en minnimáttarkennd. Það eru til ótal sögur af Mariu, flestar reyndar upp- spuni — til dæmis er hún oft sögð hafa látið reka söngvara, sem héldu nótu lengur en hún. Sagan af deilum hennar og móður hennar er samt engin þjóðsaga. Móð- ir Mariu var mjög tónelsk og ól dóttur stna upp samkvæmt því. Og Maria kallaði móður sína drottningu og sagðist mundu láta reisa henni styttu, áður en hún létist. Árið 1951, þegar móðir Mariu bjó 1 Grikklandi, skrifaði hún dóttur sinni og bað hana um peninga fyrir daglegu brauði! Og söngkonan skrif- aði um hæl: „Þú átt ekki að leita á náðir okk- Ég varð að vinna fyrir pening- unum minum, og þú ert nógu ung til að vinna. Ef þú getur ekki unn- ið þér inn nóga peninga fyrir dag- legu brauði, geturðu stokkið út um gluggann eða drekkt þér.“ Síðan hélt móðir Mariu til Banda- rlkjanna. Þar neitaði dóttir hennar að tala við hana, svo að veslings mamma varð að vinna sem af- greiðslustúlka I búð. Hún hefur ný- lokið við að skrifa bók um sig sjálfa ÞETTA og dóttur sína — sem allir munu hafa gaman af — nema Maria. Það er sagt, að Maria Callas sé fjölhæf. Hún er sögð tala sex mál — og bölvar hressilega á þeim öll- um. Mariu virðist alltaf hafa dreymt um að verða mesta söngkona heims. Þegar gagnrýnendur tóku Renata Tebaldi fram yfír Mariu, sagði hún gröm, að munurinn á þeim tveimur væri eins og á kampavíni og Coca cola. Gagnrýnendur voru sammála en settu kampavínsmiðann á Tebaldi. En Callas er söngkona, því verð- ur ekki á móti mælt, og hún hefur náð frama sínum af einskærri vilja- festu og þrautseigju. Og Maria Call- as gerir allt til þess að vekja at- hygli. Systir Mariu var fallegri og yngri, svo að Maria óttaðist alltaf, að hún yrði eftirlætisbarn foreldra hennar. Móðir hennar sagði, að Maria væri VilhjáJmur II og keisaradrottningin. Vilhjáímur II. hét fullu nafni Frið- tik Vilhjálmur Victor Albert. Hann var barnabarn tveggja voldugra þjóð- höfðingja, Vilhjálms fyrsta og Vict- oríu Englandsdrottningar. Enda þótt skörungsskapur forfeðra hans væri honum í blóð borinn, reyndist hann eklci megnugur þess að standast kröiur þær, sem þjóð hans setti hon- um, og var að lokum talinn eiga sök á heimsstyrjöldinni fyrri. Hann fædd- ist í smiðju jötna, en það kom á daginn, að hann var ekki sá jötunn, ser.i menn höfðu vænst. Það var ekki Viíhjálmur sjálfur, sem skapaði keis- aradæmið, heldur jötuninn, járn- kanslarinn Bismark, sem yfirskyggöi algerlega keisara sjnn. llnarreistur, við hlið eiginkonu sinnar Auguste Viktoria, með blik- andi sverði i hendi, stendur okkur síðasti keisari Þýzkalands fyrir hug- skotssjónum. Hann virtist ákveðinn og einbeittur, en aðeins fáir vita, að þessi harðneskjulegi maður þjáðist alla ævi af minnimáttarkennd; keis- arinn var bæklaður frá fæðingu. Þegar hann sá fyrst dagsins ljós, hinn 20. janúar 1859, skaddaðist vinstri axlaliður hans og lamaði vinstri handlegg. En þessu var haldið leyndu. Samkvæmt þeirri fornu prússnesku reglu, að ekkert sé ó- mögulegt, var sveinninn alinn upp undir ógnandi hendi gamals manns, Hinzpeter að nafni. Æskuár keisar- ans voru honum endalaus þjáning, hann var píndur og hrjáður, og harðneskja móður hans á vart sinn líka. Allt var gert til þess að breiða Faðir hans var glæsilegur maður, en viljalaust verkfæri í höndum konu sinnar. Friðrik III. var konu sinni svo undirgefinn að hún gat látið móður sinni, Englandsdro'ttningu, í té, mikilvæg ríkisleyndarmál. Bis- marck, sem þá var valdamesti maður heimsveldisins, átti ekki annars úr- kosta en bægja Friðrik frá all flest- um rikisleyndarmálum. Reiði kon- ungsins, þessa viijalausa manns, bitnaði þá á syni hans Vilhjálmi, þegar Bismarck fól hinum unga verðandi keisara ríkismáleini í hend- ur. Öfund Friðriks III. bitnaði jaín- vel á Vilhjálmi opinberlega. Og hat- ur foreldranna i garð sonar síns, jóhet með hverju ári. Þegar Friðrik III. lézt, eftir mjög stutt stjómardmabil. var keisara- fáninn í nýju höllinni í Potsdam dreginn í halfa stöng. SamStundis var höllin umkringd hermönnum, sem drifu að úr ölfum áttum. Vil- hjálmur lét handtaka móður sína og leggja hald á öll ríkisskjöl. En Vil- hjiamur var of seinn. Móðir hans hafði smyglað úr landi dagbók manns sins og látið birta hana opinberlega. I henni komu fram mörg bitur orð föðursins í garð sonar síns. Þannig átti móðir Vilhjálms sök á því, að hann mætti andstreymi þegar í upp- hafi hins örðuga ferils síns. Þúsundir manna komu saman á hundraðasta afmælisdegi Vilhjálms til þess að heiðra minningu hans. Menn vita nú, að hann var sárþjáður maður, sem þarfnaðist meðaumkun- ar. Hann var of gáfaður til þess að koma ekki auga á skyssur ráðgjafa sinna, en of vanmenntaður til þess að bæta úr þeim. Hann var alinn upp til þess að reynast starfi sínu og stöðu vaxinn, en því miður gleymdist for- eldrum hans, að hann var ekki verk- færi, heldur bam, sem þarfnaðist ást- ar og umhyggju foreldra sinna. Móðir og sonur. yfir líkamslýti þessa verðandi keis- ara heimsveldisins. Engum flaug í hug, að þetta ómannúðlega uppeidi, kynni að setja mark á sálarlíf þessa þrautseiga barns. Ef til vill hefði öðruvísi farið í veraldarsögunni, ef bamið hefði notið ástúðár móður sinnar og fengið að gráta við barm hennar. En móðir hans hataði hann. Móðir hans var gædd öllum tígu- leik drottningar, en skorti háttvísi. Mynd, eins og þessi hér á síðunni, þar sem hún stendur við hlið sonar síns var til þess tekin að blekkja þjóðina og sýna móðurlega umhyggju þessarar harðbrjósta konu. Móðir hans hafði ætlað sér að gera son sinn að glæsilegum þjóðhöfðingja, dáðan af öllum — og það hefðí henni ef til vill lánast, hefði hún ekki hatað son sinn. Og hatur henn- ar stafaði af því að hún ásakaði son sinn fyrir líkamslýti hans. Þegar Vilhjálmur óx úr grasi, flúði hann móður sína og leitaði á náðir jöt- unsins Bismarcks. Klukkan 4.30 að morgni hins 10. nóvember 1918, rann lest upp að landamærum Hollands og Þýzka- lands. Hálfri stundu síðar fékk lest- in að halda áfram inn í Holland. 1 þessari lest var landflótta keisarinn, Vilhjálmur II., siðasti keisari Þýzka- lands. Hann bjó síðustu æfiárin í Hol- landi. Keypti hann sér litla höll í Doom og sióð undir vernd Hollenzka ríkisins og var almennt talinn mjög vinsæll meðal alls almennings í Hol- landi. Fjarri þjóð sinni — og óvinum — dvaldist svo þessi konunglegi útlagi i ókunnu landi, í samfleytt 23 ár. Höll hans er nú safn sem geymir Landílótta . . . BARNIO SEM MATTI EKKI GRÁTA óskabarnið sitt, en Maria sagði sjálf. að þetta væri haugalygi. Svo fór Maria að borða heldur í meira lagi og brátt óð hún i spik- inu. Auk þess þjáðist hún af mik- illi nærsýni. Faðir hennar og móðir söfnuðu nægilegum peningum til að veita henni tilhlýðilega tónlistariræðslu. Þegar Maria var fimmtán ára, kom hún fyrst fram í óperu, og stóð sig allsæmilega. Þetta steig henni strax til höfuðs, því að hún neitaöi eftir þetta að syngja nema aöalhlutverk- in í óperunni í Aþenu, þar sem hún bjó. 1 stríðinu söng hún lyrir ítalska og þýzka hermenn, en hún var þá ekki þannig vaxin, blessunin, að nokkrum hermanni dytti í hug að stíga í vænginn við hana. Eftir stríðið var hún lá'tin fara frá óperunni í Aþenu, og hún ákvað að hefna sin. Það gerði hún tólf árum síðar, þegar hún söng í sömu óperu fyrir offjár. Siðan hélt hún til New York, þar sem hún dvaldist í tvö ár, en þar neitaði hún að syngja í Metropoli- tan óperunni, vegna þess að hún ótt- aðist að hún yrði hædd vegna of- fitu sinnar. En hún þráði enn að verða heimsfræg söngkona. Rödd hennar var ekki nægileg til þess, en hún var reyndar ekki eina með- alið. Ein leiðin var að eiga svo mikla peninga, að hún gæti neitað boðum frá frægustu óperum heims- ins. Hún giftist margmilljónaranum Giovanni Battista Meneghini, sem var höfðinu lægri og helmingi eldri en hún. Maria Callas veit, hvað sagt er um þetta hjónaband (hún er 35 ára og eiginmaður hennar um sjö- tugt). Iíún segir sjálf, ,,Mér er sama. Ég hef verið góð eiginkona og hann hefur veitt mér mikla ham- ingju. Jafnvel konur, sem giftar eru yngri mönnum, eru ekki cir.s ham- ingjusamar og ég.“ Maður hennar gerðist nú umboðs- maður konu sinnar. Hann gaf henni dýrar gjafir, svo sem fræg málverk, gimsteina, bila og ibúðir. Og Maria er mörgum öðrum kost- i um gædd en röddinni einni. Hún hef- ■ ur mjög gott minni, og getur læri: heilt hlutverk á mjög skömmum j tíma. Hún getur leikið og talað á mörgum tungumálum. Nú þurfti að-1 eins að grenna hana. Skyndilega dró Maria sig í hlé, og þegar hún birtist aftur, hafði hún grennzt um 100 pund. Faðir Mariu! sagði, að þetta hefði verið gert með uppskurði. Henni vegnaði vel í Bandarikjun-, um, en hún var eftir sem áður hörð í horn að 'taka. Hún átti í sífelldum erjum við aðra óperusöngvara. Maria hefur sungið í óperum um allan heim,: og þótt einkennilegt megi virðast, bitnar vanþakkíæti hennar oftast á þeim, sem á einhvern hátt hafa stuölað að frama hennar. Hún hefur ágæta rödd, þótt hún kunni öðru hverju að bregðast. Fyrir nokkrum árum, lé't Maria reka aðal baritonsöngvarann, þegar hún söng falska nótu í „Lucia de Lammer- moor“. Eitt sinn var hún að syngja tvíscng með tenórsöngvaranum Enzo Sordello. Hún náði ekki lokatónin- urn í aríunni, svo að tenórinn tók við af henni. Þessu reiddist Maria svo, að hún neitaði að syngja með hon- um framar. Á yngri árum sínum átti hún i eilifum skærum. 1 Aþenu, árið 1942, var hún beðin um að táka að sér aðalhlutverkið i Tosca með eins dags fyrirvara. Nokkrum mínútum áður en tjaldið var dregið frá, heyrði hún; einn aðalsöngvarann segja, „ég er; viss um, að sú feita hefur það ekki af“. Maria gerði sér líiiö fyrir, rððst á manninn og skrámaði hann allan, auk þess sem hún fékk sjúlf tvö væiv glóðaraugu. Þegar Maria söng í ,,La Traviata"j árið 1958, luku gagnrýnendúr litlú' Framliald á bls. 18. 14 VIKAN VIKAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.