Vikan


Vikan - 16.04.1959, Blaðsíða 19

Vikan - 16.04.1959, Blaðsíða 19
DRYKKIR Allir þekkja, hve vel- komnir slikir drykkir eru eins og ískaldur ávaxta- drykkur á heitum sumar- degi og sjóðandi heitt kaffi á köldum vetrar- morgni. Það eina, sem við krefjumst af þeim, er, að þeir, sem við neytum, verða að gegna þeim skyldum að vera einnig næringarmeðul. Bamið þarf að fá mjólk við hverja máltíð, og sama er að segja um fullorðna. Þeir sem eru lítið fyrir mjólk, te og kaffi örfa ósjálfrátt húsmóðurina til að búa þessa og aðra drykki eins vel úr garði og kostur er. Þá eru ýmsir aðrir drykkir að verða almennur og nauð- synlegur þáttur við hverja máltíð, einkum fyrir þá, sem þurfa að búa við sér- stakt mataræði. Þetta eru alls konar ávaxta- og græn- metissafar. Þá má frám- reiða á mjög marga vegu og blanda þá í ýmsum hlut- föllum. Hér skulu nú gefnar nokkrar uppskriftir af ýms- um ljúffengum drykkjum. Þegar gefið er upp mælt í bollum, er miðað við enskt böllamál — cup —. Eggnog. 2 egg, 1 eða 2 msk. sykur, 2 bollar mjólk, /i tsk. vanilla. Þeytið eggjahvíturnar stífar, en ekki þurrar. Þeytið eggjarauðurnar, bætið í sykri og mjólk og hrærið, þangað til það er blandað, bætið vanillu út í, síðan eggjahvítum. Súkkulaði eggnog: Bætið í 2—3 msk. af súkkulaðisýr- ópi, en sleppið sykri. Avaxta eggnog: Bætið við 2—3 msk. af appelsínu, jarðarberja, hindberja, kirsuberja eða grapesafa. Sherry eggnog: Bætið í 2—3 msk. af sherry, aukið sykurinn eftir smekk. Hafa má þeyttan rjóma i stað hluta mjólkurinnar. Hann er þá þeyttur sérstaklega og settur í með eggjahvít- unum. Sítrónudrykkur. 1 bolli sykur, 1 bolli vatn, börkur af 2 sítrónum, niðurskorlnn, 1 bolli sítrónusafi. Setjið sykur, vatn og sítrónubörk í skaftpott yfir hægan hita og hrærið i, unz sykurinn er uppleystur. Sjóðið í um 7 mín. og kæl- ið. Bætið í sítrónusafa og 4 bollum af vatni. Ef þið viljið fá sætt límonaði, not- ið þá minni sítrónusafa í hlutfalli við sykursýrópið. Kaldur grapedrykkur. /i bolli sykur, 2 bollar vatn, 1 bolli grapesafi, 1 bolli appelsínusafi, |/i bolli sítrónusafi. Búið til sýróp úr sykrin- um og vatninu og látið síð- ar kólna. Bætið ávaxtasaf- anum við. Avaxtadrykkur. 1 eggjahvíta, /} bolli hunang, '/, tsk. salt, 1 boili vatn, 1 /i bolli appelsínusafi, i/j bolll sítrónusafi, 4 bollar fínmalaður ís. Hrærið eggjahvitur, hun- ang og salt í hrærivél, þangað til það er rjóma- gult og mjög stíft. Setjið það siðan í kokteilhristara eða annað álíka ílát með góðu loki. Rétt áður en drykkurinn er framreiddur, er því bætt út í, sem eftir er og hrist rækilega. Saigon kókó. /l bolli kókó, /i bolli sykur, /l bolli vatn, 6 þuml. af negulnagla., 5 bollar mjólk. Blandið saman kókó og sykri í skaptpott, bætið i vatni og hrærið í þangað til það er uppleyst. Bætið kryddinu út í og setjið yfir hægan hita og látið sjóða. Sjóðið í 5 mín. og hrærið stöðugt í. Bætið mjólkinni við og hitið að suðumarki og síið. Súkkulað. 2'/2 únsa súkkulað, suðu i/3 bolli sykur, nokkur saltkorn, /2 bolli sjóðandi vatn, 4 bollar mjólk. Bræðið súkkulaðið við gufu, bætið í sykri og salti og sjóðandi vatni, hrærið í, unz þetta er vel blandað. Setjið pottinn yfir hægan hita, sjóðið í um 3 mín. Bætið mjólk út í smám saman, hitið að suðumarki. Hrærið vel í. Kaffi með fs. 1 potur af mjög sterku kaffl, 1 bolll mjólk, 1 bolli af þunnum rjóma, % bolli sykur, vaníllu is. Blandið saman kaffi, mjólk og rjóma, bætið við sykri eftir smekk, hitið að suðu við hægan hita, kælið Berið fram í glösum og setjið um eina matskeið af vanilluís út í. Moltka, 6 msk. súkkulaðisíróp, 3 bollar af mjög sterku kaffi, 3 boliar af mjólk. Blandið saman súkkulaði- sírópi og kaffi, bætið sykri í eftir smekk og kælið. Hellið mjólk út í og berið fram. Setja má þeyttan rjóma út í eða fulla matsk. af súkkulaði- eða vanilluís. Rússneskt te. 1/2 bolli sykur, 1/2 bolli vatn, 2 þuml. stöng af kanel, 1 tsk. af rifnum sítrónuberki. 1/2 tsk. af rlfnum appelsinuberkl, <4 boili appelsínnsafi, 2 msk. sítrónusafl, 3 bollar sjóðandi vatn, 3 msk. te. Setjið saman sykur, vatn, kanel, stírónubörk og app- elsínubörk í skaftpott. Sjóð- ið þetta i 5 mín., og takifi síðan kanelstöngina úr Bætið i appelsínu-, sítrónu- og ananassafa og haldið því heitu. Hellið sjóðándi vatni yfir telauf og iátið standa í 5 mín. Bætið téinii í ávaxtablönduna. Berið fram heitt. Á KVÖLDBORDIÐ 1 kæliskápnum er þægilegt að geyma matvöru í túpum. Gleymið því ekki að hafa eftirfarandi tegundir við hendina: Kaviar Kryddsíld Sykursíld Mayonnese Tómatsósa Rækjur Fást í flestum matvöru- og kjötverzlunum. Heildsölubirgðir: SltipkvH Vr SKIPHOl-Tl 1 RF.YKJAVlK Sími 2-3737 yika;t 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.