Vikan


Vikan - 09.07.1959, Side 5

Vikan - 09.07.1959, Side 5
Hér er ein þeirra mynda, sem hvaö mesta athygli voktu, enda er hún frábœrlega vel upp byggð. Hún lieitir „Hlýri á gogg“. Kýr fara svo vel í islenzku landslagi, segir Gunnlaug- ur. Hann hefur litlu minna dálœti á þeim■ en hinum veöurbitnu sjómönnum. Mig vantar ekki inspírasjónir, ég hef nóg af því. Það er að vinna úr því, það er aðalatriðið. — Þú skreppur suður með sjó og flettir Zurbar- an. ■— Já, Zurbaran er góður, hann er nauðsynleg- ur. ’Ég vildi segja sem svo, að þegar ég mála, þá mála ég ekki beinlínis með iitum og penslum, en ég mála með verkum annarra. Það eru verk annarra, sem verða heilladrýgst til þess að geta gert eitthvað sjálfur. Maður þarf ekki að lenda undir nein áhrif frá þessum mönnum eða velkj- ast svona eins og eitthvert rekald fyrir ýmsum stefnum, en maður getur notað það, sem aðrir menn hafa gert, til þess að vinna við sínar eigin myndir. En það er þetta með nútímann. Það er svo ósköp mikið að gera: menn þurfa að fara í leikhús, menn þurfa að lesa einhvern djöfuldóm af' bókum og fylgjast með því sem gerist I pólitík og allt það. Það getur veáð ágætt, en maður hefur bara ekki tíma til þess, ef maður ætlar að hugsa um sitt verk. Maður má ekki fylla líf sitt með allskonar skrani. — Vendum aftur suður með sjó. Hafa þessir gömlu og fallegu sjósóknarar, sem þú hefur teiknað, ekki haft áhrif á þig? — Það má vel vera. Það eru margir sem álíta, að þegar maður gerir mynd, svona af manni, að það sé eitthvert sérstakt aðalatriðið að gera mynd af manninum. En fyrir mér er það aðeins að nota hann sem lið í stærri komposisjón. Ég hef aldrei haft löngun til þess að gera myndir af fólki eða náttúrunni, nema með það fyrir augum, að nota það sem uppistöðu í stærri heild. — Þú velur sem sagt úr náttúrunni og mann- lífinu, sem þú sérð fyrir augunum, og færir það yfir á annað svið. — Já. Ég safna svona saman efninu, frá því að fara út á sjó eða fara upp á fjöll, og nota það svo til að gera úr því mynd. — Hvað segirðu þá um þá tilhneiginu, sem nú er uppi, að sleppa algjörlega þeim fyrirbærum, sem tengjast sýnilegu lifi, en byggja myndina úr hreinum flötum? — Það skal ég segja þér: mér líkar það alveg ágætlega þegar i hlut eiga menn, sem ráða við það. Málarinn er raunverulega alltaf að vinna með það sama, og hvort einn hefur stærðirnar, litina og formin úr náttúrunni, eða hann taki það úr ímyndun sinni, þá firinst mér það ekki skipta miklu. Það eru ýmsir abstraktmálarar, sem hafa málað afskaplega góðar myndir, alveg sérstak- lega góðar myndir. Það sýnir, að það er hægt að gera ágætar myndir, án þessa að hafa sam- band við það, sem við köllum sýnilegan veru- leika. Annars er það ekki með öllu rétt að tala um abstrakta list, þvi margir þessara málara taka svo mikið úr umhverfi sínu, jafnvel þeir sem eru taldir geometriskir málarar, eins og Herbin og Mondrian. Því hvað er eftirlíking af náttúrunni og hvað er ekki eftirlíking? Mondrian málar ferhyrninga. Menn segja sem svo: sá sem málar ferhyrninga, hann líkir ekki eftir náttúr- unni. En þá vil ég spyrja: hvað er algengasta sýnileg fyrirbærið í umhverfi okkar, í götunni, húsunum, hér inni hjá okkur? Það eru ferhyrn- Að neöan: „Bg get ekki haft myndirnar stœrri en svo aö ég komi þeim út um dyrnar.“ 1 vor efndi Gunnlaugur Scheving til málverkasýningar í Listamannaskálan- um í Reykjavík. Þá voru li'ðin fimm ár frá því er listamaðurinn hafði síðast sýnt. Allir sem sýninguna sáu voru sammála um að hún væri einstæður listviðburður. Scheving sýndi ekki margar myndir en þœr voru einstakar að gœðum. Myndirnar voru flestar úr lífi og störfum sjómanna. Formin eru ákaflega stórgerð en þrauthugsuð og litasamstillingar mjög nákvœmar. SÍÐASTA TÆKIFÆRIÐ Örstutt íiryllingssaga eftir Ólaf Þ. Kristjánsson Ég greip hnífinn, nú varð það að ske, engin leið var önnur. Ekkert gat bjargað þessu við, nema þetta. Ég fann kalt stálið í hendina. Kvalirnar voru óbærilegar. Ég leit á staðinn sem ég hafði stungið nálinni, en það hafði ekki hrifið. Það var bezta lausnin, að binda enda á þetta með hnífnum, já það er ekki nokkur vafi. Mig skorti bara hugrekkið, það þurfti nú dálítið -hugrekki til að skera sig, skera sig eins og maður væri að skera rollu, hú-ú. Það fór hrollur um mig. Blóð myndi renna, mitt blóð. Ég hef mig líklega ekki í þetta, en ég varð, svona grimm voru nú örlögin, þau nýdd- ust á mér. Jæja ekkert hugleysi. Ég mundaði hnífinn, skera, skera, skerðu sjálfan þig ræf- ill, þú ert eklíert nema hugleysið og ræfildóm- urinn, bölvaður. Þú hefðir ekki átt að vera með þennan glannaskap þá væri margt öðru- vísi en nú. Kvalirnar eru slæmar nú, en hvað áttu þær eftir að aukast mikið, ég myndi tær- ast upp, tætast sundur í ógurlegum þjáning- um, það bar alltaf að sama brunni, bezta ráðið var að sker sig. Nú var ég ákveðin, kannski væri betra að nota rakvélarblað, hár- beitt rakvélarblað. Jæja, nú . . . . Ég skar, skar, blóðið fór að renna, renna, eftir dálitla stund yrði öllu lokið, þá myndu engar kvalir vera lengur. Ég skar betur og nú náði ég flýsinni undan nöglinni, kvalirnár minnkuðu, það er ekki þægilegt að fá flýs undir nögl- ina, og þora ekki svo til læknis og verða að doktora sig sjálfur, það þarf hug til. af því í sumum skáldskap hjá okkur, -—• ja, mér finnst það stundum vera svona eins og að setja hendina inn í dúnpoka. En rímurnar, þær hafa virkilega eitthvað fast, einhverja fasta lögun sem maður getur þreifað á. En hitt, þetta ljóð- ræna hýalín, það hefur aldrei orðið mér að gagni. — Það er ákaflega rólegt hérna hjá þér, engir bílar, enginn umgangur . . . — Já, það er ágætt líka. Það er nefnilega þögn- in, hún er góð. Það er eins og spænska skáldið sagði: Ég kem frá einveru minni og ég mun aftur hverfa til einveru minnar. Og það er þetta, sem er alveg sérstaklega nauðsynlegt fyrir lista- mann, það er að hafa eitthvað tómt, hafa tóm i kringum sig, eitthvað tómt til þess að fylla upp. Við skulum hugsa okkur að ég ætli að mála mynd. Þá er betra að býrja á tómu léreftinu, þar sem ekkert er á, heldúr en að taka fullgerða mynd og fara að mála ofan í hana. Þetta, að vera alltaf á spani og vera alltaf að fá einhverj- ar innspírasjónir og áhrif utan frá og vera alltaf á ferðalögum, — hvað verður þá af manninum sjálfum ? ingar. Hér eru allstaðar tómir ferhyrningar. Því mætti alveg eins segja sem svo, að fyrst Mondrian málar ferhyrninga, þá sé hann naturalisti eða realisti: hann hefur þessi form úr umhverfi Sínu. Og ég vildi spyrja einn abstraktan lista- mann: getur þú komið með lit eða getur þú komið með form, sem ekki er til í náttúrunni? Og hann yrði að svara neit- andi. Sannleikurinn er sá, að öll góð list er ein; hún er ekki góða eða slæm vegna stefn- unnar, sem málarinn fylgir, heldur eftir hæfileikunum sem hann er búinn. Það er allt og sumt.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.