Vikan


Vikan - 09.07.1959, Qupperneq 6

Vikan - 09.07.1959, Qupperneq 6
með ógnarhraða i gegnum eilífðina. Við sjáum stjörnu blika milli skýj- anna, en hugsum við um það, að ljós- inu, sem við sjáum, var ef til vill þeytt út í geiminn, þegar forfeður okkar bjuggu enn í hellum? Við skulum einnig hugsa eitt andartak um okkur sjálf. 1 neti af taugum og vöðvum, finnum við brot úr þessum hverfula raunveruleika. Við lítum á uppgötvun okkar sem sannleika, en er hún í rauninni sannleiki? Er sann- leikinn sjáanlegur, mælanlegur, út- reiknanlegur á hvítum pappír? Við ættum ef til vill að vera svo viss um það. Við sitjum í litlu herbergi, sem frú T. O. kallar ,,bikaraherbergið“ af kvenlegu hispursleysi. Hér eru hillur fullar af blikandi bikurum. Þetta eru verðlaunagripir T. O. úr raunveruleika íþróttanna. En við tölum ekki um íþróttir — við tölum um drauga, en bæði T. O. og kona hans eru sannfærð um að draugar séu í rauninni til. T. O. seg- ir’ — Það eru bráðum tíu ár síðan það kom fyrir, en ég hugsa alltaf um það, eins og það hefði gerzt í gær eða fyrradag. Það sem gerðist hefur fest rætur í taugum mínum, það er eins og það sé hluti af sjálfum mér. Þetta gerðist fyrsta árið sem við vorum gift. Við unnum bæði utan heimilisins, hvort á sínum stað og auk þess að nokkru leyti á ólíkum að bráð? Já, ég gerði ráð fyrir því. Næsti dagur var ekki eins yndis- legur og sá fyrsti. Ég fór í bað og lá í sólbaði. Síðan reyndi ég nýju veiðistöngina mína. Ég skauzt einn- ig til sveitakaupmannsins, sem til allra hamingju var ekki í nema hálfs kílómeters fjarlægð þaðan. En kvöldið kom — og nóttin. Þessi hræðilega nótt, sem ég gleymi aldrei. Nú veit ég, að veinið kom úr öðr- um heimi. Ég var nýkominn í náttfötin og var í þann veginn að skríða ofan í svefn- pokann, þegar þetta skerandi návein heyrðist á ný, og um leið heyrðist þrásinnis hrópað greinilega á hjálp. Ég þaut strax út og í þetta sinn héldu hrópin áfram. Ég heyrði greinilega, að þau komu neðan frá vatninu, þar sem þokan hvíldi. Ég æddi niður að vatnsborðinu. Nú voru hrópin svo æðisleg, að það lá við að hljóðhimnurnar á mér ætluöu að springa. Það var einhver að drukknun komin þarna úti á vatninu — það var einhver í bráðri lífshættu. Án þess að hugsa mig um tvisvar, flýtti ég mér úr náttfötun- um og stökk út í vatnið. Ég synti beint þangað sem öskrin heyrðust, og mér létti mjög, þegar ég kom auga á þúst í þokumóðinni. Þetta var kona umvafin furðulegu, dularfullu ljósi. Hvaðan það kom veit ég ekki. En ég sá dökkt hár ég sagði henni auðvitað ekki frá því, sem komið hafði fyrir mig um nóttina. En hún fann, að eitthvað hafði komið fyrir. Frú T. O. leggur frá sér handa- vinnu sína. — Það var hræðilegt að sjá þig, segir hún. — Þú varst eins og draug- ur. — Já, það má vel vera, skýtur T. O. inn í, en ég reyndi af öllum mætti að vera eðlilegur. En því verður ekki r.eitað, að mig hryllti við næstu nótt. 1 fyrstu virtist ég hafa haft á- hyggjur út af engu, því að alger þögn hvildi yfir sumarnáttúrunni. En það átti eftir að gerast dálitið — sem var á‘ móti allri skynsemi, en sámt námu skilningavit okkar það sem gerðist. Kona mín var syfjuð og fór þess- vegna snemma að hátta. En við höfðum ekki legið lengi áður en það byrjaði. Fyrst heyrðist aðeins lágt skrjáf yfir gólfinu, eins og kjólfaldur drægist hægt eftir því. En síðan breyttist hljóðið skyndilega. Það var eins og drypi af gegnvotum klæðum. Og skyndilega — það var eins og eldingu lysti inn um gluggann og héldi áfram að ljóma — varð albjart i öllu herberginu. Þetta var raun- verulegt ljós — ég sá greinilega her- bergið allt og skefld augu konu minnar. En síðan snerist ljósið að Ef þér eigið heima í sama bæ og T. O. hafið þér ef til vill rekizt á hann á götu í dag. Ef þér hafið á- huga á, þá er lýsingin á honum þannig: Aldur um það bil 35 ár, blá augu, ljóst hár, hæð um það bil 180 em., sterkbyggður. Hann virðist allt- aí á varðbergi. Ástæðan til þess að ég sit sjálfur á köldu nóvemberkvöldi í hæginda- slól heima hjá T. O., er sú, að mér hefur verið lofað bréflega að fá að hlusta á undariega sögu. Og ég verð að segja það strax — það sem ég fæ að heyra er í raun- inni stórfurðulegt. Á meðan ég hlusta á skýra, rólega rödd T. O., finnst mér ég vera að hlusta á blákaldan sann- leikann, en þegar hann þagnar, þótt ekki sé nema eitt andartak, til þess að kveikja sér í sígarettu eða fá sér epli úr skálinni á borðinu, er eins og vafi og tortryggni Iæsi sig um mig. Tortryggni, já! Hversvegna er vaf- inn ávallt heilbrigðari en trúin? Ég veit það ekki. Ef til vill er hinn tor- tryggni einmitt að leita að æðri sannleika en sá sem trúir? Hvað er í rauninni sannleikur? Og eru til furðulegri ævintýri úr raunveruleikanum ? Hlustið nú á: Við erum stödd ein- hvers staðar á yztu mörkum vetrar- biautarinnar — þar sem við þjótum Okkur dreymdi um yndislegt sumarleyfi i Iitla húsinu við vatnið. En það sem gerðist á næturnar var svo skelfi- legt, að við flúðum til borgarinnar eftir örfáa daga. Smásaga eftir Elis Elmgren timum, svo að lítið varð úr fjöl- skyldulífí, En okkur hafði komið saman um aö taka okkur leyfi saman. Það átti eiginlega að verða nokkurs konar brúðkaupsferð. Við erum bæði mik- ið gefin fyrir útivist, og okkur skipti fremur litlu hvert við færum. Við höfðum augastað á kofa uppi í sveit, inni í miðjum skógi, sem þurfti helzt að vera nálægt vatni, þar sem við gátum veitt og baðað okkur. Við auglýstum eftir þessu drauma- húsi og fundum loks hús. Já, það var einkarlega rómantiskt og yndislegt þar. Eimitt lítill rauður kofi við vatnið, já, það vitið þér sjálfur. Kof- inn var, eins og þér skiljið, bráð- notalegur, og við tókum hann á leigu við fremur sanngjörnu verði. Leyfi okkar urðu samt ekki fylli- lega samtímis. Ég fékk leyfi nokkr- um dögum á undan konu minni og fór því einn til kofans, til þess að koma honum i sæmilegt lag. Það var yndislegt að vera þarna og ég naut friðarins í ríkum mæli. Vatnið var ekki nema fimmtíu fet frá kof- anum, og nálægt hundrað metrum frá hliðinu var yndislegasti baðstað- ur í heiminum. Ég sá fyrir mér un- aðslegt leyfi. Ekki grunaði mig, að innan skamms myndi öll sælan breytast í skelfingu og ótta. En þegar fyrstu nóttina kom dá- litið furðulegt fyrir. Ég var nýskriðinn ofan í svefn- pokann um kvöldið, þegar ég heyrði skyndilega furðulegt hljóð inn um opinn gluggann. Fyrst fannst mér ég heyra eins og kaffært dauðavein, en ég heyrði ekki greinilega hvort kall- að var á hjálp. Ég skreið auvitað strax upp úr svefnpokanum og þaut út. En úti var allt hljótt. Veinið var dáið út, og vatnið var spegilbjart þessa björtu sumarnótt. Ég sá ekki annað kvikt en fugl, sem flaug yfir skóginum með þungum, svörtum vængjatökum. Ef til vill var það fuglinn, sem veinað hafði? Eða ef til vill var það annað dýr, sem hafði orðið honum hennar fljóta á vatninu. Ég greip um hár hennar, synti að landi, og ég fann til þunga viljalauss líkama, á meðan hrópin um hjálp gullu enn fyr- ir eyrunum á mér. Þegar ég fann, að ég náði botni, steig ég við og greip með annarri hendi um líkama konunnar. Já,- ég segi greip — en ég gat ekki gripið um neitt, því að líkamann vantaði! Eitt andartak var ég svo hræddur, að ég fann ekki til hræðslu. Á með- an hægri hönd mín fálmaði eftir líkama, sem ekki var til, lyfti vinstri hönd mín afmynduðu, veinandi höfðu upp úr vatninu. Ég get alltaf séð þessa sjón fyrir mér. Hangandi í svörtu hárinu sveiflaðist andlitið fyrir mér og hrópaði í sífellu á hjálp. Ég get ekki sagt um hve lengi ég stóð þarna skelfingu lostin, en það hafa naumast verið margar sekúnd- ur. Skyndilega var höndin á mér tóm, og þögnin umhverfis mig var svo skerandi, að hún ætlaði að æra mig, ef þér skiljið hvað ég á við. Það var eins og ég hefði á einu augabragði komið frá öðrum heimi. En síðan man ég því miður litið. Ég get ekki gert mér grein fyrir því, hvernig ég komst heim að kof- anum. En ég komst þangað að minnsta kosti, því að morguninn eft- ir vaknaði ég allsnakinn á gólfinu. Atburðir næturinnar stóðu mér auðvitað ljósir fyrir hugskotssjónum, en samt vildi ekki skynsemin sætta sig fyllilega við það sem ég hafði séð. Jafnvel ekki þegar ég fann náttfötin í fjörunni gat ég sætt mig við það, að þetta hefði raunverulega gerzt. Allur næsti dagur hvarf mér eins og í þoku. Ég man aðeins, að ég var afar syfjaður, en til allrar hamingju var hugsun min þó svo skýr, að ég mundi, að kona mín ætl- aði að koma um kvöldið. Ég tók á móti henni hjá langferðabílnum, en einum stað aðeins — að svífandi skugga, sem skjótt tók á sig and- litsmynd með rennvott hár. Andlit með starandi augum, og með opinn munninn, sem kallaði hljóðlaust á hjálp! Ég kannaðist við það — þetta var sama höfuðið og hafði dinglað eins og pendúll í vinstri hendi minni. Sýnin hvarf brátt. Kona mín heldur því fram, að hún hafi verið í það hafi ekki verið nema nokkrar sekúndur. Það skiptir heldur engu. Þegar við höfðum jafnað okkur eftir fyrsta áfallið, þutum við á fætur og flýttum okkur að langferðabílastöð- inni. Það var ekki von á bilnum fyrr en morguninn eftir klukkan niu, en til allrar hamingju tókst okkur fljótt að ná í vörubíl, sem ók okkur fimm mínútur, en ég held sjálfur, að til borgarinnar. Ég get ekki lýst því hve undur- samlegt það var að koma aftur til öryggis og raunveruleika. Ég gæti trúað, að dauðadæmdum manni sé þannig innanbrjósts, þegar hann er náðaður. T. O. þagnar, og ég skýt inn spurningu. — Hefurðu kynnt þér bakgrunninn að þessum undarlegu atburðum? — Já, smátt og smátt gerði ég það. En það ótrúlegasta er það, að bak- grunnurinn finnst ekki, vegna þess að það hefm- enginn í manna minn- um drukknað í þessu vatni. Já, hér lýkur sögu T.O., og nú er ekki annað eftir en þurrir eftirþank- ar. Kenning mín er sú, að fyrsti hluti sögu T.O. sé ekki annað en svefnganga. Fuglsgarg hefur ómað í næturþögninni eins og hróp um hjálp og þrengt sér inn í undirmeðvitund hans og þegar í stað vakið verndar- hvöt T.O. Hann hefur þotið sofandi 6 VIKAN

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.