Vikan - 09.07.1959, Page 11
frameftir hlíðunum og var staðið upp. Þeir
skoluðu niður kaffisopa og bundu uppá og hóuðu
náttstöðnum kindunum framávið. Það hafði kast-
að éli um nóttina og lindimar voru frosnar vlO
bakka. Nepjan við morgunsárið beit í húðina og
það lækkaði á landaglösunum.
Fjárhóparnir sigu rólega fram hálsamótin.
Um hádegi ráku þeir safnið niðurað ánni. Þeir
sáu glitta í hvítan hroða í strengnum og vissu að
hún hafði farið að skríða um nóttina. Vigfús
í Selinu sneri hestinum til kóngsa.
— Heldurðu að það taki í hana í þessum kulda ?
Verðum að reka, sagði kóngsi.
— Skriðið festist I ullinni og það berst niður
í strengnum og nær ekki haldinu.
— Við höfum einn bát og þetta eru fleiri
hundruð.
— Engin skepna nær landi vestanvið
— Áin fyllist af skriði . . .
Vigfús rykkti í taumana og heyrði að kóng-
urinn hélt áfram, — og ef við stoppum getum
við hvorki ferjað né rekið.
Þeir voru vanir að halda því í ána innarlega
með bakkanum og láta það berast frammí hald-
ið. Og þeir stugguðu því og fóru með það lengra
innfyrir en vanalega og þjörmuðu því niðuraf
bakkanum, og þeir börðu stígvélin með svipuól-
unum og lutu fram og örruðu og þjöppuðu því
niðurað vatnsborðinu. Hundarnir tróðu sér gap-
andi framámilli mannanna og froðan vall útúr
þeim. Nokkrar kindur smugu úr hringnum og
komust uppí torfuna en voru hundbeittar og rekn-
ar samanvið. Og fjárhópurinn niðurí vatnsskorp-
unni þéttist. Sumar kindurnar voru farnar að
riðlast ofaná en þeir tóku ekki eftir því og vissu
ekki að það var farið að troðast undir.
Drengurinn sá að nokkrar kindur ultu framúr
þvögunni og tóku sundið, og hann sá hvíta
skrokka fljóta frá bakkanum og renna frammí
strenginn og hann hrópaði uppyfir sig.
Vigfús rétti sig upp. Hann leit kindurnar fljóta
niður ána og vissi þær hefðu troðizt undir og
mundu ekki ná haldinu en berast fram í strengn-
um og lenda í fossinum.
Kóngurinn var hlaupinn niðurmeð ánni og Vig-
fús á hæla honum.
Þeir höfðu sett bátinn og voru farnir að róa
undan straumi — og fossbrúnin fyrir neðan þá.
Út út... í sumarið
í sumarfríið
í helgarferðir
er hentugast að hafa álegg í túbum:
Jarðarberjasulta cT""7”?
Mayonnese
Tómatsósa
Kryddsíld
Sykursíld
Rækjur
Kaviar
Sýróp
Fást í flestum matvöru- og kjöt-
verzlunum.
Heildsölubirgöir:
Skipkttit Vr
SKIPHOI.TI 1 RF.YKJAVlK
Sími 2-3737
Jtjijijijijijijijijijijijijjjijijjjjjijjjjjijjjj
Það gerðist í Cannes
Á Uvikmyndahátíðinnl
i Cannes i Frakklandi
var mikið um dýrðir og
eins og venjulega urðu
þar margvisleg hneyksl-
ismái. Ungar stúlkur,
sem vilja verða frægar,
hvað sem það kostar,
reyna hin ótrúlegustu
meðul til þess að vekja
athygli ljósmyndaranna
frá heimspressunni og
forkólfa í kvikmynda-
iðnaðinum, sem þar eru
á hverju strái.
Að þessu sinni þótti
kvikmyndin Orpheus
Negro bezt. Aðalhlut-
verkið lék negrastúlkan
Marpessa Dawn og vakti
hún að vonum mikla at-
Kygli. enda fögur mjög.
Hún hafði með sér unn-
usta sinn á kvikmynda-
hátíðina, en hann er lítt
þekktur belgiskur kvik-
myndalcikari.
Italinn Rosselini hefur
látið mikið til sín taka í
kvennamálum og síðasta
stórafrek hans á því
sviði var að skilja við
Ingrid Bergman og taka
saman við hina ind-
versku kvikmyndaleik-
konu, Solali Das Gupta.
Þau voru saman á kvik-
myndahátiðinni í Cannes
og hin indverska frú
Rosselinis vakti þar
slika athygli, að nálega
einsdæmi mun vera. Hún
er hreinræktaður Ind-
verji eins og myndin ber
með sér og hún er sögð
hafa mjög töfrandi
framkomu. Sonali klæð-
ist indverskum „Sari“ að
hætti þarlenzkra kvenna
og ekki brá liún þeirri
venju í Cannes.
VIKAN
11