Vikan - 17.09.1959, Síða 17
Kvöldjakkar
úr loðskinnum
Stuttjakkar úr fallegum
loðskinnum eru mikið í tízku
í sumar og haust. Svo virðist
sem loðskinnssjölin séu að
víkja fyrir stuttjökkum með
ýmsu sniði, t. d. bóleró-sniði.
Hér birtast nokkur sýnishorn
af hausttízkunni í þessari
tegund fatnaðar, og verður
því þó ekki neitað, að þetta
er algerlega lúxus-fatnaður.
Hinn frægi Tívolí-garður í
Kaupmannahöfn virðist til-
valinn staður til að sýna þessa
jakka, a. m. k. bar mikið á
þeim meðal hinna skart-
klæddu kvenna í Tívolí síð-
sumarskvöldin á því herrans
ári 1959. í fljótu bragði mátti
ætla, að þarna væri sýning á
loðskinnsjökkum, en þegar
betur var að gætt, mátti sjá,
að margar hinna glæsilegu,
skrautbúnu kvenna, sem
klæddust þeim, höfðu hvorki
aldur né útlit, sem hæfa þyk-
ir tízkusýningarstúlkum.
Þessi loðskinnsjalcki er sérlega
fallegur fyrir grannar og smá-
vaxnar stúlkur. Hann er úr
persianer-skinni, en snögghærð
skinn fara smávöxnum konum
miklu betur en önnur.
Kvöldjakki úr minkaskinni með liálf-
um ermum.
bessi kvöldjakki er úr hrúnu minka-
skinni. Ermar eru hálflangar með upp-
slögum og skáskorinn kraginn. Bakið
er haft vítt.
Hálfkápa úr minkaskinni, sérlega
falleg við kvöldklæðnað.