Vikan


Vikan - 03.12.1959, Page 12

Vikan - 03.12.1959, Page 12
Hver er mesti humor- ísti landsms? Skrifið einn eða fleiri snjalla íslenzka brandara hér að neöan og sendið. Við veitum verðlaun fyrir þá beztu: Áskrift að Vikunni í eitt ár. SENDANDI ER: NAFN HEIMA - Og: oii skal éa: segrja þér eitt: Aonað Iivort sýnir þn Inað I jiér I>ýr ojf ft’eyuir að lifa eins ©g: Icarliuaðar, sem vill lifa eðlilegru lífi iueð konu sinni, eða þá .... AÐ var búið að leigja allar íbúðirnar í stóra húsinu, og ef til vill hafði hana þegar grunað það, en ef maður reyndi ekki, var hvergi íbúð að fá. Reyndi ekki, hugsaði hún, á meðan hún gekk viljandi alla leiðina heim til þess að anda að sér fersku loftinu og gefa sér tíma til þess að hugsa um eitt og annað. Reyndi ekki? Hafði tveggja ára hjónaband hennar og Karstens verið annað en tilraun á tilraun ofan? Fyrst og fremst tilraun i þá átt að finna sér viðurkvremilegan iverustað og því næst baráttan við það að skilja ekki. Það var ekki þar r.ieð sagt, að þau væru ekki lengur eins ástfangin hvort af öðru og þegar þau giftust, — heldur var erfitt að varðveita hamingjuna og ástina, þegar þau bjuggu í svefnherbergi tengda- foreidranna. Það hlaut sannarlega einnig að angra foreldra Karstens Þau höfðu troðið öllum húsgögnum sínum inn í stofuna úti við götuna, og mörgu hafði orðið að koma fyrir uppi á háalofti. Á meðan þau biðu öll og vonuðu, leið hver mánuðurinn á fætur öðrum og urðu loks að tveimur árum. Tvö ár, i tvö ár reyndu ung og gömul hjón að koma sér fyrir i tveimur herbergjum og reyndu af öllum mætti að forðast árekstra. Tengdamóðir hennar sagði alltaf: — Þetta blessast allt, sannið þið til. Einn góðan veðurdag fáið þið íbúð, sem þið hafið efni á. En Merete vissi mætavel. að undir niðri óskaði gamla konan þess að fá aftur litla heimilið sitt, og það var ekki annað en sanngjarnt. Verst af öllu var þó, að þeim hafði gefizt tækifæri, . . . ekki eitt, heldur fleiri. En alltaf varð að líta eftir einhverju í miðjum skrifstofutímanum, og Merete gat ekki í sífellu verið að biðja um frí. Þá hringdi hún í Karsten og sagði honum frá þessu, Þau hlutu að losna að minnsta kosti til skiptis, svo að hún þyrfti ekki alltaf að vera á þönum. En árangurinn varð alltaf hinn sami. Húsbændurnir voru nýfarnir, og Karsten komst ekki úr búðinni, . . . eða hann hafði komið of seint, . . . eða það gat beðið til kvölds En um kvöldið var auðvitað búið að leigja íbúðina! -— Maður gæti næstum haldið, sagði Merete gröm dag einn, — að þú nenntir hreinlega ekki að flytja. Þú býrð heima, eins og þú hefur alltaf gert, og þér stendur algerlega á sama, — hefur SMÁSAGA j efiir Karcu Bra§cu konu, móður og föður til þess að snúast í kringum þig. En mér er ekki sama. Ég á ekki heima hjá foreldrum mínum! — Þau eru indæl, sagði Karsten stutt. Já, hugsaði hún og stundi, það var líklega þar, sem hundurinn lá grafinn. Hefði tengdamóðir hennar hagað sér örlítið öðruvísi, og hefði tengda- faðir hennar ekki verið svona rólyndur, hefði ef til vill eithvað gerzt. Nú leið hver vikan á fætur annarri, og alltaf bjuggust þau til svefns, hvert á sínum legubekknum, heyrðu í útvarpinu í gegnum lokaðar dyrnar, og herbergið var þeim ekki fremur hemili en herbergi á gistihúsi. Hún kom að húsinu, þar sem þau áttu heima, og gekk inn i herbergi sitt. Fyrst laumaðist hún í gegnum húsgögnum hlaðið herbergið, rakst í borðbrúnir og stóla og reyndi að taka þannig til, að þessu svipaði að einhverju leyti til heimilis. Hún vissi, að tengdafaðir hennar og Karsten væru að tefla, . . . tengdamóðir hennar var í eldhúsinu, og venjulega fór hún þangað til þess að hjálpa henni. En ekki í kvöld. Nei, hugsaði hún, ekki í kvöld. Hún gat Það bókstaflega ekki. Hún settist með bók í hendinni og reyndi að lesa, og um tíu- leytið var slökkt á útvarpinu, og Karsten kom inn. — Hvað í ósköpunum ertu að gera hérna? spurði hann hissa. Hún svaraði ekki, heldur tók að búa þau undir svefninn. Hún hafði alltaf ætlað sér, þegar þau væru gift, að eignast gott rúm, en hérna komst auðvitað ekkert rúm fyrir! — Hvers vegna ertu svona önug? spurði Karsten eftir stutta þögn. Ilún sneri sér við og horfði á hann: — Já, hvers vegna heldurðu, að ég sé það eiginlega? spurði hún. — Var nokkur laus íbúð í þessu húsi? Þetta virtist fremur sagt af kurteisi en áhuga. Já, það hafði verið til leigu tveggja herbergja íbúð með svölum á móti suðri, og það þurfti ekki aö horga meira út í hönd en við eigum í banka, . . . ef þú hefðir getað gert þér ónæði í morgun, sagöi hún bitur. Hún hataði rödd sína, þegar hún varð svona hávær. Hún hataði kounr, sem urðu hóglífar og sljóar og týndu virðingu sinni. Það var niðurlægjandi fyrir konu að æpa í opið geðið á karlmanni, . . . en hún gat þetta ekki lengur. Hún var dauðþreytt á þessu öllu. Upp á síðkastið hafði hún haft löngun til þess að hlaupast á brott frá þessu öllu. — Já, anzans vandræði, tautaði hann hryggur. — Þér er fjandans sama, sagði hún svo hátt, að t engdaforeldrar hennar hluta að heyra hvert ein- asta orð, — þú ert ánægður með þitt hlutskipti, og í rauninni nennir þú hvorki né dreymir þig um að finna okkur íbúð, þar sem við getum búið í friði eins og hjónum er eðlilegt. Þú ert ekki annað en stórt dekurbarn, sem ekki getur sleppt pilsfaldin- um hennar mömmu sinnar. Þú ert ekki nógu þroskaður til þess að vera giftur, Karsten, því að fullorðinn karlmaður mundi vilja búa einn með konu sinni og gera sér það ómak að reyna að finna sæmandi íbúð handa þeim. — Það er ekki mér að kenna, að það eru hús- næðisvandræði, skaut hann inn í særður. — Það eru ekki meiri húsnæðisvandræði fyrir okkur en alla aðra, svaraði hún ákveðin. — Við eigum peninga í banka, og við eigum húsgögn og annað til þess að fylla sæmilega upp í litla íbúð . . . Hvað heldurðu eiginlega, að margir geti státað af þessu? Og nú skal ég segja þér eitt: Annaðhvort sýnir Þú, hvað í Þér býr, og reynir að lifa eins og karlmaður, sem vill lifa eðlilegu lifi með konu sini, eða þá . . . — ... eða þá? spurði hann — Eða þá ég er farin! Hefur þér aldrei dottið i hug, að ef til vill langaði móður þína til þess að fá aftur íbúðina sína, eftir að hún hefur orðið að kúldrast i tvö ár í stofunni sinni, þar sem hún einu sinni undi sér í næði? — Hefur mamma kvartað? sagði hann tortrygg- inn. — Nei, svaraði hún — þreytulega, — þú veizt vel, að það hefur hún ekki gert. En það er hægt að eiga sér óskir án þess að básúna þær út um allt. Ég vildi, að þú reyndir að hugsa svolítið og hætta að lifa eins og barn, sem þarf engum skyld- um að gegna. Hún sneri við honum baki og settist á legubekinn. Nú ætlaði hún að biða eftir svari hans, hugsaði hún og tók að klæða sig úr. Hún heyrði hann hreyfa sig, leggjast og teygja úr sér, . . . og enn beið hún. Stuttu síðar ieit hún við til hans . . . Hann var sofandi! Þessa nótt kom henni næstum ekki dúr á auga, og morguninn eftir fór hún á fætur án þess að taka til morgunkaffið. Hann gæti drukkið það hjá mömmu sinni, hugsaði hún dræmt. Seinna um morguninn fékk hún sér frí úr vinnunni og hélt heim til tengdamóður sinnar. — Blessuð, sagði frú Lund, — þú kemur einmitt í kaffisopann. Hún lagði bakka á borðið fyrir fram- an gluggann, þar sem sólin skein á öli blómin i glugganum. Merete gat aldrei sjálf haldið lífinu í blómunum sínum, svefnherbergið vissi á móti norðri. Hún settist og horfði á tengdamóður sína. — Ég kom ekki til þess að segja, að ég vildi skilnað, byrjaði hún tafarlaust, — Því að ég held, að hjón komist á engan hátt hjá neinu með því að skilja. En ég geri ráð fyrir, að þú hafir heyrt, þegar við Karsten vorum að rifast í gærkvöld? — Ojú, sagði hún hægt, um leið og hún hellti kaffinu í bollana, rjúkandi-heitu, — og ég skal segja þér eitt, stúlka mín, — ég var þér svo alger- lega sammála . . . Merete lagði frá sér bollann og starði á kon- una, sem hélt áfram án þess að blikna: — Mæður eru ekki allar blindar, þegar synir þeirra eiga i hlut, þótt svo sé af látið. Hún leit snöggt til Merete og bætti við: — Maður dekrar við svona einkabarn, og tengdabörnunum sviður það auð- vitað, en þetta sér maður ekki fyrr en um seinan. Veiztu, hvað mér datt í hug? — Nei, tautaði Merete forviða. ia

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.