Vikan


Vikan - 03.12.1959, Page 23

Vikan - 03.12.1959, Page 23
 ÁSLAUG Á HRAUNI Framhald af bls. 21. hylla hana bæði með orðum og augnatillitum. Já, það voru nú meiri ástaraugun, sem hann renndi til hennar. Skyldi síra Páli ekki Þykja nóg um ... ? Þegar halla tók að venjulegum háttatíma dreif frú Aslaug hin feimnu hjú sin aftur inn í stofu og aliir settust að súkkulaðidrykkju með sama samkvæmisbrag og áður. Húsbændur og gestur skiptust á orðum, en hinir þögðu með svip vel ámmntra barna í gestaboði. „Áslaug," sagði gesturinn svo fljótt, sem hann sá sér færi á, eftir að súkkulaðidrykkjunni var iokið. „Mig er nú satt að segja farið að muna í bólið. Það er sjálfsagt gott eins og allt annað á þínum bæ. Það hefur verið hálfgerð pílagrímsför að komast til þín og ég er hálfslæptur. Það er nú kannski hæpið að játa slíkan karlmennskuskort á þessum stað, þar sem mér virðist að muni þurfa víkingsmenni til þess að heyja hina daglegu lífs- baráttu." „Já, gerðu bara hetjur úr okkur öllum," sagði frúin spotzk. „Það er ekki ráð nema í tíma sé tekið að byrja á kosningaáróðrinum, og skera þá ekki við nögl sér lofið um okkur, sem í dreifbýlinu búum. Margur gín við lofinu og þá er að ganga á lagið.“ „Það er langt til kosninga, en skammt til nætur, Áslaug mín. Tefðu ekki tímann fyrir okkur. Ég hef ekki fengið tækifæri til þess að tala stakt orð við þig eina siðan ég kom hingað. Þú heldur þó ekki að ég hafi farið um langan veg til þess eins að þiggja af þér jólabeina?“ „Ég leiði ekki hugann að því, hvað þú ætlast fyrir með ferðum þínum norður hingað tílfar. Slíkur fjáraflamaður, sem þú ert, hefur sjálfsagt hagsmuna að gæta um víða um land. Já, það gætir sjálfsagt margra grasa í poka þínum, ef vel er að gáð. En hvað sem þvi líður, þá er þér herbergi til reiðu, hvenær sem þú vilt, ég skal nú biðja síra Pál að vísa þér þangað og sjá svo um, að þú hafir eitthvað að líta i, ef einveran kynni að verða þér leiðigjörn." „Einveran," endurtók tJlfar og drekkti brúnum augum sínum í hinu bláa augnadjúpi þeirrar konu, sem hann var staðráðinn i að gagntaka með töfr- um. „Ertu hrædd við mig, Áslaug? Er það herbragð þitt að vera enga stund ein með mér?“ „Hrædd!“ sagði hún og reyndi að sýnast spotzk og köld. „Hvað ætti ég svo sem að óttast? Ég þekki þig og ég þekki sjálfa mig. Nei, ég er ekki hrædd, óðru nær, en ég er þreytt eins og þú, Ulfar. Þú ert óvanur þæfingsófærð í myrkri og hríðarveðri, en ég er nýliði í mínu starfi og þreytist meira en þeir, sem vanir eru, þess vegna hafði ég hugsað mér að taka mér hvíld og bjóða þér nú góða nótt.“ „Nei, nei,“ sagði hann, „gerðu ekki svona enda- sleppt við mig í kvöld, fylgdu mér þó að minnsta kosti sjálf til sængur, það tefur þig varla svo mikið eða þreytir að þú getir skotið þér á bak við það, ef þú synjar þessari einu jólaósk minni.“ „pú ert sjálfum þér líkur, Úlfar Bergsson, en gott og vel, ég skal koma með þér,“ hún tók sér Utinn vegglampa í hönd og sýndi á sér fararsnið, en hinkraði þó andartak meðan Úlfar bauð síra Páli góða nótt og þakkaði honum fyrir hið einkar ánægjulega kvöld. Frú Áslaug brosti biturt, þegar hún heyrði þessi orð. Hún gekk á undan sínum gamla elskhuga með lampa í hönd og lýsti honum leiðina. Gesta- herbergið var á lofthæð hússins eins og svefn- herbergi þeirra hjóna. „Ég vona að þig vanhagi ekki um neitt, sem þér er bagi að,“ sagði frú Áslaug og setti lampann frá sér á borð við höfðalag rúmsins. „Hér liggur eldspýtustokkur og . . .“ hún tók lampann og hristi hann lítið eitt. „Það er nægileg olia, þó að þú viljir láta loga ljós hjá þér alla nóttina eins og tiðkaðist hér áður, þegar fólk var trúræknara og fylgdi helgisiðunum betur en nú tíðkast." Þó að Áslaug léti sem hún sæi ekki hið heita, biðjandi augnaráð Úlfars var þó sem vilji hans fiötraði hana við þennan stað og hún flutti til bækur og færði í lag, það sem engrar lagfæringar sýndist þó við þurfa, unz hún líkt og rankaði við sér, rétti úr sér með snöggum rykk, bauð góða nótt og bjóst til að ganga burt. „En ljósið," sagði Úlfar og gekk nær henni. „Á ekki að lýsa þér niður stigann?“ „Nei, þess þarf ekki, ég fer ekki niður aftur, við sofum hér uppi.“ Við sofum hér uppi! orðin ögruðu Úlfari, espuðu hann, þau bentu svo alltof opinskátt til þess, sem hann hafði sjálfur misst, en annar maður hlotið. Öðrum manni, alls óverðugum, veittist sá unaður að fá að hvila hjá þessari óviðjafnanlegu konu hverja nótt, en hann, sem átti rétt elskhugans, skyldi hýrast aleinn og þrá og sakna, — já, vaka ef til vill alla nóttina hamslaus af þrá. Hann reyndi ekki lengur að leggja á sig höml- ur, treysti hikiaust á karlmannlegu töfra sína, nú sem ætíð, og minningar hennar um ástríðuþrungin og unaðsfull atlot þeirra fyrr, svo margar ógleym- anlegar sælustundir. Skyndilega, áður en hún fengi nokkurt viðnám veitt, hafði hann þrifið hana i faðm sér og þrýst henni fast að sér, meðan munað- arþyrstar varir hans sugu að sér varir hennar. . . . IV. Nokkru áður en guðsþjónustan skyldi hafjast kom frú Áslaug inn í skrifstofuna til manns síns. Það leyridi sér ekki að honum var brugðið. Hann leit undan augnatilliti hennar og sagði hnugginn: „Mér hefur tekizt alveg sérstaklega illa með ræð- una mína að þessu sinni. Það ætti þó að vera vandræðalaust að semja jólaræðu fyrir þann, sem eitthvað gæti, en í þessari ræðu er allt margþvælt og upptuggið, allan trúarhita og sanna jólagleði vantar. Pokaprestsbragurinn leynir sér ekki. Hafi sóknarbörn mín ekki fundið það fyrr að ég er lélegur kennimaður þá rennur það upp fyrir þeim, þegar þau heyra þessa ræðu.“ „Það getur svo sem vel verið að þú sért eitthvað verr fyrir kallaður en venjulega, en heldurðu nú samt ekki að þú gerir full mikið úr mistökunum?" „Nei, sizt of mikið. Ég hefði átt að semja ræðuna fyrr, það var óforsjált af mér að geyma það til s.ðustu stundar. En þú veizt, hvað margt kallaði að fyrir jólin, ferðalög og annað, og í morgun er eins og allt hafi verið mér lokað, ég get ekki fest hugann við fagnaðarboðskapinn og helgi jólanna.“ Frú Áslaug roðnaði. „Það er víst ekki seinna vænna að við tölumst við i fullri einlægni,“ sagði hún. „Nei, nei, ekki núna,“ andæfði prestur og tók að rúsa um gólfið, hann var allur á valdi geðshrær- inga, sem honum var ómögulegt að dylja. Frú Áslaug stóð kyrr og fylgdi honum þegjandi eftir með augunum. Framh. í ncesta blaSi. VIKAN 26

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.