Vikan - 28.01.1960, Blaðsíða 21
„Þessa bók langar mig til að heyra“. Hafið þér heyrt getið
bóka, sem tala í „bókstaflegri merkingu“? Eða um sendibréf, sem
flytja viðtakanda kveðju sendanda hans eigin rómi? Um þetta
og ótal fleiri tæknilegar nýjungar getið þér lesið í „Tækni fyrir
alla“. Þar birtast greinar um þær stórkostlegu uppfinningar, sem
valda straumhvörfum og marka tímamót, og frásagnir af uppfinn-
ingum og tækniáhöldum, sem auðvelda hversdagslíf manna —
og frá hvorttveggja er sagt á jafn ljósan hátt.
Vitið þér til dæmis að rafknúnu bílarnir þola orðið að mörgu
leyti samanburð við þá benzínknúnu? Að framieiðsla og sala á
rafknúnum bí!um er þegar hafin í stórum stíl í Ameríku, og að
þeir eru bæði ódýrari í kaupum, og notkun og endingarbetri en
þeir benzínknúðu? Um þetta getið þér lesið fróðlega og skemmti-
lega grein í „Tækni fyrir alla“.
Innan áratugs verður sennilega hægt að fljúga á rúmlega
klukkustund á milli Reykjavíkur og New York. Ef til vill eru
þau ævintýri, sem nú eru í þann veginn að gerast í fluginu —
að millihnattaflugi meðtöldu — eitt hið merkilegasta, sem um
getur á sviði uppfinninga og tækni. Um það birtast fróðlegar
greinar f hverju hefti „Tækni fyrir alla“.
Kneissl skíðin eru að vísu ekki nein stóruppfinning, og ekki líklegt að hún valdi neinum
straumhvörfum — en þó hefur hún valdið verulegum átökum meðal forráðamanna skfða-
íþróttanna og aiþjóða skíðasambandið viðurk?nnir ekki nein met, sem sett eru á slikum
skíðum. Lesið grein um þau í „Tækni fyrir alla“. En á þeim hefur líka náðst brunhraði,
sem lygilegur má kallast, og sagt er að þar með hafi öllum eldri brunmetum verið rutt.
öll helztu bandarísku bílamódel 1960 getið þið séð á mvndum
og lesið um f „Tækni fyrir alla“. Þar birtast skemmtilegar og
fróðlegar greinar í hverju hefti um bíla, evrópska og bandariska,
fullstóra, meðalstóra og smábfla af öllum gerðum og tegundum.
Auk tæknilegs efnis flytur ritið skemmtilega og spennandi sögu
f hverju hefti og fjölda mynda og smáfrásagna. Ekkert jafn fjöl-
breytt rit um tæknileg efni hefur verið gefið út eða er gefið
út hér á landi. „Tækni fyrir alla“ — fróðlegt og skemmtilegt
fjrrir alla.