Vikan - 11.02.1960, Blaðsíða 21
„NICK THE GREEK“
Framhald af bls. 15.
þá, sem Nikk vann stærstu upphæðir sínar. Hann
lét sér nægja að „komast í þjálfun“ á þessum
opinberu stöðum, en um miðnætti fór hann heim
til stóru spilafíflanna, og þar var ekkert smáræði
lagt undir.
1 Las Vegas getur allt komið fyrir. Þangað
þyrpast milljónarar kringum spilaborðin, horfa
á nektardansa, ef þeir láta sér þá ekki nægja að
sötra viski.
Skemmtilegt dæmi úr lífi þessarar furðulegu
borgar er tekið úr timaritinu Colliers og mun
vafalaust vera sannleikanum samkvæmt. Greinin
fjallar um Nikk. Hann er sagður hafa vaknað
um miðja nótt við símhringingu. Það var olíu-
kóngur i Texas, sem vildi tala við hann. Nikk
dvaldist þá í glæsilegu hótelherbergi í Las Vegas:
— Hvernig gengur, Nikk?
— Þakka þér fyrir, ágætlega. En þér?
— Þakka þér fyrir, ágætlega, en mér leiðist
í nótt. E’igum við ekki að taka nokkur spil? Ég
sit hérna með dollaramynt í höndunum. Hvað
segirðu við því. Hvora hliðina viltu fyrir 10.000
dollara?
Nikk valdi sér hlið.
— Bölvuð vandræði, Nikk. Þú vannst. Ég sendi
þér ávísun með morgunpóstinum.
Og auðvitað komu peningarnar. Menn eru ekki
að sjá í svona smáupphæðir, — að minnsta kosti
ekki þessir karlar.
Hvórt hnfið þér blótað!
Leyfist oss að minna á það, að enn lifir
fjórðungur Þorra og fer nú hver síðastur að
verða til blóts. Meðfylgjandi mynd er tekin í
Naustinu, en sá ágæti veitingastaður kefur
ekki brugðist Þorraskyldunni. Þar fá menn
trogfylli af rammíslenzku blótmeti og skal
þeim, sem ekki hafa reynt né setið önnur
Þorrablót, eindregið bent á að ekki sæmir að
byrja svo Góuna að hafa ekki blótað Þorrann.
ERRA Nicholas Dandolos er nýorðinn sjö-
tugur. Hann er hár, grannur og beinaber
og getur spilað og drukkið dægrin löng án
þess að sofa. Að því er virðist, bitur ekkert á
hann. En hann þarfnast og þráir spennu. Þegar
hann kom til Bandaríkjanna á unga aldri, ungur
og efnaður forstjórasonur, varð hann þegar ást-
fanginn af stúlku einni, sem leizt einnig ve! á
hann.
En þá kom babb í bátinn. — Þeim varð sund-
urorða, og Nikk fór sár til Kanada og beið þess,
að hún skrifaði honum og bæðist fyrirgefningar.
Bréfið kom reyndar — frá foreldrum hennar,
— tilkynning um, að dóttir þeirra væri dáin.
Þetta gerbreytti griska Nikk. Hann tók nú að
drekka og svalla. Hann hafði tapað trúnni á lífið.
Einungis við spilaborðin fann hann sjálfan sig.
Þetta kann að hljóma ákaflega tilgerðarlega,
en þetta er heilagur sannleikur engu síður en
sögurnar af þeim fjárfúlgum, . sem hann hefur
unnið á ævinni — og tapað. Það er óþarfi að
skreyta, því að líf Nikks er sannarlega nógu við-
burðaríkt. Sérhver sekúnda í lífi hans í Banda-
ríkjunum hefur borið með sér nýja og óvænta
viðburði. Hver mundi til dæmis trúa þvi, að oitt
sinn gleymdi hann 80.000 dollurum í svitabandinu
á hattinum sínum, sem hann hengdi upp á veit-
ingahúsi einu. Hann fékk bæði peningana og hatt-
inn aftur — og stóð, að því er virtist, algerlega
á sama.
Það er þess vegna ekki furða, þótt Nikk sé
orðinn nokkurs konar ævintýravera í huga ame-
rískra spilafugla. Hóteleigendur og eigendur spila-
víta halda því fram, að hann vekji meiri athygii
en Marlene Dietrich í fararbroddi fyrir 40 í,tur-
vöxnum meyjum. Hann á það ekki lengur á hættu
að verða fátækur að nýju, því að hann þarf ekki
annað en minnast á það við eiganda spilavítis,
að hann geti svo sem litið inn í vítið hans í e!nn
eða tvo tíma eitthvert kvöldið. Og eigendurnir
taka honum opnum örmum, því að sérhver efn-
aður Bandaríkjamaður ekur kádiljáknum sínum
mörg hundruð kílómetra végalengd einungis til
þess að geta státað af því að hafa verið í sama
herbergi og maðurinn, sem lagði eitt sinn 550.000
dollara undir eitt spil — og vann. +
Framh. af bls. 11.
er aö hafa dagblöO undir dúkn-
um, svo að liturinn komi ekki
í gegn.
ByrjiO síOan að lita, og at-
hugiO aO lita ekki út fyrir
mynztriO, því aö liturinn næst
ekki úr.
LofiO síOan dúknum aö
þorna.
AÖ lokum er hann faldaöur
í höndum.
Þar sem tauprentslitir eiga
aö þola suöu, er óhœtt aö þvo
dúkinn, þegar meö þarf.
Duldar afleiðingar
bifreiðasfysa
Framhald af bls. 9.
meina ýmsum hæfileikum barns-
ins að njóta sín i námi, liegðun og
starfi.
En við gefum þessum þætti slyss-
ins venjulega lítinn gaum, heldur
einblínum á ytri áverka. Því getur
oft að Icsa í slysafregnum og heyra
i tali manna, að ungt barn hafi
sloppið furðuvel úr umferðarslysi,
ef það fékk skurð á höfuð eða ein-
falt beinbrot á útlim. Oklcur sést
yfir aðaláfallið: skelfinguna, sem
gagntekur barnið, sekúndubroti
áður en áreksturinn verður.
ÓSÝNILEG FÖTLUN.
Sýnileg fötlun skýrir sig sjálf.
Enginn ásakar haltan mann, þó að
hann sé ekki jafnfóthvatur og
liinn heilfætti, né blindan fyrir
glámskyggni. Maður, sem er sýni-
lega fatlaður, nýtur skilnings og
samúðar. Öðri máli gegnir um
ósýnilega fötlun, sem fólk dregst
með eftir slys og áföll. Hún er
venjulega lögð hinum fatlaða út
á versta veg. Sjúkleg hræðsla er
sú tegund fötlunar, sem vekur háð
og spé, af því að heilbrigt fólk
finnur ekki til ótta við það, sem
fyllir hinn fatlaða skelfingu. Ég
þekki ungan mann, sem er svo bíl-
hræddur, að hann getur naumast
dulið ótta sinn, ef hann neyðist
til að stíga upp í bil. Ungur dreng-
ur lenti hann i bílslysi, en meidd-
ist þó ekki sjálfur.
Annar vinur minn yarð fyrir
strætisvagni ineð sleðann sinn.
Sleðinn molaðist, en drengurinn
slapp ómeiddur. Eftir þetta var
drengurinn svo ofsalega hræddur
við strætisvagna, að liann þorði
ekki að koma í námunda við þá og
fekkst með engu móti til að fara
inn i strætisvagn með foreldrum
sínum. Leikfélagar hans striddu
honum miskunnarlaust með aum-
ingjaskap hans, en stríðnin hafði
þau ein áhrif, að skelfingin, sem
hann skildi ekki sjálfur, læsti sig
enn þá fastar um hug lians. Það
reyndist miklu erfiðara að losa
hann úr þessum fjötrum en græða
einfalt handleggsbrot.
Þessi dulda orsöík sérstæðrar
hegðunnar verður margri skapgerð
ofraun, svo að einstaklingurinn
leitar í örvæntingu sinni óheppi-
legrar uppbótar. Lítill vinur minn
varð blindur á öðru auga og mjög
skaddaður i andliti eftir slys. Lýti
hans voru svo áberandi, að félag-
ar hans í skólanum höfðu hann
óspart að skotspæni. Þegar á þessu
hafði gengið um skeið, fór að bera
á þjófnaði hjá drengnum. Hann
stal sælgæti, peningum og ýmsum
skrautlegum hlutum. Þegar farið
var að athuga, hvað hann gerði
við þýfið, kom í ljós, að hann gaf
það öðrum drengjum í skólanum,
sýnilega i þeim tilgangi að ávinna
sér hylli þeirra og virðingu.
Kynni mín af þessum dreng
rifjuðu upp fyrir mér atvik frá
sjómcnnskuárunum. Einn félaga
minna á seglskipi, röskur, ungur
maður, var svo sjóhræddur, að
hann varð óverkfær, hvenær sem
stormhrinu gerði, þorði fyrir eng-
an mun undi þiljur, en ríghélt sér
alhlífaður i björgunarbátinn, ná-
fölur og nær mállaus af hræðslu.
Ó, hve dátt við hlógum að honum!
Seinna fekk eg að vita, að hann
hafði bjargazt nauðulega úr sjó-
slysi. En sagan er 'aðeins hálfsögð.
Varla vorum við komnir i höfn,
jiegar Gummi var orðinn drukk-
inn, og þá fór hann ekki dult með
hugrekki sitt og hetjuskap. Með
órum drykkjuvimunnar reyndi
hann að brjóta af sér þá fjötra,
sem tilfinningalcg ofreynsla á
hættustund hafði hneppt hann i.
★
Þetta er allt í
íramför
Framlh. af bls. 19.
asti lærlingur væri við nám i
liinni svonefndu söðlasmíði, en
aðspurður um framtið i hnakka-
smíðinni sagði hann: — Hesta-
notkunin var nauðsyn, en nú er
hún að mestu leyti sport. Þó hef
ég trú á þvi, að menn muni
lengi hafa af þvi ánægju að
leggja við hest á góðri stund, og
meðan svo verður, munu
hnakkasmíðar þurfa að eiga
sér stað. — G.
Tveir af gamla
skólanum
Framh. af bls. 18.
menn, þvi að þeir séu ineiri trassar
en sportmennirnir hér, sem eiga
hesta og stunda útreiðar.
Þegar hnakkasmiðin fór að
þverra á árum styrjaldarinnar síð-
ari, lærði Jón dívanasmíði og fram-
leiðir divana jafnframt sinni gömlu
iðn.
Að koma inn á vinnustofu Jóns
er eins og hverfa inn í annan heim.
Niður umferðarinnar fyrir utan
vegginn megnar tæplega að raska
hinni bjargföstu ró, sem þar ríkir.
Þar lyktar af leðri, og gamlar,
snjáðar masldnur standa uppi við
vcggi. Jón segir verkefnin helzt til
lítil, en hins vegar auglýsir hann
ekki. Það heyrir nýja tímanum til.
Hann borgar 2050 krónur á mánuði
fyrir plássið og „finnst það mesta
bölvað rán“. -jfc-
VIK A N
r
21