Vikan - 03.03.1960, Page 28
Húseigendur
Ð
H
L
I
Ð
G
R
I
N
D
U
R
VÉLVIRICINN
SIGTUN 57
SIMI 3 ; 0 3 2
♦«•♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦♦
artak. Hún sá svo um, að allt innan
húss á býli þeirra væri hrjúft og við
hæfi karlmanna, nema hvað hún kom
safni postulinsmuna, sem hún átti,
fyrir í veggskáp í einni stofunni. Síð-
an hefur enginn mátt hreyfa við því.
í desembermánuði 1941 réðust Jap-
anar á Pearl Harbor. Sá atburður
hafði djúp áhrif i Bandaríkjunum,
og fjöldi fólks bauð sig fram til her-
þjónustu eða hernaðarstarfa. Clark
sneri sér beint til forsetans, en for-
setinn taldi hann mundu vinna ætt-
jörðinni bezt, þar sem hann var. Car-
ole fór hins vegar í ferðalag um
Bandaríkin og seldi stríðsskuldabréf.
Vegna draums, sem Clark hafði
dreymt einhvern tíma, hafði Carole
heitið honum því að ferðast aldrei
með flugvél. Þegar söluferð hennar
var að Ijúka og hún var að lotum
komin af þreytu, braut hún það lof-
orð og tók sér far með flugvél frá
fljótprjonaö
þrinnað
^kœrir litir
Kansas City til Hollywood. Flugvélin
fórst í Nevadafjöllum að kvöldi 16.
janúar 1942 og með henni Carole
Lombard, móðir hennar og blaðafull-
trúi Metro Goldwyn-Mayer kvik-
myndahringsins.
Clark hafði búið sig undir að taka
á móti konu sinni og trylltist af ör-
væntingu, þegar honum var tilkynnt
slysið. Hann flaug tafarlaust i lítilli
einkaflugvél til Las Vegas ásamt
tveimur vinum sinum og tókst með
naumindum að aftra honum að fara
upp í fjöllin með björgunarleiðangr-
inum. Flugvélin reyndist gersamlega
eyðilögð, og hið eina, sem fannst sem
menjar Carole Lombard, voru tvö
eyrnamen með demöntum.
Ciark var um skeið örvita af sorg.
Hann vildi engan félagsskap við
kunningja sína, og það var eingöngu
fyrir skyldurækni hans, að hann lauk
við leikinn í kvikmyndinni Á hverf-
anda hveli. Um leið og þvi var lokið,
gerðist hann flugmaður í hernum,
hækkaði jafnt og þétt i tign fyrir
dirfsku sína og karlmennsku, tók
meðal annars þátt í sprengjuárásun-
um miklu á Þýzkaland, lenti hvað
eftir annað í lifshættu, hlaut heiðurs-
merki flughersins og var orðinn
majór að tign, er styrjöldinni lauk.
Eyrnamen Carole bar hann jafnan
i festi um háls sér sem verndargrip.
Hann naut fádæma vinsælda meðal
félaga sinna, og kvenhyllin var söm
og endranær. Á hverjum degi að
heita mátti var frá því skýrt í blöð-
unum, hvað hann hefðist að, og þeg-
ar hann varð að láta raka af sér
yfirskeggið vegna ákvæða í herlögun-
um, stóðu konur í langri biðröð til
að fá keypt eitt hár úr því við okur-
verði .. .
UMSETINN EKKJUMAÐUR.
Clark Gable hefur alltaf verið mest
fyrir einveruna gefinn. Dýra- og fiski-
veiðar voru honum meir að skapi en
veiðar í næturklúbbum. Þegar hann
kom heim úr styrjöldinni, var hann
þó haldinn svo miklu eirðarleysi, að
hann gat hvergi dvalizt stundinni
lengur. Heima minnti allt hann á
Carole, og því var það, að hann tók
að stunda næturklúbba og skemmti-
staði af miklu kappi, og voru jafnan
léttlyndar fegurðardísir í för með
honum. Paulette Goddard var þá laus
og liðug i bili og leitaði mjög félags
við karlmenn, eftir að hún hafði
skilið við annan eiginmann sinn,
Charlie Chaplin. Hún taldi þó litla
frambúð í daðrinu við Clark, sem
ekki var við eina fjölina felldur, og
giftist svo Burgess Meredith. Um
þetta leyti var Clark hálft. í hvoru
trúlofaður Kay Williams og hélt stöð-
ugri vináttu við hana, enda varð úr
því hjónaband þeirra árið 1955, enda
þótt Clark hefði á því tímabili kvænzt
fjórðu eiginkonu sinni, lafði Sylviu
Ashley.
Lafði þessi hafði áður verið gift
tveimur brezkum aðalsmönnum, en
þriSji eiginmaður hennar var Douglas
Fairbanks eldri, sem hún náði af
Mary Pickford. Og hún hafði ekkert
á móti því að bæta Clark á listann.
Eftir tiltölulega stutt, en að sama
skapi ástríðufullt tilhugalíf, gengu
þau í hjónaband 21. des. 1949. Ham-
ingjusöm urðu þau ekki. Lafðin vildi
helzt halda sig á þeim stöðum, sem
sóttir voru af áhrifamönnum úr viðri
veröld, og það var hápunktur ham-
ingju hennar að leika golf við her-
togann af Windsor, — enda eflaust
skiljanlegt, Þegar þess er gætt, að
hún var fædd og upp alin í fátækra-
hverfum Lundúnaborgar. Þetta þótti
Clark hins vegar hámark alls annars,
brjálæðið og heimskan á baðstöðum
fína fólksins gekk gersamlega fram
af honum. Hann kaus helzt af öllu
að mega sitja með konu sinni við
bál einhvers staðar úti í skógi að
veiðiför lokinni eða hún gæti fylgt
honum á urriðaveiðar. Lafði Sylvia
unni aftur á móti kjölturakka sínum,
sem var frægrar ættar, allt eins mik-
ið og manni sínum, og gátu kunn-
ingjar Clarks ekki annað en haft
gaman af. Loks hataði lafðin heimili
hans, þar sem allt minnti fyrst og
fremst á Carole Lombard, og loks
urðu þau ásátt um að skilja.
Enda þótt Clark héldi alltaf tryggð
við Kay Williams, komst Grace
Kelly um hríð í spilið . ..
HEFÐI EINS GETAÐ
VERIÐ IIÚN.
Þetta var öðru sinni á ævinni, sem
Clark varð ástfanginn fyrir alvöru.
Hann lék þá í kvikmynd, sem tekin
var í Afríku. Þar kunni hann vel
við sig. Við kvikmyndatökuna kynnt-
ist hann ungri, lítt þekktri kvik-
myndadís, Grace Kelly, sem virtist
mjög sama sinnis og hann, enda fóru
þau langar ferðir saman um nágrenn-
ið, en hin fræga Ava Gardner, sem
lék aðalkvenhlutverkið í kvikmynd-
inni, kaus heldur að sofa fram eftir
morgninum. Clark leyndi ekki ást-
hrifni sinni, en loks varð skynsemin
yfirsterkari, — það var þrjátíu ára
aldursmunur á þeim. Grace Kelly lét
sig það hins vegar engu skipta, og
ógerlegt er að segja um, hvernig farið
hefði, ef móðir hennar, sém lesið
hafði slúðursögurnar í blöðunum,
hefði ekki tekið sér flugfar til Afriku.
Hún hafði ákveðið, að það skyldi
eitthvað verða úr dóttur sinni og það
meira en lítið, — hafði í rauninni
ekkert á móti Clark —annað en það,
að hún vildi gjarna eignast tignari
tengdason. Þar með var sá draumur
búinn. Graee Kelly beygði sig fyrir
vilja móður sinnar.
Grace varð siðar dáð kvikmynda-
dís og giftist loks Rainier Monaco-
fursta, er nú tveggja barna móðir,
býr í ástriku hjónabandi og hefur
áreiðanlega steingleymt hinum ótigna
Ciark Gable.
Clark Gable var laus og til alls
búinn enn um hríð. Það var eins og
ástir hans og Grace hefðu yngt hann
upp. Hann virtist hafa gleymt Carole
Lombard að miklu leyti og safnaði að
sér heilli hirð ungra og fagurra
kvenna, sem hann hafði við nána vin-
áttu. Engri þeirra tókst Þó að smeygja
á hann hjúskaparfjötrinum, og þrátt
fyrir allt hélzt alltaf jafnnáin vinátta
með honum og Kay Williams. Um
skeið leit það dálítið alvarlega út í
París. Þar var frönsk fegurðardís,
sem Clark gaf demantshring dýran,
og fegurðardísin hugði þau þar með
vera trúlofuð og tilkynnti það dag-
blöðunum. Clark sleit vináttunni við
hana samstundis. Frakkar ætluðu
vitlausir að verða og kváðu Clark
hafa móðgað þjóðina með því að for-
smá þannig fegurðargyðjuna. ■— E'n
Clark yppti bara öxlum og vann
nýja sigra.
Hann var nú á bezta aldri karl-
manna, rúmlega fimmtugur, og kunni
tökin á lífinu. Hann lék enn í kvik-
myndum, og Það var ljóst, að hann
hafði meira vald yfir kvenþjóðinni
en ef til vill nokkru sinni fyrr. Ef
til vill lumaði lífið enn á einhverju
honum til handa.
KAY WILLIAMS, — FIMMTA
EIGINKONAN.
Kay Williams hafði aldrei tekizt
að ná fyrir alvöru tangarhaldi á
Clark. En nú hafði hún verið gift
sykurkónginum Adolph Sprechels um
hríð, eignazt með honum tvö börn
og skilið við hann. Hún var orðin
fullþroska kona, og nú fyrst virtist
Clark fá í alvöru áhuga á henni. Enn
hélt hann henni þó í óvissu í heilt
ár, áður en hann bað hennar, enda
hafði hún Þá sannað honum, að hún
hafði flest það til að bera, sem hann
krafðist af konum . . . eldað mat við
bál úti í skógi, legið í tjaldi, skipt
um hjól undir bíl, ekið bifhjóli — og
verið samt sem áður alltaf jafn-töfr-
andi fögur og í jafngóðu skapi. Þó
mun það hafa riðið baggamuninn, að
hún gat líka stjórnað dráttarvél, ef
því var að skipta.
Kay hefur síðar sagt frá giftingar-
deginum. Þau létu gefa sig saman i
lítilli kirkju i Nevada, og á leiðinni
þangað lézt Clark vera gamall og
gigtveikur öldungur, dulbúinn, svo að
þau slyppu við blaðasnápana og
fengju að eiga daginn í friði. Það
tókst, en Clark lék af slíkri innlifun,
að Kay ætlaði hvað eftir annað að
skella upp úr af hlátri.
Fyrstu hveitibrauðsdagana dvöldust
þau í Mánadalnum, þeim sem Jack
London gerði frægan. Loks sagði
Clark, að hann léti Kay ráða brúð-
kaupsferðinni.
■— Við förum heim á býlið, svaraði
hún tafarlaust.
Og þar heima hófst hamingjuríkt
fjölskyldulíf. Clark finnst sjálfum, að
hann sé raunverulega faðir tveggja
barna Kay, og þau unna honum og
eru stolt af honum sem eigin föður.
Það urðu Clark ósegjanleg vonbrigði,
er Kay leystist höfn, og veikindi henn-
ar á eftir fengu mikið á hann. Nú
segist hann allt vilja til þess vinna,
að hún haldi heilsunni.
' Sjálfur verður hann líka að vinna
talsvert til að halda sér í þjálfun, á
meðan hann leggur enn stund á
kvikmyndaleik. Hann verður að fara
snemma að hátta, og áður en hann
28
V IK A N