Vikan


Vikan - 23.06.1960, Blaðsíða 3

Vikan - 23.06.1960, Blaðsíða 3
Meiri másik fyvir tnugflbilnðAr stútungskerlivgor „á maður svo að borga böðlinum fyrir hýðingunau spyr „músikalskuru ir löngu, og er hinn fróðlegasti, einkum varð- andi kaup á notuðum bílum. Verð hans veit ég ekki, en hann mun fást í skrifstofu nefndra samtaka. MUN HENNI ÞÁ EKKI VINA VANT. Vikan, Reykjavik. Um leið og ég sendi getraunaseðlana úr Kaup- mannahafnarkeppninni, vil ég nota tækifærið og þakka Vikunni margar ánægjustundir að undanförnu. Ég hef keypt Vikuna í allmörg ár, yfirleitt likað hún vel, en mjög hefur hún auk- ist að fjölbreytni á síðastliðnu ári og mun nú vera með læsilegri blöðum iandsins. Ég sakna þáttana „í aldarspegli“, sem margir voru prýðisgóðir, og vona ég að þeir verði aft- ur uppteknir við fyrstu hentugleika. Vona ég svo að Vikan haldi áfram á þessari braut, og fari batnandi með ári hverju. Mun henni þá ekki vina vant. Með kveðju. Árni M. Jónsson, Skógargötu 17B, Sauðárkróki. Vikan þakkar góðar kveðjur og óskir. Hvað „Aldarspeglinum" við kemur, þá verður hann að staðaldri í blaðinu en með nokkru lengra millibili. Sönnunin er nefnilega sú, að enda þótt úr sé að moða nægu mannvali til að skrifa um, gegnir öðru máli um mannval til að skrifa þá. Það er ekki á allra færi að skrifa slíka pistla og tekur sinn tíma. TAUGAR OG SUMARLEYFI. Kæra Vika. „Lokað vegna sumarleyfa ... lokað vegna sumarleyfa næstu þrjár vikur ...“ Hvernig er það — er ekki hægt að skipuleggja þetta þannig, að enginn þurfi neins við, hvorki að drekka, eta, klæðast né yfirleitt að vera með lífsmarki frá því í byrjun júlimánaðar fram á verzlunar- mannahátið. Þeir, sem keppast við að græða á okkur aðra ellefu mánuði ársins virðast að minnsta kosti gera ráð fyrir, að við getum legið í dái yfir júlímánuðinn. í alvöru talað, þá er þetta vandræðafyrirkomu- lag, sem kemur sér ákaflega illa fyrir fjölda fólks. Mér finnst að stofnanir og fyrirtæki ættu að reyna að veita einhverja lágmarksþjónustu þennan mánuð —• eða eru þeir, sem þjónust- unnar eiga að njóta algerlega réttlausir? Hvern- ig væri að neytendafélögin tækju málið í sínar liendur, það virðist á þeirra vettvangi, og það yrði áreiðanlega vel þegið — af neytendum. Virðingarfyllst. Óánægður. Laukrétt, þetta mál er einmitt á vettvangi neytendasamtakanna. Ég veit það af reynslu, að þessi samstillta sumarleyfislokun ýmissa stofnana gerir mörgum örðugt fyrir, til dæm- is fólki utan af landi, sem hér er á ferð og þarf að njóta ýmissar fyrirgreiðslu í sam- bandi við atvinnurekstur sinn. Það virðist satt að segja lítið vit, að láta starfsemi fyrir- tækja og stofnana leggjast með öllu niður f allt að því heilan mánuð á ári hverju. TILLAGA UM ÚTVARPSÞÁTT. Kæra Vika. Á hverjum vetri eru allskonar hljómplötur kynntar á vegum útvarpsins í ýmsum þáttum, eftir því sem við á og ekkert nema gott við því að segja. En hvers vegna eru ekki kynntar þar erlendar bækur, svo neinu nemi. Mér finnst það ekki síður áríðandi en hljómplötukynning- in. Það mætti hafa tvo slíka þætti — annan fyrir „þyngri“ bókmenntir og hinn fyrir „létt- ari“ eða með svipaðri tilhögun og hljómplötu- þættina — þar sem sagt væri frá nýjum bók- um, höfundum og öðru, sem þvi efni viðkemur. Enda þótt starfsemi útvarpsins virðist, beinlín- is og óbeinlinis, miða mjög að þvi að gera fólk ólæst og hugsunarlaust, sakaði ekki þótt það dulbyggði þann tilgang dálitið á með- an enn er eitthvað af læsu og hugsandi fólki i landinu. Virðingarfyllst. H. Sigurðsson. Tillögunni er hér með komið á framfæri. Ég er ekki bréfritara fyllilega sammála um að þetta sé tilgangur útvarpsins, enda þótt út- varpsstarfsemi hljóti óbeinlínis að leiða til þess, að margir hlustenda lesi minna, en fólk gerði almennt áður en hún hófst. Og það má menntast fyrir fleira en lestur ein- göngu ...

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.