Vikan


Vikan - 23.06.1960, Blaðsíða 18

Vikan - 23.06.1960, Blaðsíða 18
„Hreppstjórinn er húfulaus" Við hittum Erlend Björnsson, hreppstjóra á Vatnsleysu í Biskups- tungum að máli fyrir skömmu. Hann var á Selfossi að láta framkvæma hina árlegu skoðun á jeppanum — yfirvaldið verður auðvitað að ganga á undan með gott fordæmi. Nú vor- um við ekki allskostar klárir á bví, hversu hreppstjóratign væri mikií tign og báðum um skilgreiningu. Við sáum, að Erlendur var ekkert áber- andi drjúgur yfir tigninni og fékk sér vel í nefið áður en hann svaraði. — Ja, hreppstjórinn er eiginlega fulltrúi sýslumannsins í hreppnum. — Hann er sýslumannsins bífal- ingsmaður og prófoss, eða hvað? — Ég er búinn að svara þessu, við erum fyrir sýslumennina til Þess að innheimta skatta fyrir rikið, annast uppboð og þessháttar. — Er hreppstjórinn ekki eins kon- ar lögreglustjóri í hreppnum? — Það má kannske segja að svo sé. — Þú átt að halda uppi lögum og reglu. — Það er víst. — Þú hefur auðvitað húfu, þótt þú berir hana ekki hér 1 öðrum sóknum. — Ónei, húfulaus hef ég verið hingað til. Ég hef hatt eins og Þú sérð. —■ Það er þá eins og segir í hin- um hugnæma danslagatexta: „Hrepp- stjórinn er húfulaus og oddvitinn er ekki laus við rúmbu og rokk“. En hvað gerir þú, þegar um lögbrot er að ræða. Þú ananst Þá handtökur. — Það hefur nú ekki komið til með það, enda hef ég engin handjárn og yfirleitt ekkert bevis um þessa stöðu. — Þú verður bara að notast við andlitið. Þeir þekkja það í Biskups- tungunum, er það ekki? — Jú, ætli það ekki. Við skulum vona það. — Þú verður auðvitað að annast lögtök fyrir ógreiddum sköttum. — Síðan ég varð hreppstjóri í Bisk- upstungum árið 1934, hefur aldrei þurft að taka lögtak. —■ Jæja, þetta eru liklega einhverj- ir löghlýðnustu menn í heiminum og þótt víðar væri leitað. Þú veizt þá varla hvað lögtak er? — Nei, og kæri mig ekki um að vita það. — Það hlýtur að vera mikið verk að innheimta skattana í svona víð- áttumikilli sveit. Hvað eru margir búendur í hreppnum? —■ Þeir eru 82 nú í svipinn. Ann- ars er það ekki mesta verkið að inn- heimta. E'n við aðstoðum við skatt- framtölin þá sem vilja og það nota sér yfirleitt allir. Það er feiknar verk get ég sagt þér. — Hvað fer langur tími í það? — Meira en mánuður, tólf til fjórtán timar á dag. —• Einhverjir .hljóta að telja fram h jálparlaust ? —■ Þeir eru sárafáir. Menn þurfa yfirleitt að hafa gömlu skýrslurnar til hliðsjónar. — Geta þeir ekki tekið afrit. —■ Jú, en þeir gera það bara ekki. — Það hljóta að vera grimmileg laun fyrir svona starf. — Það mætti halda það. Sannleik- urinn er nú hinsvegar sá, að það er ekki viðlit að lifa af laununum og ætti það þó að vera heldur betra hjá mér en ýmsum öðrum, þar sem laun- in fara eftir fólksfjölda í hreppnum. Það er rétt að híran dugir fyrir neftóbaki og búið. jr — Leiðinlegt með hann þennan, hann drakk til að gleyma og nú er hann búinn að gleyma hver hann er, hvar hann býr og hverju hann ætlaði að gleyma. Sópar göturnar Niðri á horni hjá Árna B. sjáum við gamlan mann, sem er að sópa gangstéttina og gerir það svo vel að það er eins og það sé stofugólf. Göngum við til hans og bjóðum góð- an dag. — Góðan dag! — E'r þetta ekki frekar rólegt starf? —• Jú, enda flestir, sem við þetta vinna ekki lengur til erfiðisvinnu fallnir. — Ert þú nýbyrjaður? — Já, ég var á spítala og fór svo í þetta þegar ég losnaði. Ég hef nú farið mér heldur hratt við þetta, því ég hef verið svo eftir mig eftir dag- inn. —• Þú hefur liklega lagt gjörfa hönd á margt um ævina? — Ojá, ég hef borið margt við. Ég hef verið bóndi, sjómaður, vegavinnu- maður og múrari, þó ólærður. — Og hvað heitir nú maðurinn? — Ég heiti Magnús Jakobsson, og á engan alnafna á landinu eftir því sem ég hef komizt næst, ég hef gáð bæði í síma- og útsvarsskrána. Nú er strætisvagninn okkar að fara svo við kveðjum í hasti og hlaupum. Fer eftir kvikmyndunum Inni á matstofu Austurbæjar er feiknaös — það er um miðjan matar- tímann að við kíkjum þar inn til að fá okkur að borða. Við komumst þó ekki nema rétt inn úr dyrunum, því þangað nær biðröðin — en afgreiðsl- an gengur furðufljótt og við fáum matinn vonbráðar. Þarna hefur sem sagt verið tekið upp nýstárlegt fyrir- komulag í afgreiösluháttum, sem er mjög þægilegt jafnt fyrir gestina sem starfsfólkið. Gestirnar ganga í röð fram með löngu afgreiðsluborði þar sem þeir geta afgreitt sig sjálfir með ýmsar matartegundir —• allar nema heita matinn, hann afhenda stúlkur með liprum og hröðum handtökum. Við enda borðsins fer svo greiðsla fram, og síðan getur gesturinn valið sér borð I salnum til að snæða við og farið svo. Enginn þarf að bíða eftir neinu — og þannig á það auð- vitað að vera. E'innig er það mjög hentugt, að matsalan er ekki miðuð við heila og hálfa skammta, heldur getur hver gestur valið sér skammt við sitt hæfi. Við hittum þarna að máli veitingamanninn sjálfan, sem rekur Matstofuna, og hefur gert þar þessar breytingar, Daníel Pétursson. — Það er aldeilis margt um mann- inn hérna hjá Þér í dag? ■—• Já, síðan þetta nýja fyrirkomu- lag komst á, hefur aðsóknin sífellt verið að aukast. Þetta er mjög Þægi- leg tilhögun fyrir íólk, sem hefur naumt matarhlé og ekki tíma til þess að sitja lengi við borð og bíða eftir að afgreiðsludama komi og taki pönt- un, bíða síðan eftir að hún komi með matinn og svo eftir þvi að fá að borga. — Hvað rúmast margir hérna í sæti? — Um 130 manns. En hér er oft allt að því þrísetið milli 12 og 1, þann- ig að á þessum klukkutíma geta borðað hér um 300 manns. — Sparast margt starfsfólk með þessari afgreiðslutilhögun? — Það er ekki mikill munur. En með þessu lagi nýtast starfskraft- arnir betur. — Hvað hefurðu margt fólk í vinnu hérna? — Það er um átján — mest allt stúlkur. — ETrtu með einhverjar fleiri nýj- ungar á döfinni til að bæta af- greiðsluhættina ? — Það væri Þá helzt þar til gerðir vagnar til nota fyrir afgreiðslustúlk- urnar til að flýta fyrir hreinsun á borðunum. Og svo langar mig til að leggja teppi hérna á gólfin. — Er aðaltrafikkin hér um há- degisbilið? — Já, en einnig er mikið að gera á öðrum matmálstímum, og oft kem- ur hér fjöldi manns í kvöldkaffi á leiðinni heim úr kvikmyndahúsunum. Einkum ef fólkið er í góðu skapi — kvikmyndin sem það var að horfa á verið góð. — Svo þú þyrftir að reka kvik- myndahús líka, ef vel ætti að vera? — Já, en ætli maður láti sér ekki nægja að hengja hérna upp sjónvarps- tæki — ef nokkur má þá vera að því að glápa á það. — Hefurðu verið lengi í þessum „bransa"? — Já, það má segja að ég sé alinn upp í honum, en annars er ég að von- ast til að fá flugmanns-„djobb“ ein- hverntíma á næstunni. — Nú, ertu flugmaður líka? — Ja — hugurinn hefur alltaf stefnt upp í loftið og í fyrra tók ég atvinnuflugmannspróf úti í Sviss. — Og heldurðu að vonin rætist bráðlega? — Ég veit ekki. Flugtæknin er óð- um að breytast og það endar líklega með því að öllu verður stjórnað frá jörðu — og allir flugmenn verða óþarfir. Ingemar Það hefur margt drifið á daga sænska boxarans Ingemar Johanson, síðan hann rotaði Floyd Patterson i fyrrasumar og hreppti þar með heimsmeistaratign i þessari ljótu íþrótt. Það hefur komið i ljós, að Ingemar er margt vel gefið og frægð hans er ekki í neinni hættu, enda þótt hann legði hnefaleikana á hilluna. Hann á umfangsmikil fyrirtæki í Sví- þjóð, en hefur sjálfur í hyggju að flytjast búferlum til Sviss af skatta- ástæðum eins og svo margir auðugir menn, sem finnst ásælni ríkisins i eigur sínar full mikil. Nú hefur Joha’j'ien einnig numið land í kvik- myndíheiminum og jafnvel sungið inn á plötur. Hér á myndinni er hann staddýr I New York og horfir upp eftir 'lmpire State byggingunni, sem er hæst í heiminum. Fyrir 1.30 árum voru kvenbúningar mjög fyrirferðarmiklir og þannig leit rokkið út í Þá daga. Daman verður að fara mjög varlega til þess að flækj- ast ekki í földunum, sem dragast al- veg niður að gólfi og standa langt út í loftið. Það eru hinsvegar mun meiri möguleikar fyrir herrann að hreyfa sig liðlega, en þetta verða í rauninni sólódansar, því hann kemst ekki með nokkru móti nærri döm- unni. I vellystingum á Rivierunni Curd Júrgens hefur náð geysimiklum vinsældum í kvikmyndum á síðari árum og leikur oftast einhvern eldri mektarmann, sem konur falla fyrir í stríðum straumum. Jurgens er Þjóðverji, en hefur leikið í ame- rískum kvikmyndum engu að síður, og mun sennilega vera eftirsóttasti og launahæsti maður fyrir hjartaknús- arahlutverk. Þeir sem vilja teljast menn með mönnum í kvikmyndaiönaði Evrópu búa flestir á Blámaströnd Suður-Frakklands og þar á Júrgens einnig sinn mekt- argarð. Eins og sjá má af myndinni, býr hann rík- mannlega, en staðurinn sem hann býr á heitir St. Jean Cap Ferrat — ef ykkur skyldi langa til þess að heim- sækja hann. Júrgens hefur ekki verið við eina fjölina felldur í einkalífi sínu og ástamálum — sem ekki er von með slíka fyrirmynd í lauslæti. — Hann giftist ný- verið franskri sýningarstúlku, sem heitir Simone og hún er með honum á meðfylgjandi myndum. Curd Jiirgens og frú á óðalinu á Blámaströnd „Langibarinn" með nýju sniði Við Aðalstræti hér í bæ hefir í mörg ár starfað veitingastaður sem þekktastur hefir verið undir nafninu „langibarinn". Þessi veitingastaður hefur löngum haft á sér misjafnt orð og gestir sem töldu sig vanda að virðingu sinni sneiddu frekar þar hjá. En nýlega var starfrækslu „langa- Carmen í karfanum Við erum staddir vestur í Fiskiðju- veri Bæjarútgerðarinnar — þar er ys og þys, vélaskrölt og alls konar hávaði, og fjöldinn allur af stúlkum önnum kafinn við flökun og pökkun á fiski. Við gefum okkur á tal við nokkrar, en þær svara fáu. enda allt kerfið farið úr skorðum, ef þær halda að sér höndum augnablik. Frammi við dyr komum við auga á unga stúlku, sem virðist eiga smáhlé frá vinnunni — okkur finnst við þekkja andlitið, svo við göngum til hennar og sjáum þá að þetta er hinn kunna danserinna Carmen Bonich. barsins" hætt og húsnæðið tekið á leigu af ungum matsveini, Þorsteini Viggósyni. Þorsteinn gerði nokkrar breytingar á innréttingu húsnæðisins og nú fyrir skömmu opnaði hann þarna snotra smurbrauðsstofu og hef- ur á boðstólum margs konar veiting- ar, fyrst og fremst ýmsa smurbrauðs- rétti og súpur en einnig venjulegar kaffiveitingar. Við litum inn á „langabarinn" sál- uga núna nýlega og heilsuðum upp á Þorstein. — Hefur þetta ekki gengið ágæt- lega hjá þér? — Jú, framar öllum vonum. Þetta er alveg sérstaklega góður staður í bænum til að reka veitingastofu á, og eftir að fólk áttaði sig á hinum ýmsu breytingum, sem gerðar voru hér, hefur „trafikkin" alltaf verið að aukast. •— Eru nokkur brögð að því að menn reyni að „blanda" hérna við borðin? — Fyrst í stað kom það oft fyrir að „gamlir kúnnar" komu í heimsókn og ætluðu að gera sig heimakomna og njóta fyrra frjálsræðis, en þeim var vísað kurteislega héðan út og beðnir að finna einhvern annan samastað fyrir fundi sína. — Hefurðu hugsað þér að færa eitthvað út kvíarnar — setja upp fleiri veitingastofur? — Það er nú margt að brjótast um í kollinum á mér, en ekkert komið í svo fastar skorður, að hægt sé um það að tala að svo stöddu. — Sæl, við ætluðum ekki að þekkja þig í þessari múnderingu. — Já, það yrði nú lítið úr manni hérna i dansbúningi og á balletskóm. —■ Af hverju ert þú ekki að vinna eins og hinar? — Við vinnum í skorpum, erum 40 mínútur að í einu en eigum svo frí á milli. — Hvað gerirðu hérna? — Ég er við flökunarvélina. — Og er gaman? — Ja — þetta er mjög vel borgað. Ekki veitir manni af aurunum. — Ertu að safna? — Ég ætla að reyna að komast út í sumar — á dansskóla í Kaupmanna- höfn, þar sem ég var í fyrrasumar. — Jæja, Carmen. Megum við ekki taka mynd af þér? — Nei, ég held nú ekki ... þetta dugir ekki, ég þarf að fara að vinna. Svona er það r I San Diego 1 hinu sólheita San Diego hefur við- ckiptavinurinn ávallt á réttu að standa og ef hann vill fá hádegismat- inn út á baðströndina, þá er ekki nema sjálfsagður hlutur, að þjónninn á hótelinu skreppi þangað á hjóli með matinn á höfðinu eða i uppréttri hendi. Samkeppnin milli lúxushótel- anna er svo hörð, að þjónustan verð- ur að vera óaðfinnanleg. VIKAN yiKAN 19

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.