Vikan


Vikan - 23.06.1960, Blaðsíða 6

Vikan - 23.06.1960, Blaðsíða 6
ín.tzh,,4/tcí (U'íZ Hver verður Hér er Sigrún á hvíta sloppnum í Holts Apóteki og raðar í hillurnar alls konar nauðsynjum, allt frá brjóstsviðatöflum og vítamínum til vellyktandi sprauta, sem eyða vondri lykt. Sigrún segist ekki fara mjög oft út, og þegar hún er heima, tekur hún í „strammann" og saumar út eins og góðri heimasætu sæmir. Hún situr daglangt i Holts Apóteki og vigtar meðul eftir tilvisunum lyfjafræðinga, límir á verðmiða og raðar í skúffur, — ekki fyrir þung- bæra skyldu, heldur af lifandi áhuga, því að hún ætlar að verða að- stoðarstúlka lyfjafræðinga. En þeg- ar klukkan er sex, fer hún úr hvíta sloppnum og á daginn fyrir sjálfa sig, það sem eftir er. Hún heitir Sigrún Kristjánsdótt- ir og er sú þriðja í röðinni af þeim fimm stúlkum, sem keppa um titil- inn „Sumarstúlka Vikunnar 1960“. Sigrún á heima á Skúlagötu 60. Við tókum okkur til eina kvöldstund, þegar sólin glampaði á flóann, og heimsóttum hana. — Hefur þú slitið barnsskónum hér á Skúlagötunni? spurðum við. — Ekki get ég sagt það. Ég fædd- ist i Kaupmannahöfn sama árið og lýðveldið var stofnað, en fluttist hingað tæpra tveggja ára og barns- skónum hef ég slitið í Smálöndun- um, á Holtsgötunni, og nú síðast höf- um við átt heima hér á Skúlagöt- unni. — Bjuggu þau í Kaupmannahöfn, foreldrar þínir? — Þau bjuggu þar á stríðsárun- um, en fluttust síðan heim. — Þú hefur kannski verið í sveit? — Það er nú lítið, — ég var á Hrafnabjörgum í Arnarfirði þegar ég var 12 ára eða svo. Það eru mín einustu kynni af sveitalífi. Það má Framhald á bls. 33. Sigrún á heima á Skúlagötu 60 — á ''fstu hæð. Þaðan er mjög gott út- sýni, og það er freistandi að dvelj- ast á svölunum, þegar vor er í loft- inu og kvöldin eru björt. Allt er gott ef endirinn er góður segir Sigrún Kristjánsdóttir sem er á forsíðu blaðsins og keppir um ofangreindan titil. Hér hafið þið viðtal við ^igrúnu— Hún var að koma heim úr apótek- inu, þar sem hún vinnur og við báðum hana að hinkra ögn áður en hún færi úr kápunni — og það var auðvitað velkomið. Hún var kölluð í símann, og það var einhver að bjóða henni út. Hún tók boðinu með brosi, og við skulum vona, að það hafi verið sá rétti, sem hélt á tólinu hinum megin.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.