Vikan


Vikan - 23.06.1960, Blaðsíða 11

Vikan - 23.06.1960, Blaðsíða 11
Klukkan er fjögur að morgni. Hjá sumum er dagurinn að byrja, en aðrir eru nú fyrst að ganga til hvílu, og ljósadýrð næturlífsins í Monte Carlo smádofnar. í ljósaskiptunum niður strandgötuna til Théoule. Enski lávarðurinn Brougham leit yfir landslag, sem á ýmsan hátt minnti á Afríku. Nokkrir pálmar á víð og dreif, virkið Le Suquet, um 50 hús, — þetta myndaði litið þorp, Cannes. Serkir höfðu farið þar um og sjó- ræningjar á Miðjarðarhafi sjálfsagt líka. Lord Brougham hafði viðdvöl í eina gistihúsinu i Cannes, þar sem borin var fyrir hann beina- laus fiskisúpa. Það var ekki aðeins þessi ó- gleymanlega súpa, heldur líka sjórinn og sól- skinið, sem komu honum til að senda vinum og stéttarbræðrum sínum i London þessi skila- boð: „Komið hingað, því að ekkert er til dá- samlegra en þetta.“ Þannig uppgötvaðist ströndin góða. Nokkrum árum síðar kom Viktoría Eng- iandsdrottning til Nizza, og seinna sendi hún son sinn, prinsinn af Wales, þangað, sem með ástleitnu augnaráði og köflóttum fötunum lagði alla ströndina að fótum sér, — en þá var grunnurinn að „bandalaginu hjartanlega" ekki enn lagður. Loks komu svo Rússarnir, þvi að keisari þeirra var tengdur ensku konungsfjöl- skyldunni. Með þeim kom vodkað og þung- lyndið, öll spilamennskan, örvilnunin og sjálfs- morðin, en þetta leiddi til rómantíska tímabils- ins i sögu frönsku Rivieru. En ströndin hét þá ekki Góte d‘ Azur. Það nafn bjó ómerkilegur og nú gleymdur rithöf- undur til, en hann hafði skrifað bók, sem aldrei var lesin, og nefndi hana þessu nafni. Árin hafa liðið og Bláströndin er nú þéttsetin fólki, þakin byggingum, alþjóðleg og þrungin villtri lífsnautn. Hún liggur á suðurströnd Frakklands og er um 120 km löng strandræma. Hún á sín rikra manna hverfi, sínar hallir, sína listamenn, betl- ara, spámenn og milljónara. Hún lyftir stjörn- um sínum upp í hæstu hæðir. Sumar þeirra dala fljótlega, en öðrum tekst að halda sér uppi á tindinum. Allan ársins hring er loftið mettað blómailm, en á sumrin kafnar hann í benzínsvækju úr ótölulegum grúa farartækja. Þetta er eitt ríki, en héruð þess bera nöfnin: Saint-Tropez, Sainte-Maxime, Saint-Raphael, Cannes, Villefranche, Beaulieu, Monte Carlo og Menton. Á þessari 120 km vegalengd er ekki til óbyggður blettur. Þar er hvergi svo trjá- lundur, að ekki sé að baki hans einhver bygg- ing, og ekki einn kílómetri lands, sem ekki er annaðhvort úthlutað eða seldur eða a. m. k. til sölu. Hér blómgast braskið. En hér eru líka Var og Les Alpes-Maritimes, snauðustu héruð Frakklands. Þar eru hvorki málmar né járniðnaður. Kornakrar þeirra og beitilönd eru hlálega rýr, og hráefni þeirra hafa ekkert gildi fyrir þjóðarbúið. Hermenn þaðan hafa aldrei komizt i úrvalshersveitir. 1 janúar tekur það minna en tvo tíma að aka þessa 120 km vegalengd, en heppnin þarf sann- arlega að vera með, ef takast á að komast þetta á 6 tímum á tímabilinu frá 1. júlí til 10. sept- ember. Á tveimur timum má fljúga frá London til Nizza, en á aðal-ferðamannatímabilinu tekur það þrjá klukkutíma að komast endanna á milli i Nizza. Á hverjum klukkutíma fara fleiri ferðamenn i gegnum Nizza en yfir flug- völlinn i Róm, og fleiri ferðamenn gista hótel- in þar en öll önnur gistihús í Frakklandi sam- anlagt, ef frá er talin París. Cöte d‘ Azur er það „ríki“ Frakklands, sem Framhald á bls. 28. Þegar kvöldskemmtanirnar hefjast, er bezti tími kaffihúsanna. Úr öllum áttum hljómar franska, þýzka, enska og hollenzka. Það er eins og allt lífið sé hamingjuríkt sumarfrí. Allir njóta hins rólega iðjuleysis, hlýja lofts- ins og litskrúðugs götulífsins. Þegar ferðamannastraumurinn flæðir um göturnar, draga fiskimennirnir í Saint Tropez sig í hlé út á bryggjuna. Meðan netin þorna, bera þeir saman aflann, skiptast á fréttum, og fyndnin flýgur um háttalag ferðamannanna.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.