Vikan - 23.06.1960, Blaðsíða 5
Pétur Pálss*n.
Vottur:
Lóa Jónsdóttir.
A. A. yfirlögregluþj.
Þá mœtti Sveinn Sveinsson skrifstol'umaður,
Barmahlíð 88, f. 22/8 1931 á ísafirði.
Mætti skýrir svo frá, áminntur um sannsögli:
„Ég kom i heildverzlun Karls og Kristjáns í
gær kl. rúmlega 17.00. Rétt á eftir mér kom
Jón Jónsson með tvær flöskur af viski og eina
af sénever, sem hann hafði verið sendur eftir
i Áfengisverzlunina. Jón fór svo, en kom aftur
og var svo fram að kl. 19.00, en þá fórum við
báðir i mat, en komuin svo aftur. Ivl. 21.00 fór
ég alfarinn, og held ég, að Jón hafi verið eftir.
Ég tók ekki eftir, hvort Jón drakk vin þann
tíma, sem við vorum saman.“
Uppl. játað rétt.
Sveinn Sveinsson.
A. A. yfirlögregluþj.
Þá mætti Guðmundur Guðmundsson verzl.,
Langavegi 29, f. 3/8 1927 i Reykjavík.
Mætti skýrir svo frá, áminntur um sannsögli:
„Ég fór á Langaveg 27 eftir vinnu í gær. Þar
var vín haft um hönd, og drakk ég eitthvað eins
og hinir. Ég fór þaðan um kl. 19.00 og kom aftur
kl. 20.00. Þá var Jón Jónsson þar. Ég fór svo kl.
21.00 og þá heim til mín. Nokkru seinna kom
Pétur Pálsson yfir til min og stúlka með honum,
sem ég veit ekki, hvað heitir. Jón Jónsson kom
stuttu síðar. Pétur kom með eina vínflösku með
sér, og var drukkið eitthvað úr henni. Ég man
ekki eftir, að ég sæi Jón drekka, á meðan við
vorum saman, en ég var orðinn þéttdrukkinn og
þvi ekki að marka það, þótt ég tæki ekki eftir
einstökum atburðum eða muni ekki eftir þeim.
Ég býst við, *í það hafi vsrið um kl. 23.W, im
Jón fór, og varð þá stúlkan samferða honum. Ég
tók þá ekki eftir, hvort Sveinn var undir áhrif-
um vins eða ekki.“
Uppl. játað rétt.
Guðmundur Guðmundssau.
A. A. yfirlögrþj.
Kl. 15.25.
Mætti þá aftur Jón Jónsson.
Mætti skýrir svo frá: „Ég man eftir, að Þórdís
Snorradóttir, Austurhlið 125, var á Langavegi
29 í gærkvöldi, er ég var þar. Eg man ekki eftir,
að við Þórdís yrðum sainferða út af Langavegi
29, en það höfum við allavega orðið, því að ég
man eftir mér með henni í leigubíl áleiðis heim
til hennar. Ég veit ekki, hvort okkar borgaði
bilinn. Ég fór ekki með Þórdisi inn og fór með
bílnum aftur niður í bæ. Ég man ekki, hvar ég
fór úr bilnum, en minnir þó, að ég hafi farið úr
honum á Laugavegi, en hvar, man ég ekki. Ég
veit ekki númerið á bílnum og þekkti ekki bll-
stjórann með nafni. Ég veit ekki heldur, hvort
hringt var á bilinn eða hann tekinn á götunni.
Ég man ekki eftir að hafa tekið bílinn, sem
ég er sakaður um að hafa tekið, og ég man ekk-
ert eftir akstrinum suður í Hraun. Aftur á móti
dreymdi mig það i nótt, eftir að ég sofnaði í
fangelsinu i Hafnarfirði, að ég hefði verið með
einhverjum tveimur mönnum í bíl. Mig dreymdi,
að ég var á fleygiferð og þessir menn svifu í
kringum mig. Mér fannsl þeir aka mér og stjórna
öllu. Saga sú, sem ég sagði i rnorgun, er því
L-kki rétt, heldur afleiðing af draumarugli minu.
Mér fannst ég sjá þessa svipi fyrir mér.
Ég man ekkert eftir, þegar bíllinn fór út af
veginum. Ég mao ekki fyrr eftir ipér en ég datt
aftur ýfir mig niður i hráunpöll. Þá vár íg ko»-
inu langl frá bilnum og skólaus á öðrum fseti,
og ég vissi ekkert, hvar vegurinn var. Svo sá
ég bílljós og gat þá áttað mig á, hvar vegurinn
var, og hélt í áttina þangað. Þá fannst mér
mennirnir tveir vera horfnir, en ég sá hvíta
slæðu, sem hélt mér uppi og togaði mig áfram.
Mér er orðið ljóst, að ég hef rænt umræddum
fólksbíl, þó að ég muni ekki eftir því og skilji
það elcki sjálfur. Svoleiðis er mjög langt frá
mér, þegar ég er allsgáður. Ég hef ekki orðið
drukkinn í þrjá mánuði fyrr en i gærkvöldi, og
ég hafði ætlað mér að hætta fyrir fullt og fast,
en gætti ekki að mér í gær. Ég var því leiður
í skapi, og ég fann, að ég varð meira og meira
drukkinn. Mér hefur sennilega þótt það leitt, að
Þórdis sá mig drukkinn. Ég man þó ekki eftir,
að hún hafi látið mig skilja það á sér, að henni
þætti þetta miður, en sennilega hefur það verið,
þó að ég muni ekki eftir þvi.
Ég hef ökuskírteini nr. 18852, útgefið i Reykja-
vík 6. okt. 1954 og heimilar það mér að stýra
bifreið. Siðan ég fékk prófið, hefi ég ekið
inikið."
Uppl. játað rétt.
Jón Jónsson.
Vottur:
Sveinborg Jóhannsdóttir.
Yfirheyrslunni lokið kl. 16.10.
A. A. yfirlögregluþj.
Þá mætti Þórdis Snorradóttir nemandi, Aust-
urhlíð 125, f. 24/5 1938 á Hvammstanga. Áminnt
um sannsögli:
Mætta skýrir svo frá: „Ég hef þekkt Jón Jóns-
son i tvo mánuði, og á þeim tíma hef ég ekki
séð hann drukkinn fyrr en í gærkvöldi. Við
ættuðum að hittast i gœrkvöldi Langavegi 29, en
Framhald á bls. 26.
5