Vikan - 23.06.1960, Page 34
Tjarnarbíó sýnir:
Dóttir
hershöfðingjans
Ný amerísk litmynd
tekin f Technirama
Á átjándu öld er Rússlandi stjórnað af hinni konung-
legu hirð Katrínar II. (Viveca Lindfors), sem lifir
I óhófi og munaði í Pétursborg. (1). En máttur stóra
Rússlands er brotinn á bak aftur. af stöðugum bænda-
uppreisnum. Peter Griniev (Goffrey Horne) er á leið
til virkisins Bjelogorsk, sem er einangraður staður á
hinum freðnu steppum. 1 fylgd með Peter er hinn
tryggi Þjónn hans Savelic (Oskar Homolka), á hinni
löngu ferð sinni, hitta þeir háifkalinn ferðamann.
Þrátt fyrir ruddamennsku hans, tekur Peter ferða-
manninn upp í sleða sinn, maðurinn hefur mikil á-
hrif á Peter með tign sinni og lífsþrótti. (2) Peter
sér að Bjelogorsk er ekkert nema þyrping af ömur-
legum hermannaskálum. Yfirmaður er Miranov
(Robert Keith) hershöfðingi, sem býr þarna ásamt
konu sinni Vassilissa (Agnes Moorehead) og dóttur
þeirra Masha (Silvana Magano). Peter verður hrif-
inn af fegurð Masha, sem hann verður ástfanginn
af. (3) Peter skrifar föður sinum til þess að fá sam-
þykki hans til að giftast Masha, en Griniev greifi
(Finlay Currie) neitar. Kósakkar og her Bachiri
ráðast á og sigra virkið Bjelogorsk (4) og er árásinni
stjórnað af Pugachev (Van Heflin) og nefnir hann
sig sjálfur Peter III. keisara. Miranov hershöfðingi
kona hans og margir liðsforingjar eru hengdir, þeg-
ar þau neita að viðurkenna keisarann, en Pugachev
hlífir Peter, þekkir hann þar aftur hinn dularfulla
ferðalang sem bjargaði lífi hans. Pugachev sér nú
um að Peter og þjónn hans Savalic geti farið frá
Bjelogorsk og komast til virkisins við Ormenburg.
Peter gefur skýrslu um uppreisnina, en fregnin er
ekki tekin alvarlega. Vonsviknir af aðgerðarleysi
hershöfðingjans í Oremburg, fara Peter og Savelic úr
virkinu og eru þeir auglýstir sem liðhlaupar. Peter
fer aftur til Bjelogorsk til þess að frelsa Masha og
eru þau gefin saman með samþykki Pugachev. (5)
Katrín II. sendir Subarov yfirhershöfðingja í nafni
konunglega hersins til að brjóta uppreisnina á bak
aftur. (6) Pugachev er tekinn höndum og hann flutt-
ur sem fangi til Pétursborgar. Peter er á meðal fang-
anna og er hann dæmdur til dauða sem landráða-
maður. Katrín drottning ákveður að hafa sjálf tal af
Pugachev í fangelsinu (7), en þar skýrir hann henni
frá hollustu Peters. 1 dögun er Pugachev leiddur til
gálgans. Peter fær frelsi og verður mikill fagnaðar-
fundur milli hans og Masha.
KRISTJÁN Ó. SKAGFJÖRÐ H.F.
Tryggvagötu 4. — Sími 24120.
AUGLÝSIR
ÚRVALS VEIÐARFÆRI
FRÁ J. & W. STUART LIMITED, ESK MILLS, MUSSEL-
BURGH. STOFNAÐ 1812.
N Y L O N þorskanet, ýsunet, laxanet, silgungsnet, kolanet, selanet.
STUART'S NYLON síldarnætur eru viðurkenndar sem beztu veiðarfæri
er íslenzkir fiskimenn hafi notað við síldveiðar.
STUART'S „HERCULES" Síldarnet hafa á undanförnum árum
reynzt afburða veiðin og endingargóð.