Vikan


Vikan - 15.09.1960, Page 4

Vikan - 15.09.1960, Page 4
Þú tekur þér far út í himingeiminn og TjtHNrl STENOLW Tvíburabræðurnir voru fertugir, þegar annar þeirra fór út í geiminn með fotoneldflaug. Þegar hann kom aftur var bróðir hans orðinn fjörutíu árum eldri, sjálfur hafði hann aðeins elzt um ellefu ár. Þið munið eftir vorinu 1944. Þjóðverjar hörfuðu á öllum vígstöðv- um, bandaríski herinn sigraði Róm og rússneskur herafli mjakaði austurvíglínunni stöðugt vestar. Þann 6. júní hófst innrásin i Normandi. Fólk sagði hvort við annað, að nú væru endalok stríðsins ekki langt undan, þar væri í mesta lagi um nokkrar vikur að ræða. Én þá gerðist stórviðburður. Þann 14. júni byrjaði V-1 sprengjum að rigna yfir England, og tæpum þremur mánuðum síðar hinum langtum stærri V-2 flugskeytum. Upplýsingaþjónusta bandamanna hafði að vísu haft veður af þessu, en fyrir alla aðra kom þetta sem reiðar- slag. Um það bil einn þriðja hluta af hinum seindrægu V-1 sprengjum var hægt að gera skaðlausan, áður en þær komust yfir stórborgirnar. En gegn V-2 var ekki hægt að koma við neinni vörn — stór hluti af London fór í rúst af beirra völdum. Frá næstum hundrað kílómetra hæð þeyttust þau að marki með 4000 km. hraða á klukkutíma. Það er miklu hraðara en hljóðið, sprengingin koin þessvegna öllum að óvörum og olli hræðilegu tjóni. Þýzku flugskeytavopnin voru árangur af tíu ára leyni- legum tilraunum, og vöktu í þá daga stórkostlega eftir- tekt. Nú eru þau löngu komin á hernaðarsöfn. V-2 flugskeytið entist aðeins 300 km. Ameríka og Sovjetríkin eiga núna fjarstýrð flugskeytí, sem fara í kringum hálfa jörðina. Frá amer- íska tilraunasvæðinu við Capre Canaveral þeytast tunglskeytin upp í loftið með 40000 km. hraða á klukkustund. Stórkostlegir framtíðarmöguleikar skapast við þetta. Þar sem svo ótrúiegar framfarir eru mögulegar á aðeins 15 árum, hvað getur þá ekki skeð á næstu 15 árum? Það líður varla sá dagur, að ekki fréttist um nýjar uppfinningar. Geimferðasögurnar, nútíma ævintýrin um ferðalög til annarra hnatta, geta varla lengur komið með neitt nýtt, því veruleikinn og hugmynda- heimurinn nálgast meira og meira. Sputnik og Explorer voru hin fyrstu geimför gerð af mannahöndum. Fleiri og stærri munu sigla í kjölfar þeirra, og að lokum munu menn- irnir ferðast á þeim slóðum, sem guðirnir höfðu áður einkarétt á. Geimskipin eru þegar til — á stærstu tilraunastofum stórveldanna. Og með þeim stórkostlega hraða, sem tækninni fleygir fram, er hugsan- legt að djörfustu framtíðaráætlanir geti ^orðið að veruleika þegar á okkar dögum. Þegar talað er um okkar daga, er rétt að gera sér ljóst, að við verð- um að láta okkur nægja að heimsækja hnettina í sólkerfinu okkar, eða skyldi maðurinn á sinni stuttu ævi, samanborið við aldur alheimsins, geta farið hvaða vegalengd sem er út í geiminn — út að yztu mörkum? 'Þessa spurningu, sem er frekar liffræðilegs eðlis en tæknilegs, glíma lærðustu menn þegar við. Sumir svara henni játandi, en aðrir ekki. En á meðan sérfræðing- arnir deila, ætlum við að reyna að gefa ykkur hugmynd um hin fjarstæðukenndu vandamál, sem eru á dagskrá, a. m. k. i leikmanns augum. 1 fyrsta lagi verðum við að gera okkur ljóst, að ferð út fyrir sólkerfið, er ferð algjörlega út í óvissuna. Þeir hnettir, sem hægt myndi vera að lenda á; eru aðeins þeir köldu. En þar sem þeir lýsa ekki út frá sér, getum við heldur ekki séð þá, þó horft sé í sterkustu sjón- auka. Það er því aðeins okkar sólkerfi, sem við þekkj- um. Ef haft er í huga, hvernig sama lögmál endurtekur sig í öllu í alheiminum, má telja líklegt, að það séu til milljónir og jafnvel milljarðar af öðrum hnöttum í vetrarbrautinni. Samt sem áður myndi það vera auðveldara að finna saumnál á botni Miðjarðarhafsins en að finna þessar smáagnir í óendanleikanum, og það gildir það sama um jörðina, þegar farið væri heim áMeið. Við gætum búist við að hún væri ósýnileg i víðáttu himingeimsins. Allar viðurteknar hugmyndir um tíma, hraða og fjarlægð, er erfitt að samræma við stjörnufræðilega víðáttu. Ef að við hugsum okkur líkan af því sem við þekkjum af himingeimnum, þar sem braut jarðar- innar væri á stærð við tituprjónshaus, ætti næsta sól að vera í 205 m fjarlægð. Til þess að fá, þó ekki væri nema nokkrar næstu sólir inn á líkanið, þyrfti að stækka það um hálfan annan kílómeter í allar áttir. Likan af allri vetrarbrautinni í þessu stærðarhlutfalli, yrði stærra en öll Evrópa. Þær kenningar hafa verið settar fram, að tíminn sé háður hraða og á ferðalagi í geimfari, sem fer með margföldum hraða hljóðsins, eða allt

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.