Vikan


Vikan - 15.09.1960, Síða 11

Vikan - 15.09.1960, Síða 11
Skemmtilegar nýjungar í Skíðaskálarum Skíðaskálinn í Hveradölum. Hluti af einu herbergi Skíðaskálans, búið hinum nýju húsgögnum frá Trésmiðjunni Meiði h.f. „ . . . Ég vona að skiöamenu líti á skála þennan sem sitt annað heimili og Itomi hingað sem oftast, svo þeir geti notið í sem fyllsta mæli endur- næringar þeirrar, andlegrar og líkam- legrar, sem fjallaloftið veitir. Opna ég hér með Sldðaskálann. Heil! og ham- ingja fylgi honum". Svo mælti L. H. Miiller kaupmaður í hófi, sem haldið var i Skíðaskálanum í Hveradölum þ. 14. september 1935 í tilefni af vígslu hins nýreista skála, sem um þessar mundir á því aldar- fjórðungsafmæli. Miiller var einn stofnandi Skíða.félags Heykjavíkur og i nokkra áratugi formaður félagsins og helzt.a driffjöður í starfsemi þess, m. a. einn aðal hvatamaður að byggingu Skíðaskálans. Fyrir 25 árum voru gisti- og veit- ingastaðir á heiðum uppi nær óþekkt fyrirbrigði og þótti þvi tilkoma Skiða- nýi skálinn snotur að gerð og laglegur skálans gleðileg nýbreytni, enda þótti útlits, en hann var keyptur tilsniðinn úti í Noregi og settur saman hér á mjög skömmum tíma. Skíðaskálinn var upphaflega eingöngu ætlaður sem félagsheimili og gististaður skiðafólks yfir vetrartímann, en fljót.lega var farið að reka þar veitingastað fyrir ferðafólk að sumrinu t.il, og hefur sú starfsemi farið mjög vaxandi hin síð- ari ár með aukinni umferð um Hellis- heiðina — allt árið um kring. Auk þess hefur lengi þótt vinsæl tilbreytni hjá bæjarbúum, sem umráð hafa yfir bílum, að hrista af sér bæjarrykið og skreppa upp í Skiðaskála á sunnudög- um þegar gott er veður og fá sér kaffisopa. Við slógumst i hópinn einn góð- viðrisdaginn í sumar og litum við í Skiðaskálanum. Hittum við þar að máli tvo unga menn, Öla J. Ólason og Sverri Þorsteinsson, en þeir hafa haft umsjón með rekstri skálans síð- an 1. október í fyrrahausl. — Hafið þið starfað lengi við hótel- rekstur? — Nei, þetta er nú fyrsta tilraunin. — Hvað kom til að Þið fóruð út í Þetta? — Við höfum ferðast dálítið um landið og komið á marga veitinga- sluði, bæði ágæta ug miðui góða og datt okkur þá allt i einu i hug að gaman væri að spreyta sig á að reka einn slikan. Ræddum við um marga staði, en okkur datt ekki Skíðaskál- inn í hug fyrr en í fyrrahaust, er starfið hér* var auglýst laust til um- sóknar. Sóttum við strax um og hlut- um náð fyrir augum stjórnar Skíða- félagsins og fengum skálann leigðan. — Og allt gengið eins og í sögu? — Ja, við vonum að gestirnir hafi ekki haft ástæðu til að kvarta, við höfum reynt að gera okkar bezta til að veita ferðafólki og öðrum góðe þjónustu. Hér er ýmislegt hægt að gera til þes að auka aðsókn að staðn- um, en við höfum litlu getað áorkað enn sem komið er vegna féleysis, en samt höfum við gert nokkrar úrbæt- ur til þæginda fyrir gestina. l'des- ember s.l. settum við upp gufubað- stofu og sturtur í kjallara hússins, en það hefur þótt anzi skemmtileg nýbreytni á staðnum. Og nú fyrir stuttu síðan réðumst við i það að kaupa ný húsgögn í öll gistiherbergi hússins. Húsgögnin eru öll af nýj- ustu gerð, smíðuð í Trésmiðjunni Meiði h.f., og gera herbergin mjög vistleg og skemmt.ileg. Einnig höfum við gengizt fyrir útreiðartúrum héð- an frá skálanum og upi nágrennið, einu sinni i viku, á fimmtudögum. Framhald á bls. 25. Hver fær sinn nestisböggul, svo er stigið á bak og haidið upp á Hengil. \V. GLÆSILEG VEIUÍLAVWKEPPM hefst í næsta blaði Viknnnar Verðlaun: Húsgögn frá Húsgagnaverzluninni Skeifunni að verðmæti kr. 15.000 Húsgögnin eru af nýrri gerð, sem er I þann veginn að koma á markaðinn. — Keppnin verður í fimm næstu blöðum. — Fylgist með frá byrjun.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.