Vikan


Vikan - 15.09.1960, Page 35

Vikan - 15.09.1960, Page 35
óiiaJi, ú mi£á (Jnat Kæra Aldís. Fyrir nokkru síöan kynntist ég manni. Hann virtist hrifinn af mér, en þegar ég var orðin virkilega ástfangin af honum, dró hann sig i hlé, sagðist ekki hafa áhuga á hjónabandi o. s. frv. Seinna hringdi hann svo til mín og bauð mér út. Ég hef oft farið út með honum, þvi að mér þykir alltaf vænt um hann. Ætti ég að hafa orð á þvi við hann að mér finnist það eiginlega tilgangslaust að vera að fara út með honum þar sem hann meinar þetta ekki alvar- lega, eða á ég bara að þegja og vona að í þetta sinn verði alvara úr þessu? Ég veit að hann er ekki með neinni annarri stúlku. Greta. Svar: Þú skalt ekki hafna vináttu hans, njóttu hennar, en á þann hátt sem hann ætl- ast til, annars áttu á hættu að kunningsskap- ur ykkar fari alveg út um þúfur. Það er aug- ljóst að hann hefur áhuga á þér, en er samt ekki áfjáður í að binda sig strax. Margir menn eru þannig gerðir, en oftast kemur að því að þeir breyta um skoðun. Ef hann vill 1 hafa sambandið óstöðugt, þá það, og þú skalt líka fara út með öðrum karlmönnum. Senni- legast þykir mér þó að hann sé kominn til þín endanlega, bara án þess að gera sér grein fyrir því. Ef svo er verður hann að fá tíma til að gera það upp við sig án allrar íhlut- unar af þinni hálfu. Keðjur. Aldís. Kæra Aldís. Fyrir nokkrum mánuðum síðan uppgötvaði ég að maðurinn minn hafði samband við aðra konu. Hann hafði um alllangt skeið haft náið samband við hana, sem hann segir að nú sé lokið. Við töluðum út um málið og sættumst síð- an. Ég get ekki að því gert Aldís, en ég er ennþá mjög tortryggin. Heldur þú að það sé nokkur möguleiki á því að fylgjast með eða kontrolera bréf til hans og frá, t. d. gegnum pósthúsið, eða getur síminn fylgzt með því fyrir mig hvorl hún liringir hann upp? Með fyrirfram þökk. J. J. Svar: Það er algjörlega útilokað að unnt sé að fá svona aðstoð. Hvernig getur þú ímyndað þér að þið getið aftur orðið ham- ingjusöm saman ef þú þannig svífst einskis og reynir á þennan' auðvirðilega hátt að njósna urn manninn þinn. Það cr auðheyrt á þér að þú trúir honum ekki þegar hann segist ekki lengur hafa samband við hina konuna, en ef þú getur ekki treyst honum, er vonlaust fyrir þig eða ykkur að reyna að byggja upp hjónabandið aftur. Beztu kveðjur. Aldís. Aldís mín. í fjögur ár lief ég verið með manni sem ég er mjög ástfangin af. Ég er um þrítugt. Við liitt- umst alltaf einu sinni i viku og hann er sá einasti eini fyrir mig, en hann hefur aldrei minnst á giftingu við mig. Hann er fjörutíu ára. Finnst jiér ég vera að eyða lima mínum og beztu árum til einskis? Vinsamlegast. Óánægð. Svar: Ég er anzi hrædd um að svó sé. Það lítur helzt út fyrir að hann taki þig sem einhvern sjálfsagðan hlut, nema því aðeins að hann líti á þig sem vin og félaga og hafi ekki látið sér detta hjónaband í hug í sam- bandi við ykkur. Það eina sem ég get ráðlagt þér er að vera ekki alltaf jafn tilkippileg þegar hann hóar í þig, kannske að hann upp- götvi að þú sért honum einhvers virði, ef hann sér þig ekki uiti tíma. Vonandi að svo fari, þó að því sé alls ekki að treysta. SAMKOMUHÚS Gnangrið Cetur GEG/V HITA OG KULDA +20° ~20' Þér fáið einangrunarkostnaðinn endurgreiddan á fáum ár- um í spöruðu eldsneyti. Það borgar sig bæði fyrir yður sjálfa og þjóðfélagið í heild að spara eldsnejd.i svo sem unnt er, og þar að auki er hlýtt hús (vel einangrað) mun nota- iegri vistarvera en hálfkalt (illa einangrað). STEMULL H.F. Lækjargötu . HafnarfirÖi . Sími 50975. V IK A N 35

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.