Veðrið - 01.04.1959, Blaðsíða 8

Veðrið - 01.04.1959, Blaðsíða 8
tíð vita menn, að svipað gerist í lofthjúpnum umhverfis jörðina. Og þegar bændur voru orðnir ójjreyjufullir vegna langvarandi votviðra eða margra mán- aða innistöðu og uppiskroppa með hey, vonuðust þeir eftir, að hver tunglkoma og jafnvel kvartilaskiptin færðu Jieim hinn langþráða þurrk eða hláku. Og hér var auðvelt að láta blekkjast. Einu sinni í viku eru tímamót í myndbreyt- ingum tungls: Nýtt — kvartilaskipti — fullt. Veðurbreytingar má jrví auðveld- lega rekja til næstu tímamóta á undan eða eitir, jjó að stundum skakki ef til vill 2—3 dögum. Rækilegar rannsóknir hafa verið gerðar á verkunum hita, kulda, mismun- andi rakastigs, mismunandi loftþynningar á líkama og lífsstörf manna og dýra. Þessar rannsóknir hafa sýnt, að efnasamsetning blóðs, starf hjarta og lungna, efnaskipti og önnur lífsstörf fara mjög eftir loftslagi og taka breytingum, ef menn flytja búferlum í loftslag mjög ólíkt því, er þeir áður bjuggu við. Hins vegar mun minna vera um athuganir á jieim breytingum á líðan og háttum manna og dýra, er getið var um í upphafi þessa máls. Þó munu Jjað vera rann- sóknir í þessa átt, sem dr. Helgi Tómasson, yfirlæknir á Kleppi, hafði haft með höndurn um margra ára skeið, er hann féll frá, en ekki er vitað, hve langt þær voru komnar eða að hve miklu leyti unnið er úr þeim. Reyndir læknar hérlendis hafa veitt jtví eftirtekt, að oft korna kvartanir frá mörgum gigtarsjúklingum svo að segja á sönut stundu. Þeir hafa verið verkja- litlir um tíma, en versnar svo allt í einu, mörgurn samtímis, Jjannig að varla getur verið um tilviljun að ræða. Væri ekki ófróðlegt að safna um jjetta skýrsl- um frá sem flestum læknum, líkt og safnað er skýrslum um farsóttir. Hér hefur þetta ekki verið gert. Reynsla erlendra lækna gengur mjög í sömu átt og hér. Þeirri tilgátu hefur verið varpað fram, að það sé lækkun loftjjrýstings, sem þessu veldur. Eftir jjví er maðurinn — eða a. m. k. hinir næmu gigtarsjúklingar — eins konar loftvog, sem finnur á sér veðurbreytingar mörgum klukkustundum fyrirfram. Og það eru ekki gigtarsjúklingar einir, scm eru næmir fyrir þess- um áhrifum. Þeir sem eiga vanda til höfuðverkjakasta, fá þau einna helzt með fallandi ioftvog. Botnlangaköst eru tíðari þá en ella. Enn fremur iiefur athug- un leitt í ljós, að þegar loftvog er fallandi, eru sjálfsmorð tíðari lieldur en þegar loftvog er stöðug eða stígandi. Og ioftþrýstingurinn virðist verka á sálina, ekki síður en á líkamann. í Tokyo í Japan hafa menn fundið, að menn verða gleymn- ari, Jjegar loftvog fellur. Þetta uppgötvaðist við það að telja saman um lengri tíma, hve mörgum piikkum og regnhlífum fólk gleymdi í strætisvögnum og bera það saman við breytingu loftvogar á hverjum tíma. Enn fremur hefur jjað sýnt sig, að slys verða fleiri með fallandi loftvog. Menn eru vanstilltari og skap- styggari. Það gæti jjví komið sér vel að líta á loftvogin, áður en lagt er af stað til manna í erindagjörðum, sem mikið veltur á, að vel sé tekið. Og í jjessu sam- bandi er jjað ekki loftvogarstaðan, sem máli skiptir, ekki það, hvort loftvogin stendur á góðviðri eða stormi, heldur hitt, hvort hún er stígandi eða fallandi. Gigtarkastið eða ólundin er ef til vill rokin út í veður og vind, þegar óveðrið er skollið á. 8 — VEÐRIÐ

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.