Veðrið - 01.04.1959, Blaðsíða 20
3. Ratsjármynd 4. febr. kl. 20,15. Kuldaskil um 60 sjómílur vestur af Keflavili.
Þann 4. febrúar 1959, kl. 17 ísl. tími, var víðáttumikið háþrýstisvæði yfir
Bretlandseyjum og Norðurlöndum. Miðja háþrýstisvæðisins var yfir Norður-
sjó, eins og sést á 1. myndinni. Yfir Grænlandshafi var grunn lægð og skammt
vestur af Reykjanesi voru kuldaskil, sem hreyfðust hægt austur á bóginn. Aust-
an við kuldaskilin var sunnanátt, 6—9 vindstig, með rigningu og þokusúld. Hiti
var 7—8 stig. Vestan við skilin var hæg vestanátt, 1—3 vindstig, og smáél. Hiti
var Jrar i—2 stig.
Síðdegis fjórða febrúar fórum við að svipast eftir kuldaskilunum á ratsjánni
og klukkan 17,30 sáust þau um 110 sjómílur vestur af Keflavík. Þá var byrjað
að taka ljósmyndir af ratsjárskífunni. Alls voru teknar 8 myndir af skífunni
á meðan skilin nálguðust Keflavík. Síðasta rnyndin var tekin klukkan 2 eftir
miðnætti, en skilin þokuðust austur yfir Garðskaga og fóru yfir Keflavík rnilli
kl. 4 og 5 um morguninn 5. febrúar.
Á mynd nr. 3 sést, hvar skilin eru, um 60 sjómílur vestur af Keflavík, en sú
mynd var tekin klukkan 20,15 um kvöldið 4. febrúar. Fjórða myndin var tekin
klukkan 23,30 sama kvöld, en þá eru skilin komin inn á Faxaflóa.
Til glöggvunar þeim, sem ekki hafa séð á ratsjárskífu skal nú reynt að út-
skýra myndirnar nr. 3 og 4.
VEÐRIÐ
19