Veðrið - 01.04.1959, Síða 10

Veðrið - 01.04.1959, Síða 10
„Öfug snjólina i Esjuhliðum". Þarna hefur verið rigning neðst i hliðunum, þá bleytukafald, sem festist i skriðunum, en efst frostsnjór, sem skefur burtu. Norðangúlpur hylur suðurhliðar fjallsins niður að Festi, en svo heitir klettaröð- ullinn inn af Esjubergi. — Guðmundur Agústsson vélfrœðingur tók myndina. Við fjallgöngu lækkar loftþrýstingur um einn mm við hverja 11 m (1 millibar á hverjum 8 m). Við að klífa meðalhátt fjall, eins og t. d. Esjuna, komast menn þvx í loftþrýsting, sem er nokkru lægri en minnsti loftþrýstingur, sem mælzt hefur við yfirborð sjávar. Reynslan sýnir, að menn þola loftþynninguna misvel, sumir fá höfuðverk og aðra vanlíðan í tiltölulega lítilli liæð. Þetta er skiljanlegt, þegar haft er í huga, með hve miklum þunga lofthjúp- urinn hvílir á yfirborði líkamans. Loftjxunginn er um eitt kg á hvern flatar- sentimetra, það eru 10 tonn á hvern flatarmetra, eða um 17 tonn á líkama meðalmanns. En inni í holrúmum og vefjum líkamans ríkir sami þrýstingur, þannig að fullkomið jafnvægi ríkir að jafnaði. Við breytingar á loftþrýstingi raskast þetta jafnvægi um stundarsakir eins og þegar er lýst. Kafaraveiki má skýra með einföldu dæmi. Tökum gúmmíblöðru og blásum hana upp með léttri lofttegund, vatnsefni eða helíum, og sleppum henni síð- an. Elún stækkar og þenst út, eftir því sem hærra kemur, vegna þess að þrýst- ingurinn á hana að utan minnkar, og hún springur, ef hún kemst nógu hátt. Ef við drögum hana niður, áður en hún springur, og aukum síðan þrýstinginn á henni að utan, dregst hún saman og slaknar. A svipaðan hátt liaga frumur líkamans sér við þrýstingsbreytingar utan frá. Og það er eðlilegt, að gigtveikt fólk sé öðrum viðkvæmara. Aukin gleymni og aðrar geðbreytingar eru þá af- leiðing af breytingum í frumum heilans. iVIunnmælasögur um veðurnæmi fá þá hér með eðlilega skýringu. 10 — VEÐRIÐ

x

Veðrið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.