Veðrið - 01.04.1959, Blaðsíða 22
5. Ferill siritandi lojtvogar, pegar kuldaskil
fara yfir. Sbr. lesmdl.
Fimmta mynd sýnir feril síritandi loftvogar áður og eftir að kuldaskilin fóru
yfir Keflavíkurflugvöll. Á undan skilununr féll loftþrýstingurinn, en þegar
þau voru komin fram hjá steig loftþrýstingurinn. Rétt eftir klukkan 22 þ. 4.
febrúar byrjaði hann að falla og rétt eftir klukkan 4 þ. 5. febrúar byrjaði hann
að stíga.
Hér hefur verið gerð lítilsháttar grein fyrir notkun og mikilvægi veðurratsjár-
innar. Samkvæmt þeim upplýsingum, sem mér hafa verið gefnar, er bylgju-
lengd skiparatsjárinnar, sem notuð er hér við land, kringum 3 sm og „sjónvídd“
hennar er um 50 sjómílur. Veðurglöggur skipstjórnarmaður, sem hefur trausta
ratsjá og loftvog um borð, ætti að geta fengið mikilvægar upplýsingar um veð-
urfar í næsta nágrenni við skipið, séu þessi tæki notuð á réttan hátt.
HLYNUR SIGTRYGGSSON veðurfrœðingur:
Er hægt að breyta veðrinu?
Um miðjan nóvember 1946 hóf lítil flugvél sig á loft í grennd við borgina
Schenectady í New York ríki. Farmur hennar var ekki stór, en allsérkenni-
legur, nokkur kíló af muldum þurrís, en svo er lofttegundin kolsýra nefnd,
er hún hefur verið kælcl niður í — 78° C, enda er hún þá föst í sér, og líkist
ís eða snjó. Flugvélin flaug góðan spöl upp fyrir frostmarkshæð, valdi skýja-
lag, sem var í likri hæð og liún, og dreifði þurrís-sallanum yfir það. Gerðust þá
einkennilegir atburðir. í slóð flugvélarinnar kom djúp geil í skýið, og að nokkr-
um tíma liðnum féll smáskúr úr því, þar sem þurrísnum liafði verið stráð.
Mörgum þótti þetta mikil tíðindi. Mönnum hafði nú óvéfengjanlega tekizt
að koma af stað regni, þótt í smáum stíl væri. Var þess þá langt að bíða, að
hægt yrði að breyta úrkomuskilyrðum á stórum akurlenduin, þar sem uppskeru-
VEÐRIÐ — 21