Veðrið - 01.04.1961, Page 6
Dr. phil. Þorkell Þorkelsson, fyrrv. veSurstofustjóri
— In memoriam —
Dr. Þorkell Þorkelsson, fyrrv. veðurstofu-
stjóri andaðist hinn 7. þ. m. á 85. aldursári.
Hann var fæddur á Frostastöðum í Skaga-
firði 6. nóv. 1876, varð stúdent í Reykjavík
árið 1898 og lauk embættisprófi (cand. mag.
prófi) við Kaupmannahafnarháskóla 1903.
Heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla íslands
var hann sæmdur árið 1936.
Að loknu liáskólanámi starfaði dr. Þor-
kell Þorkelsson nokkur ár við Polyteknisk
Lærenstalt í Kaupmannahöfn, en árið 1908
var liann skipaður kennari við Gagnfræða-
skóla Akureyrar og gegndi því starfi þar til
honum var íalið að stofnsetja löggildingar-
stofu vogar- og mælitækja árið 1918. Fluttist
hann þá til Reykjavíkur og var skipaður
forstöðumaður þeirrar stofnunar.
Eftir setningu sambandslaganna 1918
Dr. þhil. Þorkell Þorkelsson. ^ , . , ., .... ~ ^ ,
1 urðu tslenzk stjórnarvold að taka að ser
veðurþjónustu hér á landi, en danska veð-
urstofan hafði áður séð um þetta starf. Var Þorkell Þorkelssyni falið að hafa á
hendi allar framkvæmdir í því efni.
Þessi ákvörðun íslenzkra stjórnarvalda var mjög eðlileg. Þorkell Þorkelsson
hafði ágæta menntun í undirstöðuvísindagreinum veðurfræðinnar, stærðfræði og
eðlisfræði, en síðarnefnd vísindagrein var aðalnámsgrein hans. Hann hafði
þvi samskonar menntun og margir þeir menn, sem síðarihluta 19. og i byrjun
20. aldar gerðu veðurfræðina að sérvísindagrein á eðlisfræðilegum grundvelli.
Þorkell Þorkelsson var ennfremur áhugasamur á sviði veðurfræðinnar, hafði t.
d. starfað á vegum dönsku veðurstofunnar við skýjaathuganir og athuganir og
útreikninga á háloftavindum,- ú meðan hann dvaldist á Akureyri.
f ársbyrjun 1920 tóku íslendingar við veðurþjónustunni hér á landi. Starfaði
hún í byrjun í tengslum við Löggildingarstofuna, enda var Þorkell Þorkelsson
forstöðumaður beggja, þar til uin áramót 1924—1925. Þorkell Þorkelsson varð
þá forstjóri Veðurstofunnar og gegndi því embætti til 1. febrúar 1946. Síðasta
árið, sem hann var veöurstofustjóri, var hann heilsuveill.
Hinn fyrsti forstjóri Veðurstofu fslands hefur vafalaust fengið að kenna
VEÐRIÐ
5