Veðrið - 01.04.1961, Blaðsíða 20
Nú verða skýrð fyrstu orðin í skipaskeytunum.
Vikudagur (í skipaskeytum):
1 Sunnudagur 5 Fimmtudagur
2 Mánudagur 6 Föstudagur
3 Þriðjudagur 7 Laugardagur
4 Aíiðvikudagur
Hnattstaða (í skipaskeytum):
0 Frá 0° til 90° vesturlengdar á norðurhveli
3 Frá 0° til 90° austurlengdar á norðurhveli.
Breiddargrdða (í skipaskeytum) er tilgreind í heilum gráðum og tíunduhlut-
um. Þannig þýðir 615 í skipsskeytinu hér á undan, að breidd staðarins sé 61.5°.
Lengdargráða (í skipaskeytum) er tilgreind á sama hátt og breiddin. 243 þýðir
t. d. 24.3°.
Timinn (í skipaskeytum) er tilgreindur með tveim stöfum eftir Greenwicli
meðaltíma. í öllum skeytunr frá klukkan 6 eru þessir stafir því 06.
Nú er búið að skýra staðsetningu í skeytunum á bæði strandstöðvum og skip-
um. Er þá komið að sjálfu veðurskeytinu og hvernig færa má það á kortið.
Skýjamagnið er tilgreint í þeim áttunduhlutum himins, sem huldir eru skýjum.
0 þýðir heiðskírt, 4 hálfskýjað, 8 alskýjað, en 9 táknar, að ekki sjáist til lofts.
Má skrifa skeytastafinn fyrir skvjamagnið á stöðina og setja hring utan um.
Vindátt er táknuð með tveim stöfum, sent tilgreina áttina í tugum gráða. 09
þýðir austanátt, 27 vestanátt og 36 norðanátt, en 00 logn. Vindátt má teikna
á kortið sem strik út frá stöðvarhring í þá átt, sem vindurinn kemur úr.
Vindhraði er tilgreindur í hnútum, þ. e. sjómílum á klukkustund. 09 þýðir
9 hnútar, 18 þýðir 18 hnútar o. s. frv. Nærri lætur, að breyta rnegi hnútum í vind-
stig með því að deila með 5 og bæta svo einum við, ef útkoman er minni en 8.
A kortinu má tákna vindhraða með skástrikum á vindáttarstrikið. Þýðir þá hvert
langt strik 10 hnúta, en helmingi styttra strik 5 hnúta. Sést þetta betur á kortinu.
Skyggnið er tilgreint í kílómetrum eftir vissum reglum. 00—50 þýðir 0.0 til 5.0
kílómetrar: lélegt skyggni. 56—80 þýðir 6—30 kílómetrar: sæmilegt skyggni. 81—89
táknar meira en 35 kílómetrar: ágætt skyggni.
Einnig eru stundum aðeins notaðar tölurnar 90—99 til þess að tilgreina skyggni.
Þá þýðir:
90 0-50 metrar 95 2-4 kílómetrar
91 50-200 — 96 4-10 —
92 200-500 — 97 10-20 —
93 500-1000 — 98 20-50 —
94 1-2 kílómetrar 99 yfir 50 —
VEÐRIÐ
19