Veðrið - 01.04.1961, Page 13

Veðrið - 01.04.1961, Page 13
JÓNAS JAKOBSSON: Hitastig yfir Keflavík Að þessu sinni eru hér birt Iínurit af gangi hitans þrjá síðustu mánuði ársins 1960 og þrjá fyrstu þessa árs. Þeir, sem fylgjast reglulega með þessum athugun- um, vilja sjá þær sem fyrst. Einnig er hentugt að hafa línuritin til liliðsjónar við þáttinn um veðurfar síðasta misseris, en hann er á öðruni stað í þessu liefti. Mönnum er enn í fersku minni hin eindæma stillta og þurra veðrátta í október. Vindur var þá oftast hægur á austan, og lægðir komu sjaldan í næsta nágrenni við landið. Hitasveiflur voru því litlar. Þó kólnaði heldur um vetur- nætur, en fyrsti vetrardagur var þ. 22. Fyrstu vikuna í nóvember barst til landsins fremur svalt loft frá liafinu aust- an og norðaustan við landið, en þar á eftir kom tveggja vikna hlýr kafli. Þá héldu lægðirnar sig skammt fyrir sunnan og suðvestan ströndina og veittu yfir landið lofti af hafinu fyrir vestan og norðvestan Bretlandseyjar. í síðustu viku mánaðarins kom stutt kuldakast. Suður yfir landið kom þá loft norðan af hafinu í grennd við Jan Mayen. Þá festi snjó á Norðurlandi. I desember var tíðarfarið orðið óstilltara, og skipti oft um átt. Gerði kuldaköst í fyrstu og þriðju vikunni með norðanveðrum, en aðra vikuna alla var fremur 1. mynd. Daglegar hitabreytingar í 500 og 1500 m hœð október—desember 1960. 12 — VEÐRIÐ

x

Veðrið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.