Veðrið - 01.04.1966, Qupperneq 3
VEÐRIÐ
TÍMARIT HANDA ALÞYÐU UM VEÐURFRÆÐI
KEMUR ÚT TVISVAR Á ÁRI - VERÐ ÁRG. KR. 75.00
1. HEFTI 1966 11. ÁRGANGUR
RITNEFND: JÓN EYÞÓRSSON
FLOSI H. SIGURÐSSON
PÁLL BERGÞÓRSSON
HLYNUR SIGTRYGGSSON
AFGREIÐSLUSTJÓRI:
GEIR ÓLAFSSON
DRÁPUHLÍÐ 17 . SÍMI 15131
JÓN EYÞÓIISSON:
r
Mildir vetur á Islandi
Þegar litið er yfir íslenzka árferðissögu, eins og hún er skráð í liinu ágæt.i
safni Þorv. Thoroddsen: Árferði á íslandi, þá mótast ósjálfrátt í huganum dapur-
leg mynd af æfikjörum íslcnzku þjóðarinnar á liðnum öldum og baráttu hennar
við vetrarríki, eldgos, drepsóttir og hallæri. Lífsbraut margra horfinna kynslóða
er rttt og látlaust lýst í þessari alþýðuvísu, sem rnargir kunna:
Örðugan ég átti gang — yfir hraun og klungur.
Einatt var mér fjall í fang — frá því ég var ungur.
Það má vissulega líkja íslenzkri árferðissögu við svellrunnið hraunaklungur.
Og Jjó er Jjað svo, við nánari athugun, að víðar en varir er sem Iiilli undir græn-
ar og fagrar eyjar á torleiðinu. Þá eru eftirmæli vetrarins eitthvað á Jiessa leið:
„Þá var vetur svo góður, að menn mundu varla þvilikan". — Hinir mildu vetur
hafa verið þjóðinni mitt í baslinu eins og fóthvíld þreyttum göngumanni í ófærð.
Þá Jiagnar snöggvast raunarollan um fjárfelli og harðrétti, sem annars fyfgdi í
fótspor allra liarðindavetra. Þjóðin var svo varnarlítil — svo óbrynjuð gegn
hvers konar kreppu, að ekkert mátti lit af bera. Þá sté>ð sultur við dyr allrar al-
]>ýðu.
Það er annáll hinna mildu og góðu vetra, sem ég ætlaði að rekja. Slíkir hafa
margir orðið síðustu áratugi. En flestir mildir vetur verða storma- og úrkomu-
samir hér á landi, einkum sunnan lands. Það liggur í hlutarins eðli, þegar litið er
til hinna veðurfræðilegu orsaka.
Land vort er svo í sveit sett, að J>að er mjög á takmörkum hlýrra loftstrauma
úr suðri og kaldra loftstrauma frá íshafinu eða Grænlandi, og verður J>ví oft
skammt öfganna á milli. Á þessum strauma og veðramótum myndast bylgjur
]>ær í loftinu er við tölum daglega um sem lægðir eða stormsveipa, og flestar
hreyfast frá suðvestri til norðausturs. Ef sveiparnir leggja leið sína fyrir norðan
ísland, draga þeir með sér hlýja suðræna loftstrauma: fari ]>eir hins vegar fyrir
sunnan landið, verður norðanáttin ríkjandi.
VEÐRIÐ --- 3