Veðrið - 01.04.1966, Síða 12

Veðrið - 01.04.1966, Síða 12
Þessi hjón voru langa-langafi og amma Jóhanns Sæmundssonar prófessors og ráðherra og hans systkina svo og söngvaranna Eriings og Sigurðar Olafssonar og margra annarra. 28. april. Þá fæddist barn á Litlahrauni, segir höf., „og vitjaði ég séra B. að skíra Jrað.“ Hér verður að geta Jress, að Litlahraun tilheyrði Hítarnesjringum (Kolb.st.sókn). Sóknarpresturinn Jrar, séra Gísli Guðmundsson (Glímu-Gísli) dó í febrúar 1836, svo að þar var prestlaust, að minnsta kosti til næsta vors, og kall- inu að líkindum Jrjónað af nágrannaprestum þann tíma. Sóknarprestur í Mikla- holti var þá séra Brynjólfur Bjarnason frá Mælifelli, og Jrangað var fremur skammt að sækja frá Litlahrauni. Orðalagið í dagbókinni ,,út eftir“ kemur hér alveg heim við kringumstæðurnar. Barnið á Litlahrauni lifði ekki nógu lengi til Jress að öðlast skírn. Kirkjubókinni og dagbókarblaðinu ber alveg saman um fæðingardag þess. Árið 1836 var tvíbýli á Litlahrauni og voru búendur Jressir: Sigurður Bárðar- son, 55 ára, Þorsteinssonar. Hinn bóndinn á Litlahrauni var Jón Jónsson, 33 ára, stjúpsonur Sigurðar Bárðarsonar, kvæntur Ragnheiði, 24 ára, Árnadótt- ur bónda á Borg í Miklaholtshr., Jónssonar, Ragnheiður átti síðar Jónas Ögmundsson á Kársstöðum í Helgafellssveit, og þau voru móðurforeldrar skáldsins Jóhanns Gunnars Sigurðssonar á Svarfhóli í Miklaholtshr., Jón og Ragnheiður giftust á Litlahrauni 1835, og barnið, sem fæddist ])ar og dó skv. framansögðu, var Jreirra fyrsta barn. 29. apríl. Sigurður Guðbrandsson sá, sem sagt er að væri jarðaður í Miklaholti þennan dag, og er samhljóða kirkjubók, var sonur Guðbrands Þorleifssonar srniðs og bónda á Hofstöðum í Miklaholtshr., Einarssonar. Sigurður var fæddur á Ytra- Rauðamel 1772, en ólst upp í Syðra-Skógarnesi hjá frænda sínum, Þorleifi Skafta- syni: Þeir voru að öðrunr og Jrriðja að skyldleika. Sigurður kvæntist fóstursystur sinni Kristínu Jónsdóttur Snorrasonar bónda í Þúfu og víðar í Miklaholtshr. Þau bjuggu fyrst í Syðra-Skógarnesi, síðan á Svarfhóli i Miklaholtshr., því næst í Arnartungu í Staðarsveit og loks á Hofstöðum í Miklaholtshr. Á meðal barna Jreirra var Jón sundmann, sá, er bjó á Baulárvöllum á Snæfellsnesi, þegar undrin gerðust Jrar seint á fyrri hluta 19. aldar. Og dóttir þeirra var hin nafnkunna Ijós- móðir, Kristín Sigurðardóttir í Syðra-Skógarnesi, sem Árni prófastur Þórarins- son lofar manna mest í ævisögu sinni. Ivristín ljósmóðir var gift Magnúsi Jóns- syni frá Syðra-Skógarnesi, og hjá þeim dvaldist Sigurður Guðbrandsson, þegar hann lést. 1. mai. Þar segir frá ferðalagi höf. frá Dalsmynni að Litlahrauni, — hefur að líkindum sótt að Dalsmynni líkkistu eða líkklæði um hið nýlátna barn. Þar segir og frá komu Guðrúnar á Litlahrauni og Magnúsar í Landbrotum, er sótti hey fyrir sjálfan sig og Ólaf. 8. maí. „Fæddist hér barn um nóttina," segir höf., og getur naumast hjá Jrví farið, að þar sé átt við heimili hans sjálfs. Við athugun á kirkjubókum Mikla- liolts- og Hítarnesþinga hefur það komið í ljós, að eina barnið, sem hefur fæð/t í Jreim prestaköllum þennan dag, hefur fæðst á Stórahrauni í Kolbeinsstaðasókn. Á Stórahrauni var tvíbýli um þessar mundir og bændurnir voru bræður: Daði og 12 -- VEÐRIÐ

x

Veðrið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.