Veðrið - 01.04.1966, Page 13

Veðrið - 01.04.1966, Page 13
Jóhannes Hannessynir. DaíSi er talinn 55 ára 1836. Kona hans var Halldóra Bárðardóttir 54 ára. Jóhannes er talinn 49 ára, kona hans var Málmfríður Sig- mundsdóttir 40 ára, og þau voru foreldrar hins nýfædda barns, er hlaut í skírn- inni nafn móðurföður síns, Sigmundar bónda Brandssonar á Brúarhrauni. I>eir bræður, Daði og Jóhannes bjuggu á Stórahrauni til æviloka. Daði andað- ist 9. apríl 1839 en Jóhannes 17. júlí 1855. Eg hef kynnt mér nokkuð vitnisburði sóknarprests um þá Stórahraunsbræður, eins og þeir koma fram í sóknarmanntölum Hítarnesþinga. Þeir vitnisburðir eru flestir svo almenns eðlis, að þeir skera ekki úr lil né frá um það atriði, sem hér er sérstaklega leitað skýringar á, þ. e. eiganda rithandarinnar á dagbókarbrotinu, Báðurn þeim bræðrum er borin vel sagan um ráðvendni, dánumennsku og uppfræðslu, og báðir eru þeir taldir hafa nógar bækur, og mun þar einkum átt við Guðsorðabækur. Um Daða er það sagt á einum stað, að hann kunni margt andlegt. Um Jóhannes er komizt svo að orði á einum stað, að bækur hans séu nógar og góðar, og i vitnisburðum um hann koma fram þessar lýsingar: „Les mæta vel,“ „sérlundaður dánumaður“, „vandaður, óviðfelldinn í lund,“ „vand- aður, sérlegur bókaelskari.“ „Elskar bækur,“ „Ráðvandur, sérlyndur." 10. mai. Þá sótti höf. prest til þess að skíra barnið. Presturinn gisti þar unt nóttina ásamt Þorsteini í Gröf, og næsta dag, þann 11. maí, var svo barnið skírt. Skírnarvottar voru þau Þorsteinn Bárðarson í Gröf, Daði Hannesson og Halldóra Bárðardóttir, hjón á Stórahrauni. Það er fleira en þetta í liandritinu, sem styður þá skoðun, að höfundur þess hafi átt heima á Stórahrauni. Þann 20. apríl segist hann hafa gengið suður í sveit og fengið þar byl, en svælings kafald virðist hafa verið, er hann fór að heiman. Það var algeng málvenja, að taka þannig til orða, þegar farið var frá Hrauna- bæjunum suður um Eldborgarhraun, sem skilur á milli þeirra og aðalbyggðar sveitarinnar. Og það er ekki óþekkt fyrirbrigði í „þvernyrðingsveðri“, að kafalds- laust eða kafaldslítið sé á Hraunabæjunum þó að hríð sé á suður í sveitinni. Höf getur þess oftar en einu sinni, að menn hafi komið til þess að sækja hey eða falast eftir að fá hey. Þetta gefur til kynna, að heyskortur hafi gert vart við sig í héraðinu á umræddu vori, enda veturinn 1835/36 talinn allharður. Stóra- hraun er mikil beitarjörð og búpeningur þar því léttari á fóðrum cn víða annars staðar. Jörðinni hafa fylgt og fylgja enn tvær vænar varpeyjar, Stórahraunseyjar. Þær voru, og eru máske enn, einnig nytjaðar til heyskapar, og þær gáfu jafnan af sér vænan töðufeng. Skógarness er getið í handritinu og þess einnig, að Litlahraunsmenn hafi tekið leiði þangað. Það má heita spottakorn milli Hraunanna og búendum þar því innan handar að fylgjast með jtví, sem gerist þar, hverjum hjá öðrum. Skógar- nesferðin (eða ferðirnar) hefur að líkindum staðið í sambandi við fiskiróðra, sem stundaðir voru frá Skógarnesi á vorin, bæði áður og síðar. En þrátt fyrir allt það, sem nú hefur verið sagt, er Jtví enn ósvarað, lner hann var snillingurinn, sem gerði handritið, aðeins verður það fullyrt með sæmilega öruggri vissu, að höfundur textans hafi verið á Stórahrauni árið 1836, og j>ar virðist ekki öðrum til að dreifa en jteim bræðrum Daða og Jóhannesi. En er |>;í VEÐRIÐ 13

x

Veðrið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.