Veðrið - 01.04.1970, Blaðsíða 3

Veðrið - 01.04.1970, Blaðsíða 3
VEÐRIÐ TÍMARIT HANDA ALÞYÐU UM VEÐURFRÆÐI KEMUR ÚT TVISVAR Á ÁRI - VERÐ ÁRG. KR. 125,00 1. HEFTI 1970 15. ÁRGANGUR RITNEFND: JÓNAS JAKOBSSON FLOSI H. SIGURÐSSON PÁLL BERGÞÓRSSON HLYNUR SIGTRYGGSSON AFGREIÐSLUSTJÓRI: GEIR ÓLAFSSON DRÁPUHLÍÐ 27 . SIMI 15131 Ur ýmsum áttum Heiti vindstiga. I fyrra liefti Veðursins árið 1965 skrifaði Jón heitinn Eyþórsson grein urn „Vindstigin og nöfn þeirra“. Þar er rakin saga vindstigaheitanna og birt tafla um styrk þeirra í hnútum og metrum á sekúndu. Einnig er þar tafla um ástand sjávar eða sjólag miðað við veðurhæð. Tveim árum seinna, árið 1967, gaf svo Veðurstofa íslands út „lieglur um veðurskeyti og veðurathuganir". Þar er gömlu heitunum lialdið að öðru leyti cn því, að nokkur tilfærsla er á milli vindstiga á bilinu frá 4 til 7, og er þar að sumu leyti farið eftir tillögum Jóns í umræddri grein. Breyingarnar eru þessar: Vindstig Nýja heitið Gamla heitið 4 Stinningsgola eða blástur Kaldi 5 Kaldi Stinningsgola 6 Stinningskaldi eða strekkingur Stinningskaldi 7 Allhvass vindur (Allhvasst) Snarpur vindur Sennilegt er, að orðið stinningsgola, sem er langt og stirt í máli, verði lítið notað, og væri gott ef blástur gæti komið í staðinn, því að 4 vindstig er mjög algeng veðurhæð. Helzti annmarki á þv/ orði er sá, að blástur táknar jafnan þurran vind í vitund manna. En verði það tekið upp sem heiti á vindstigi, þarf að nota það jafnt í vætu sem í þurrki. Væri fröðlegt að heyra álit lesenda á þessu. Onnur breyting, sem orðið hefur á vindkvarðanum, er sú, að fyrir nokkrum árum livarf alþjóða veðurfræðistofnunin frá því að nota fleiri vindstig en tólf. Nú er því alveg sama, liversu grimmt fárviðri gerir, það skal vera 12 vindstig. Líklega liefur þessi ákvörðun verið tekin í því skyni að hvetja þjóðir til að taka upp beinar hraðaeiningar eins og hnúta, rnetra á sekúndu eða kílómetra á klukkustund. Slíkar einingar eru einráðar í flug-veðurskeytum, bæði spám og lýsingum. VEÐRIÐ — 3

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.