Veðrið - 01.04.1970, Blaðsíða 15

Veðrið - 01.04.1970, Blaðsíða 15
3. mynd. Linuritin eiga við árin 1939 og 1943 og sýna, Iwe margar vaxtar- einingar voru komnar á hverjum tima, allt frá vorkomu. — Ýmsir áfangar gróðursins eru merktir á linuritin: VG = vorgróður byrjar. KN = kartöflur settar niður. KG = kartöflugras kemur upp. TS = Túnsláltur byrjar. ES = engjasláttur byrjar. KS = kartöflugras fer að sölna. SL = slœtti lokið. ormsstað staðfesta allvel, að með þessu séu þroskaskilyrði rauðgrenis ekki of- metin. Skilyrði fyrir rauðgreniskóg ættu að vera í Eyjafirði, sums staðar í Skaga- firði og Langadal, en annars óvíða á Norðurlandi. A Suðurlandi ætti hann víðast að þroskast hitans vegna. En eins og áður hefur verið tekið fram, er það ekki alltaf nóg, og hér má eflaust gjalda mjög varhug við næðingum þeim, sem eru algengari við suðurströndina en í innsveitum fyrir norðan og austan. Ekki skal þó reynt að leggja dónt á áhrif vindanna hér, Irentur en annarra Jtátta, svo sem úrkomu og lrosta. Ég býst við, að lesendur hafi tekið eftir því, að ég hef alls staðar miðað þessar umræður um skógarmörk við liitaskilyrði á árunum 1931 — I9(i(), og er það til samræmis við gögnin frá Noregi, sem ég hef lialt hliðsjón af. Ef miðað væri við kaldara tímabil, eins og fyrir aldamót, mætti halda, að það þýddi, að skil- yrði til skógargróðurs væru alls staðar verri á landinu en hér kentur fram. Hins vegar sýnir samanburðurinn hér á undan, að þroski kjarrs og skóga, sem án efa hafa lilað al' þetta kuldaskeið, stenzt vel samjöfnuð við kortið yfir hitaskilyrðin. Þess ber líka að gæta, að tölurnar, sem Mork tilgreinir um vaxtareiningar, eru miðaðar við skógarmörk, sem virðast hafa litlum breytingum tekið frá kulda- skeiði liðinnar aldar. Mork segir, að einstöku maður haldi, að Jteir hafi tekið eftir hækkun skógarmarkanna síðustu 30 ár, en tekur fram, að Jjetta kunni að stafa að einhverju leyti af þvf, að liætt hafi verið að beita geitum á flesta l'jall- skóga Noregs. Samkvæmt jjessu tel ég sennilegt, að kortið, sem hér er birt, geti átt sæmilega við, J)ótt sumarhiti lækki nokkuð lrá Jjví sent var árin 1931 — 1960. VEÐRIÐ — 15

x

Veðrið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veðrið
https://timarit.is/publication/369

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.