Veðrið - 01.04.1970, Síða 18
Daglegar hitabreytingar i 500 og 1500 m lucð, október—desember 1969.
Þennan tíma voru laegðir suður eða suðvestur a£ landinu, og vindur þess vegna
austlægur. Þá barst að loft suðaustan a£ hafinu vestan við Bretlandseyjar og
suma daga suðaustan frá Norðursjó. Síðustu vikuna var áttin breytileg.
Janúarhitinn var um hállu stigi hærri en meðaltalið í neðsta kílómetranum
og nærri hálfu öðru stigi Iiærri en það, þegar komið var upp í tveggja kíló-
metra hæð. Þó var norðlæg átt með sífelldum kuldum nærri einráð fyrsta
þriðjung mánaðarins. Þá breytti algerlega um tíðarfar. Lægðarsvæði settist að
yfir hafinu suðvestur af Islandi, svo að mildur loftstraumur beindist að larid-
inu frá Bretlandseyjum og Norðursjó, en síðar aðallega Atlantshafsloft frá svæð-
inu vestur og suðvestur af Bretlandseyjum. Svo lilýtt var þetta loft, að varla
kom frostdagur í 500 metra hæð í hálfa þriðju viku.
Austanáttin, sem ríkti mikinn hluta janúar, breyttist í norðaustlæga átt fyrstu
dagana í febrúar. Og hinn 4. var vindur kominn á liánorðan með fast að 10
stiga frosti á láglendi. Það fór líka svo, að febrúar varð rúmum tveim stiguni
kaldari við jörð en í meðalári. Og fyrir ofan 1000 metra hæð var hitinn ríflega
hálfri annarri gráðu lægri en í meðallagi. Hinn 6. kom lægð á mikilli ferð vestan
yfir Grænlandsjökul og dýpkaði ört á Grænlandshafi. Hún þeytti með sér hlýju
lofti suðvestan af liali um leið og hún nálgaðist, en síðar kólnaði ört, þegar
hún stanzaði nálægt Vestfjörðum og dró að kaldara loft úr vestri. Þetta var
sama lægðin og mestan uslarih gerði hjá nágrönnum okkar í Angmagsalik,
þegar vindhraði varð þar talsvert á annað hundrað hnúta. Upp úr þessu veðri
kom vindur á norðaustan, en síðar austan. Og að undanskildunr norðaustan
1 8 — VEÐRIÐ