Veðrið - 01.09.1970, Page 28
27. marz Sunnudagur í miðföstu. Meinlítið veður, 13 st. frost.
Ólafur fór einn til messu.
28. marz Nokkuð bjart, þó rykdimma, 22 st. frost. Jón fór út á is í gær.
29. marz Bjart, 22—14 st. frost. Ólafur fór út að Bakka og máske fram á ísinn.
30. marz Vond hríð í nótt og fram á dag og mikil fannkoma. Heyleysi víða.
31. marz Heiðskírt, 16—17 st. frost.
Apríl 1. Heiðríkt, frost 21—22 stg. Jón kom í gær og hafði fengið 31 fisk
upp um ísinn. Ólafur kom með 26 fiska.
Þokuloft, lítið frost.
Varð hæg þíða. Messað.
Hæg hláka, en lítið tekur samt.
Bjart, 5—6 st. frost.
Gott og bjart, 12 st. frost, varð þó renningur og seinast þíður vindur.
Ólafur fór út að sjó að reyna við fisk.
Hláka allgóð, lítið tekur þó enn.
Sama hláka, þó hæg, 5—8 st. frost.
Þykkt loft, 5 st. hiti, aðgerðalítið. Björn fór í kaupstað í 11. sinn
í vetur. Ólafur kom, hafði fengið 30 fiska.
Pálmasunnudagur. Bezta veður, 12 st. hiti.
Hæg þíða. Ólafur og Jón fóru eitthvað á ísinn að fanga fisk.
Sama veður, þíða hæg og nokkur hiti.
Sama veður, 15 st. hiti. Ólafur kom. Hafði fengið 20 fiska, en Jón
8 fiska.
Skírdagur. Hláka, hvass, svalur. Ólafur og Björn sóttu fisk ofan að
Lónsbúð. Dalsáin illfær.
Föstudagurinn langi. Sama þíða og hiti nokkur. Bati þessi er nú
búinn að vara í niu daga. Messað, fjórir fóru héðan.
Heiðskírt, 18—20 st. hiti.
Páskadagur. Gott veður, sunnan blástur og þíða. 6 fóru til messu,
ég í fyrsta sinn á þessu ári.
Heiðríkt og næturfrost. Messað í Glæsibæ.
Sunnan blástur, svalur þó. Ólafur og Jón fóru að Gæsum á ísinn
til fiskjar.
Síðasti vetrardagur. Sunnan stormur, kaldur. Ólafur kom með 13
fiskkindur.
Hér lýkur dagbókarbrotinu, og má segja, að furðu vel hafi úr rætzt í apríl
eftir þær grimmdarhörkur, sem áður höfðu gengið. Þann 22. maí er þess svo
getið, að hafísinn og lagísinn hafi nú farið til fulls af firðinum.
2. april
3. april
4. april
5. april
6. april
7. april
8. april
9. apríl
10. april
11. april
12. april
13. april
14. april
15. april
16. april
17. april
18. apríl
19. april
20. april
64 — VEBRIÐ