Fréttablaðið - 04.12.2009, Qupperneq 8
8 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR
1. Hve margir hafa tengst Face-
book í fimm ára sögu vefjarins?
2. Hver er fulltrúi Íslands í
stjórn Norræna fjárfestingar-
bankans?
3. Hver er stigahæsti íslenski
leikmaðurinn í Iceland Express-
deild karla í körfubolta?
SJÁ SVÖR Á SÍÐU 62
Brauðrist TT 61101
Tekur tvær venjulegar brauðsneiðar, 900 W.
Jólaverð: 6.400 kr. stgr.
Töfrasproti MSM 6B100
280 W. Hljóðlátur og þægilegur í notkun.
Jólaverð: 4.100 kr. stgr.
Skaftryksuga BBH MOVE2
Öflug, 14,4 V. Hleðslutæki,
frístandandi eða fest á vegg.
Jólaverð: 26.900 kr. stgr.
Hárblásari PHD 1150
1200 W. Hægt að fella saman.
Jólaverð: 4.290 kr. stgr.
Stafrænn hitamælir
Bosotherm flex
Jólaverð: 1.490 kr. stgr.
Stór og lítil heimilistæki, símtæki og ljós í miklu úrvali.
Sjáið jólatilboðin á www.sminor.is
Nóatúni 4 · Sími 520 3000
www.sminor.is
Þvottavél WM 12A162DN
Tekur 5 kg. 1200 sn./mín.
Orkuflokkur A.
Jólaverð: 109.900 kr. stgr.
Uppþvottavél SE44E232SK
Hvít, með fjórum kerfum.
Jólaverð: 109.900 kr. stgr.
1
2
3
4
5
6
7
fyrir 1
2
3
4
5
6
7
A
T
A
R
N
A
REYKJAVÍK Hagrætt verður í rekstri
Reykjavíkurborgar um 3,3 millj-
arða króna á næsta ári. Þetta kemur
fram í fjárhagsáætlun sem lögð
var fram í gær. Meiri- og minni-
hluti deildu hart
um áætlunina;
meirihlutinn
sagðist standa
vörð um velferð
en minnihlutinn
sakaði hann um
að gleyma þeim
fátækustu.
„Samkvæmt
því frumvarpi
að fjárhagsáætl-
un Reykjavíkurborgar fyrir árið
2010, sem ég mæli fyrir hér í dag,
verða framlög til velferðar þjónustu
ekki lækkuð. Við stöndum vörð um
menntun og þjónustu við börnin í
leikskólum og grunnskólum borg-
arinnar og þjónusta frístundaheim-
ila verður áfram tryggð. Gjaldskrár
fyrir grunnþjónustu verða ekki
hækkaðar, þar með talið leikskóla-
gjöld, sem eru nú með þeim lægstu í
landinu, og matargjöld í grunnskól-
um og gjaldskrár frístundaheimila
verða óbreytt.“ Þannig lýsti Hanna
Birna Kristjáns dóttir borgar stjóri
sýn meirihlutans á frumvarpið í
ræðu í gær.
Hún sagði gríðarlega mikilvægt
að skattar yrðu ekki hækkaðir,
slíkt mundi dýpka efnahagsvand-
ann. Gert var ráð fyrir að hagræða
þyrfti um 4,2 milljarða króna, en
betri tekjuhorfur þýði að minni
hagræðingar sé þörf. Ekki er gerð
krafa um hagræðingu á velferðar-
sviði, en mennta-, leikskóla- og
íþrótta- og tómstundasvið þurfa öll
að hagræða um fjögur prósent. Í
stjórnsýslu og á öðrum sviðum sem
snerta framkvæmdir, skipulag og
umhverfismál, þarf að hagræða um
níu prósent.
Dagur B. Eggertsson, borgar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, segir
að markmið aðgerðaáætlunar
Reykjavíkurborgar um að standa
vörð um störf og grunnþjónustu séu
í uppnámi. Þá eigi eftir að útfæra
ýmislegt, til dæmis niðurskurð í
þjónustu og skólastarfi.
Þá vekur Dagur athygli á því að
skuldir A-hluta Reykjavíkurborgar
hafi aukist um tíu milljarða, eða
fimmtíu prósent, úr tuttugu í þrjá-
tíu milljarða milli ára og nú stefni í
halla á annan milljarð króna. Heild-
arskuldir Reykjavíkurborgar, að
meðtöldum borgarfyrirtækjum,
aukist úr 310 milljörðum í 326 millj-
arða. kolbeinn@frettabladid.is
Milljarða hagræðing
hjá Reykjavíkurborg
Hagrætt verður í rekstri Reykjavíkur um 3,3 milljarða á næsta ári. Heildar-
skuldir borgarinnar hafa aukist. Borgarstjóri segir mikilvægt að álögur séu
ekki hækkaðar. Markmið um grunnþjónustu í uppnámi, segir borgarfulltrúi.
DAGUR B.
EGGERTSSON
BORGARSTJÓRI Hanna Birna Kristjánsdóttir segir meirihlutann standa vörð um
menntun og þjónustu við börn. Skattar verði ekki hækkaðir. Minnihlutinn gagnrýnir
fjárhagsáætlunina. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
AUSTUR-KONGÓ Dauðadómur var
staðfestur yfir tveimur norskum
mönnum, Joshua French og
Tjostolv Moland, í Austur-Kongó
í gær. Annar mannanna, Moland,
var fundinn sekur um morð á
bílstjóra auk smygls, njósna og
samsæris en French fyrir vitorð
með Moland, vopnað rán, tilraun
til manndráps og njósnir.
Dómurinn fer fram á 500 millj-
ónir dala í skaðabætur frá þeim
og norska ríkinu. Dómarinn telur
þá hafa stundað njósnir á vegum
norska hersins í Austur-Kongó.
Báðir eru fyrrverandi hermenn
í úrvalssveit norska hersins og
voru með skírteini frá norska
hernum á sér þegar þeir voru
handteknir. Samkvæmt norskum
blöðum verða mennirnir ekki
teknir af lífi þrátt fyrir dauða-
dóm.
Norskir málaliðar:
Dæmdir til
dauða í Kongó
STJÓRNSÝSLA Mýflug mun annast
rekstur flugvélar Flugstoða ohf.
þótt samningur um reksturinn
byggi á gölluðu útboði. Ríkis-
kaup, sem sáu um útboðið, eiga
þó að greiða Flugfélagi Vest-
mannaeyja 250 þúsund króna
kostnað vegna kæru félagsins.
Kærunefnd útboðsmála segir
grundvallaratriði við opinber
innkaup að jafnræði bjóðenda sé
tryggt. Mýflug hafi áður sinnt
fluginu sem tilraunaverkefni
fyrir Flugstoðir og eitt ákvæði
útboðsins hafi verið sniðið að
Mýflugi og raskað jafnræði bjóð-
enda. Að öðru óbreyttu væri rétt
að ógilda útboðið en þar sem
gerður hafi verið bindandi samn-
ingur sé kærunefnd ekki heimilt
að fella útboðið úr gildi. - gar
Rekstur flugvélar Flugstoða:
Útboð stendur
þótt ólöglegt sé
FLUGVÉL FLUGSTOÐA Mýflug heldur
gerðum samningi.
Breytingar hjá OECD
Ítalinn Pier Carlo Padoan hefur verið
skipaður aðalhagfræðingur Efnahags-
og framfarastofnunarinnar (OECD).
Hann er líka aðstoðarframkvæmda-
stjóri OECD. Jorgen Elmeskov, starf-
andi aðalhagfræðingur frá því í apríl,
verður aðstoðaraðalhagfræðingur.
EFNAHAGSMÁL
VEISTU SVARIÐ?