Fréttablaðið - 04.12.2009, Page 10

Fréttablaðið - 04.12.2009, Page 10
 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR Farðu inn á ring.is og óskaðu eftir að fá MMS með tilboðum send í símann. Ringjarar þurfa ekki skæri. Við sendum tilboð beint í símann. Tilboð dagsins: Gleði 1 Gleði 2 MMS tilboð hjá Ring – ekki klippa þennan miða út Tilboð á m.ring.is – ekki klippa þennan miða út Ringjarar fá 2.000 kr. afslátt af gallabuxum í dag hjá Retro, Deres, Sparkz eða Urban. Ringjarar geta náð sér í lagið og hringitóninn Thank You með Dikta á farsvímavefnum m.ring.is í dag. Gildir í dag föstudag Gildir í dag föstudag 2.000 kr. afsláttur! Tónlist fyrir 0kr. E N N E M M / S ÍA / N M 4 0 13 8 Tíska Fersk tilboð á ring.is í hverri viku Tónlist Ferskir tónar á m.ring.is í hverri viku Sala reksturs og eigna þrotabús Festar ehf. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið falið af skiptastjóra þrotabús Festar ehf. að sjá um sölu á rekstri og eignum þess. Starfsemin felst í rekstri útgerðar og fiskvinnslu í Hafnarfirði sem samanstendur af sex bátum, fiskvinnslu og aflaheimildum. Söluferlið hefst formlega með auglýsingu þessari og er opið áhuga- sömum fjárfestum. Markmið sölunnar er að hámarka virði reksturs og eigna þrotabús Festar ehf. Áhugasamir fjárfestar geta óskað eftir sölugögnum dagana 4. – 8. desember 2009 með því að hafa samband við Fyrirtækja ráðgjöf Landsbankans með tölvupósti á netfangið soluferli@landsbankinn.is. Sölugögn verða afhent gegn undirritun trúnaðar yfirlýsingar. Óskuldbindandi tilboðum skal skilað inn 10. desember 2009. Stefnt er að því að ljúka sölu fyrir árslok 2009. Nánari upplýsingar um söluferlið má finna á landsbankinn.is E N N E M M / S ÍA / N M 4 0 13 1 LANDSBANKINN | landsbankinn.is | 410 4000 N B I h f. (L an d sb an ki n n ), k t. 4 71 0 0 8 -0 2 8 0 . DÓMSMÁL Ríkissaksóknari hefur ákært fimm menn á tvítugs- og þrítugsaldri fyrir að hafa reynt að smygla til landsins nær fjór- um kílóum af amfetamíni. Hinir ákærðu eru Jóhann Páll Jóhannes- son, Jón Sveinbjörn Jónsson, Logi Már Hermannsson, Þorgrímur Kol- beinsson og Þorsteinn Birgisson. Fíkniefnin voru falin í máln- ingarfötum og þeim komið fyrir í pakka sem var póstlagður í Dan- mörku 6. ágúst. Pakkinn var hald- lagður af lögreglunni í Danmörku 11. sama mánaðar, fíkniefnin fjar- lægð og gerviefnum komið fyrir í staðinn. Pakkinn var sendur til Íslands í kjölfarið. Fimmmenning- arnir stóðu allir í þeirri trú að að pakkinn innihéldi fíkniefni. Logi er ákærður fyrir að hafa skipulagt og fjármagnað inn- flutning fíkniefnanna og að hafa skipt verkum með hinum þremur. Hann fékk Þorgrím til að fara til Danmerkur, sækja fíkniefnin hjá óþekktum manni, pakka þeim og senda til Íslands gegn 300 þúsunda króna greiðslu fyrir verkið. Þá fékk Logi þá Jóhann Pál og Þorstein til að taka á móti fíkni efnunum, opna pakkann og geyma þau þar til þau yrðu sótt. Þorgrímur skipulagði innflutn- ing fíkniefnanna ásamt Loga. Hann fékk Jón Sveinbjörn til þess að sækja pakkann í vöruhús Samskipa að Kjalarvogi 7 til 15 í Reykjavík. Jón Sveinbjörn fékk pakkann toll- afgreiddan og flutti í rjóður við Skarhólabraut í Mosfellsbæ, skildi hann eftir þar, en kom svo aftur 9. sama mánaðar ásamt Jóhanni Páli og Þorsteini og vísaði þeim á pakk- ann. Þorsteinn sótti hann að Skarhóla- braut ásamt Jóhanni Páli og Jóni Sveinbirni og flutti hann í Rauðu- mýri í Mosfellsbæ ásamt Jóhanni Páli. Frá Rauðumýri flutti Jóhann Páll svo pakkann heim til sín að Flatahrauni 29 í Hafnarfirði þar sem hann hugðist geyma fíkni- efnin uns Logi tæki við þeim á ný. Jóhann Páll var handtekinn af lög- reglu þegar hann var að fjarlægja efnin úr pakkanum. Jón Sveinbjörn er jafnframt ákærður fyrir vörslur amfetam- íns sem lögreglumenn fundu við húsleit. Loks er Þorgrímur ákærður fyrir að hafa haft í ófullnægjandi geymslu haglabyssu af gerðinni Benelli og riffil af gerðinni Nor- inco 22 cal LR. Vopnin voru bæði hlaðin og fundust á bak við komm- óðu við húsleit lögreglu. jss@frettabladid.is SAMSKIP Pakki sem fimmmenningarnir töldu hafa að geyma tæp fjögur kíló af amfetamíni var sóttur í vöruhús Samskipa. Földu 4 kíló af gervi- fíkniefnum í rjóðri Fimm karlmenn, sem töldu sig vera að smygla fjórum kílóum af amfetamíni til landsins, hafa verið ákærðir. Pakkinn með hinum meintu efnum var í tíðum flutningum eftir að hann kom til landsins og var meðal annars falinn í rjóðri.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.