Fréttablaðið - 04.12.2009, Page 12
12 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR
BANDARÍKIN Bandaríski tónlistar-
maðurinn Stevie Wonder hefur
bæst í hóp friðarerindreka Sam-
einuðu þjóð-
anna. Stevie
hefur verið
blindur frá
fæðingu og
ætlar að beita
sér sérstaklega
í málefnum
fatlaðra.
„Nýjasti
friðar boði
okkar er dáður
af milljónum manna og hefur
gefið fólki mikið,“ er haft eftir
Ban Ki-moon, framkvæmda-
stjóra SÞ.
Stevie bætist í hóp tíu annarra
friðarboða, sem hver um sig er
þekktur á sínu sviði, hvort sem
það eru listir, fræðimennska,
íþróttir eða skemmtanaiðnaður-
inn. - óká
STEVIE WONDER
Sameinuðu þjóðirnar:
Stevie Wonder
erindreki friðar
GÆÐIR SÉR Á HUNANGI Sule heitir
þessi simpansi og er hann átján mán-
aða. Sule hefur nýlega verið komið
fyrir í Taronga-dýragarðinum í Sydney í
Ástralíu. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
STJÓRNSÝSLA Banna á ráðherrum og embættis-
mönnum að segja ósatt, hagræða sannleikanum
og hygla vinum, ættingjum og kunningjum.
Þetta er meðal ábendinga sem bárust frá
almenningi við tillögur að siðareglum fyrir
ráðherra og starfsfólk stjórnarráðsins.
Fjórtán sendu inn athugasemdir en frestur
til þess rann út í nóvember.
Samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðu-
neytinu fögnuðu ýmsir því að siðareglur skyldu
settar en einnig kom fram það sjónarmið að
reglusetningin væri sýndarmennska og tímasó-
un. Ábendingar komu fram um að drög að regl-
unum væru í sumum tilfellum of almenn og var
í þeim efnum til dæmis bent á orðanotkunina
„persónuleg tengsl“ og „hagsmunaárekstrar.“
Ein tillagan var á þá leið að fært yrði í siða-
reglurnar að ráðherrar mættu ekki halda dýrar
veislur fyrir ríkisfé nema bjóða öllum almenn-
ingi til veislunnar. Önnur kvað á um að skera
bæri niður öll fríðindi ráðamanna og taka ætti
fyrir að ráðherrar og starfsfólk stjórnarráðsins
þæðu styrki sem ætlaðir væru námsmönnum,
lista- eða fræðimönnum. Þá var gerð athuga-
semd við að kaup á kynlífsþjónustu væru sögð
brot á siðareglum því slík kaup væru væntan-
lega lögbrot. Loks var kallað eftir því að skýr
viðurlög væru við brotum á siðareglunum.
Í starfshópi um siðareglur fyrir ráðherra og
stjórnarráðsstarfsfólk sitja Páll Þórhallsson,
skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu, Halldóra
Friðjónsdóttir, starfsmaður fjármálaráðuneyt-
isins, og Jón Ólafsson, prófessor við Háskólann
á Bifröst.
Samkvæmt upplýsingum úr forsætisráðu-
neytinu áformar forsætis ráðherra að leggja
fram á þingi á næstunni frumvarp til laga þar
sem siðareglunum verður veitt lagastoð og
kveðið á um eftirfylgni með þeim. - bþs
Margvíslegar athugasemdir hafa borist við drögum að siðareglum fyrir ráðherra og starfsfólk stjórnarráðsins:
Lagt verði blátt bann við ósannindum
RÁÐHERRABEKKURINN Siðareglna fyrir ráðherra og starfsfólk stjórnarráðsins er að vænta. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
FÆREYJAR Færeyski Þjóðveldis-
flokkurinn hefur lagt fram
frumvarp á Lögþinginu um að
reglulegar greiðslur danskra
stjórnvalda til Færeyinga verði
lækkaðar og gerðar að engu árið
2014.
Danski styrkurinn nemur nú
615,5 milljónum danskra á ári og
ríkisstjórnin vill halda honum
þannig. Þó hefur hún samið um að
styrkurinn minnki eitthvað eftir
árið 2010, svo Færeyjar geti ein-
hvern tímann orðið sjálfbærar.
Þjóðveldisflokkurinn gengur
mun lengra og vill að styrkurinn
lækki strax á næsta ári í 492,4
milljónir og svo stig af stigi. - kóþ
Þjóðveldisflokkur Færeyja:
Vill þurrka út
stuðning Dana
SAMGÖNGUR. Fjögur snjóflóð féllu
á veginn við Sauðanes, milli Dal-
víkur og Ólafsfjarðarganga, á mið-
vikudag og í fyrrinótt. Eitt þeirra
var sýnu stærst; krapaflóð sem féll
snemma í gærmorgun og tók þá
þrjár klukkustundir að opna veg-
inn að nýju, að sögn Felix Jósafats-
sonar, lögregluvarðstjóra á Dalvík.
Engir bílar voru á ferð um veginn
þegar flóðin féllu.
„Það er ekkert grín ef það fara
bílar með þessu fram af veginum,“
sagði Sveinn Brynjólfsson, hjá
Veður stofu Íslands, við Frétta-
blaðið. Hann sagði að í fyrravetur
hefðu snjóflóð tuttugu sinnum
lokað veginum á þessum stutta
kafla við Sauðanes, þar sem vegur-
inn liggur hæst milli Dalvíkur og
Ólafsfjarðar.
Sveinn taldi síðdegis í gær ekki
teljandi hættu á að snjóflóð mundu
halda áfram að falla á veginn enda
var spáð hlýrra og stilltara veðri.
Snjóflóð féll einnig í Eyrarhlíð,
milli Ísafjarðar og Hnífsdals, seint
í fyrrakvöld og lokaði veginum þar
um tíma. Eins féll spýja úr Súða-
víkurhlíð. - pg
Stórt krapaflóð lokaði veginum milli Dalvíkur og Ólafsvíkur:
Fjögur flóð féllu á sama stað
SAUÐANES Fjögur flóð féllu á sama
vegarkafla á miðvikudag og fram á
fimmtudagsmorgun. FRÉTTABLAÐIÐ/JSE