Fréttablaðið - 04.12.2009, Page 16

Fréttablaðið - 04.12.2009, Page 16
 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR JÓLAGJÖFIN FYRIR VEIÐIMANNINN REYKJAVÍK Borgarbúum hefur frá því í fyrradag gefist kostur á að kjósa á netinu um forgangsröðun fjármuna til smærri nýframkvæmda og við- haldsverkefna í hverfum borgarinn- ar. Kosningin er í tengslum við fjár- hagsætlun næsta árs og geta íbúar einungis kosið um þróun mála í sínum eigin hverfum. Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri greiddi fyrsta atkvæð- ið á miðvikudag. Hún segir það hafa verið sameiginlega ákvörðun borgar- yfirvalda allt kjörtímabilið að leggja aukna áherslu á aukið íbúalýðræði og sé netkosningin mikilvægur liður í því. Unnið hefur verið með íbúa- samtökum í borginni ásamt Stofn- un stjórnsýslufræða og stjórnmála við stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands að verkefninu frá í haust. „Með þessu viljum við auka áhrif íbúa á nærumhverfi þeirra,“ segir hún. Kosningin stendur yfir á sama tíma og umræða um fjárhagsáætlun borgarinnar stendur yfir. Netkosn- ingin er bindandi og verður borgar- stjórn að lúta niðurstöðum hennar. Lítið hefur farið fyrir kosning- unni og vissu fáir af henni sem Fréttablaðið ræddi við í gær. Borgar- stjóri segir ekki hafa verið blásið til auglýsingaherferðar til að kynna kosninguna. Íbúasamtök séu upp- lýst. Hún segir ekki útilokað að kosning sem þessi verði endurtek- in í framtíðinni. „Ég vona að þetta verði fyrsta skrefið,“ segir hún. jonab@frettabladid.is BORGARSTJÓRI SKILAÐI ATKVÆÐINU Hanna Birna segir ekki útilokað að íbúa- kosning sem nú stendur yfir verði endurtekin í framtíðinni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Einstök íbúakosn- ing sem fáir vita af Borgarbúar hafa frá því á miðvikudag getað kosið á netinu um forgangsröðun smærri framkvæmda á vegum borgarinnar innan hverfa sinna á næsta fjár- hagsári. Kosningin á engan sinn líka hér, segir prófessor í stjórnmálafræðum. „Íbúakosningin er ein aðferð til að virkja íbúalýðræðið. Þarna getum við dregið ýmsar ályktanir. En þetta er náttúrlega tilraun, bæði praktísk og áhugaverð,“ segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor við Háskóla Íslands. Gunnar Helgi bendir á að ýmsar útgáfur af íbúakosningum hafi verið prófaðar í heiminum, svo sem þar sem íbúar hafi verið virkjaðir á fundum um borgarmál- in. Hann kannast hins vegar ekki við neitt í líkingu við þá sem Reykjavíkurborg hafi ýtt úr vör. „Þarna er kosið um raunverulega peninga. Ég þekki ekki nein dæmi um slíkt,“ segir hann. EINSTÖK AÐFERÐ ■ Þeir einir geta tekið þátt sem eru 16 ára og eldri. ■ Borgarbúar geta aðeins kosið um forgangsröðun framkvæmda í þeim hverfum sem þeir búa í. ■ Kosið er á milli þriggja verkefna- flokka. Sá flokkur sem hlýtur flest atkvæði í hverjum flokki verður settur á fjárhagsáætlun næsta árs. ■ Þetta á einungis við um minni framkvæmdir, viðhaldsverkefni og nýframkvæmdir. ■ Kjósa má á slóðinni www.reykja- vik.is/kjostu. ÝMISLEGT UM KOSNINGUNA DÓMSMÁL Karlmaður hefur verið dæmdur í Héraðsdómi Reykjavík- ur til þess að greiða eftirstöðvar bifreiðarláns. Bifreiðina var hann með á kaupleigu og fjármagnaði með myntkörfuláni hjá SP-fjár- mögnun árið 2007. Hann þarf að greiða myntkörfulán sitt upp á 4,3 milljónir króna, en lánið var upp- haflega 3,6 milljónir. Um prófmál er að ræða. Í dómnum segir að lántakand- inn hafi vitað að um erlent lán hafi verið að ræða. Er vitnað í samning þess efnis að myntkörfulán væru áhættusamari en önnur lán og að lántakandi gerði sér fulla grein fyrir því. Í dómnum segir: „Gengisþróun hefur orðið flestum Íslendingum undanfarið ákaflega óhagfelld. Á þeirri þróun getur SP-fjár- mögnun hf. hins vegar ekki borið ábyrgð. Þá er ósannað að SP-fjár- mögnun hf. hafi með einhverjum hætti nýtt sér hugsanlega fákunn- áttu lántakanda um gjaldeyris- mál eða stuðlað að því að honum hafi hugsanlega verið gefnar rangar eða villandi upplýsingar um þau efni eða gengistryggingu leigugreiðslu. Ekki eru því efni til að víkja frá þeirri meginreglu íslensks samningsréttar að samn- ingar séu skuldbindandi fyrir aðila þeirra.“ - jss MYNTKARFAN Lánið sem um ræðir var blandað, bæði í japönskum jenum og svissneskum frönkum. Þarf að greiða eftirstöðvar bifreiðar sem tekin var á kaupleigu 2007: Dæmdur til greiðslu myntláns HÖNNUN „Það er frábær viðurkenning fyrir okkur að komast í þennan lokahóp,“ segir Steinþór Kári Kára- son, arkitekt hjá stofunni Kurt & pí sem varð meðal 25 arkitektafyrirtækja sem náðu í úrslit alþjóðlegrar samkeppni tímaritsins Architecture Review. Að sögn Steinþórs bárust um 500 framlög í sam- keppnina að þessu sinni. Keppnin miðast við arki- tekta sem eru að koma fram á sjónarsviðið. Þátttak- endur mega ekki vera eldri en 45 ára. Kurt & pí sendi hönnun sína á byggingu Mennta- skóla Borgarfjarðar í Borgarnesi sem lokið var við að reisa í fyrrahaust. Fyrir þessa byggingu hlutu þeir Steinþór og Ásmundur Hrafn Sturluson Menn- ingarverðlaun DV fyrr á þessu ári. Steinþór og Ásmundur voru í gær á heimleið til Íslands. Meðferðis höfðu þeir viðurkenningu fyrir að hafa komist í lokaúrslitin. Steinþór segir að þótt þeir hafi ekki náð fyrstu verðlaunum sé árangurinn mikilvægur. „Eftir því sem fleiri vita af okkur er líklegra að við fáum fleiri verkefni,“ bendir hann á spurður um áhrif viðurkenningarinnar. Þeir sem hlutu fyrstu verðlaun að þessu sinni eru frá Kína, Sviss og Mexíkó. Í fyrra voru fyrstu verð- laun veitt til Spánar, Chile og Bangladess. - gar Arkitektar að Menntaskóla Borgarfjarðar ná langt í alþjóðlegri samkeppni: Íslensk byggingarlist í úrslitum Í MENNTASKÓLA BORGARFJARÐAR Þessi glæsilega bygging í Borgarnesi fleytti höfundunum í úrslit alþjóðlegrar samkeppni virts arkitektatímarits. M YN D /KU R T& PÍ

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.