Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.12.2009, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 04.12.2009, Qupperneq 26
26 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR greinar@frettabladid.is FRÁ DEGI TIL DAGS FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is MENNING: Páll Baldvin Baldvinsson fulltrúi ritstjóra pbb@frettabladid.is HELGAREFNI: Anna Margrét Björnsson amb@frettabladid.is og Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Jón Kaldal jk@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Í öldungadeild Bandaríkjaþings þarf þrjá fimmtu atkvæða til að koma í veg fyrir málþóf. Á seinustu árum er raunin reyndar orðin sú að eiginlegu málþófi er sjaldan beitt, hótunin ein dugar. Mál eru einfaldlega ekki tekin fyrir ef þau njóta ekki þessa aukna meirihluta atkvæða. Þannig er málþóf eiginlega orðið lagatæknilegt þingskaparatriði. Menn þurfa ekki í alvörunni að fara upp í pontu og tala klukku- stundum saman. Það að menn segist ætla að tefja er látið duga. Kannski væri það fyrirkomulag að einhverju leyti þægilegra. Þingmennirnir gætu þá sleppt því að halda ræður um miðja nótt fyrir syfjulegan þingforset- ann, enginn starfsmaður þings- ins þyrfti að slá þær inn og þing- menn gætu fengið kvöldmatinn sinn á réttum tíma. Það er raunar fremur erfitt að vorkenna þeim Steingrími og Jóhönnu, sem seint geta talist meistarar hins skarpa ræðu- forms, fyrir að hafa nú fengið að kenna á eigin meðölum. Stein- grímur hefur á undanförnum árum verið sá þingmaður sem lengst hefur dvalið uppi í pontu. Jóhanna setti sjálf glæsilegt Íslandsmet í ræðulengd á Alþingi þegar hún talaði í yfir 10 klukkutíma gegn hinu löngu gleymda húsnæðisfrumvarpi hins löngu gleymda félagsmála- ráðherra, Páls Péturssonar. Nú er búið að takmarka ræðutíma þingmanna svo metið verður vart slegið úr þessu, enda ólík- legt að nokkur ríkisstjórn geri það sjálfri sér að snúa þeirri ákvörðun við. Umrædd breyting hafði raunar alls ekki þau tilætluðu áhrif að gera málþófsvopnið veikara, enda var samhliða ákveðið að takmarka ekki lengur þann fjölda ræða sem þingmaður getur haldið um hvert mál. Fræðileg efri mörk málþófs voru því eitt sinn tengd þeirri líffræðilegu staðreynd að allir þurfa einhvern tímann að sofa, en eru nú einungis háð staðfestu minnihlutans. Með síendurteknum ræðum og and- svörum er í raun hægt að halda umræðum áfram endalaust. Í flestum öðrum löndum erum þingfundir bæði færri, styttri og hnitmiðaðri en hér á landi. Undan málgleði íslenskra þing- manna er ekki hægt að kvarta en vitanlega kemur þetta niður á störfum þingsins enda gefst þá minni tími til að taka fyrir mál í nefndum auk þess sem fjölmörg athyglisverð frumvörp komast aldrei á dagskrá þingsins. Út frá lýðræðissjónarmiðum væri mun heppilegra ef sem flest mál væru tekin fyrir og afgreidd af Alþingi, þeim yrði þá annað- hvort vísað frá strax eða þau felld eftir lok seinustu umræðu, væri andstaða við þau á þinginu. Fyrir nokkrum árum munaði til dæmis minnstu að ágætt frum- varp um sölu á bjór og léttvínum í matvöruverslunum næði fram að ganga en það var ekki tekið til umræðu eftir málþófshótun vinstri grænna. Hefði ekki verið eðlilegra, og lýðræðislegra, að láta reyna á hvort meirihluti væri fyrir því meðal þingmanna eður ei? Manni segir raunar svo hugur að í hvert skipti sem málþófs- vopni sé beitt aukist líkur á því að þingsköpum verði breytt á ný og ræðutími takmarkaður enn frekar. Sé litið til nágrannaríkja okkar í Evrópu eru í flestum tilfellum settar mun þrengri skorður á það hve oft og hve lengi þingmaður megi tala. Á þýska sambandsþinginu má hver þingmaður til að mynda tala í korter en fulltrúar þingflokka og flutningsmenn tillagna geta talað þrefalt lengur. Þar, sem á mörgum öðrum þingum, eru ræður í þingsal hugsaðar sem tækifæri fyrir þingmenn og þingflokka til að lýsa skoðun sinni á þing málum en ekki sem hálfgildingsneitunarvald á til- lögur sem þeim eru á móti skapi. Á þessum mörg hundruð manna þingum er að sjálfsögðu nauðsynlegt að setja allt þing- hald í fastar skorður svo minni hópar þingmanna geti ekki tekið þingstörfin í gíslingu. Þar er því gengið út frá þeirri eðlilegu grunnhugsun að þingsköpin eigi að tryggja rétt minnihluta til að koma skoðunum sínum á fram- færi, en ekki að tryggja að þær skoðanir verði ofan á. Hvað sem mönnum fannst um fjölmiðla- frumvarpið, frumvarp um rekstrarfyrirkomulag RÚV, eða önnur umdeild frumvörp, þá er það nefnilega einfaldlega óeðli- legt að Alþingi geti ekki afgreitt umdeilt þingmál með eðlilegum hætti, bara út af því að hluti þingmanna sé alveg rosalega, rosalega mikið á móti því. Talþingi PAWEL BARTOSZEK Í DAG | Málþóf S íðustu daga hefur gætt efasemda um að allar upplýsingar sem varða hrunið síðastliðið haust verði gerðar opinberar. Virðist sem fólk haldi að mikilvægum upplýsingum verði leynt, eytt eða aðgangur að þeim torveldaður með öllum mögulegum hætti. Rangtúlkanir á frumvarpi forsætis- nefndar Alþingis til breytinga á lögum um rannsókn á hruninu er kveikjan að þeim efasemdum. Ekki er gott að segja hvort þær rangtúlkanir hafa hlotist af misskilningi eða ásetningi. Hvort sem er, eru rangtúlkanirnar kjánalegar vegna þess að frumvarpið gerir ráð fyrir að lög um aðgang að upplýsingum verði rýmkuð frá því sem nú er. Rétt er að rifja upp hlutverk rannsóknarnefndar Alþingis um hrunið. Hún á að leita sannleikans um aðdraganda og orsök falls bankanna og tengdra atburða. Þá á hún að leggja mat á hvort um mistök eða vanrækslu hafi verið að ræða við framkvæmd laga og reglna um fjármálastarfsemi og eftirlit með henni, og hverjir kunni að bera ábyrgð á því. Til að nefndin gæti rækt skyldur sínar var nánast öllum lögum sem annars gilda um trúnað, þagnar- skyldu, persónuvernd og gagnaförgun vikið til hliðar. Hún hefur ótvíræðan rétt til að krefjast allra gagna og kalla alla til yfir- heyrslna. Hún getur hlíft fólki við ákærum ef það hefur frum- kvæði að því að upplýsa nefndina um mikilvæg mál. Þetta sýnir að Alþingi var og er alvara. Nefndinni voru fengnar allar þessar heimildir svo hún gæti leitað sannleikans um hrunið og upplýst þjóðina um hvað raunverulega varð til þess að hér fór allt á hliðina. Skýrslan verður opinberuð öllum – þingi og þjóð – samtímis. Við störf sín hefur rannsóknarnefndin aflað ógrynni gagna úr föllnu bönkunum. Innan um mikilvægar upplýsingar sem með öðru varpa ljósi á aðdraganda hrunsins og skipta því máli eru upplýsingar sem engu máli skipta. Upplýsingar um banka- viðskipti venjulegs fólks. Ætlar einhver að halda því fram að slíkar upp lýsingar eigi að vera aðgengilegar öllum? Til þess eru engin rök. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem staðreyndir um rannsóknar- nefndina eru rangtúlkaðar. Þegar hún óskaði eftir fresti til að skila skýrslu sinni sáu einhverjir sér hag í að koma á kreik kenningu um að frestinn ætti að nota til að fela upplýsingar. Pappírstætararnir hefðu ekki undan. Tíminn sem nefndinni var fenginn í upphafi reyndist einfaldlega of knappur miðað við umfang verksins. Þó að vissulega sé slæmt að það tefjist hljótum við á móti að fá betri skýrslu. Í frumvarpi forsætisnefndar er líka fjallað um meðferð Alþingis á skýrslunni. Níu manna þingnefnd á að fjalla um hana og móta tillögur að viðbrögðum þingsins við niðurstöðunum. Þetta hefur líka verið gagnrýnt. Að baki búa málefnaleg rök öfugt við leynimakkskenningar. Það má draga í efa að rétt sé að það fólk sem að líkindum er fjallað um í skýrslunni ákveði hvað Alþingi eigi að gera við hana. Á hinn bóginn var það jú Alþingi sem ákvað að málið skyldi rannsakað og setti alveg hreint ágæt lög þar um. Í öllu þessu er mikilvægt að halda því til haga að sérstakur saksóknari um efnahagshrunið er að störfum. Hans verkefni er að leita uppi glæpi sem kunna að hafa verið framdir og sækja grunaða til saka. Alþingi hefur ekkert um störf hans að segja. Efasemdir um rannsóknarnefndina um hrunið: Engu leynt BJÖRN ÞÓR SIGBJÖRNSSON SKRIFAR Réttmæt gagnrýni í Magmatilboð UMRÆÐAN Sigrún Elsa Smáradóttir skrifar um orkumál Fólk sem situr í stjórnum fyrirtækja þarf að geta treyst því að það fái nauðsynlegar og réttar upplýsingar við ákvarðanatöku. Í REI-málinu fengu þeir sem ákvarðanir áttu að taka villandi upp- lýsingar. Ég tók þátt í því að fletta ofan af þeim ósköpum m.a. í stýrihópi Svandísar Svavarsdóttur og mun seint gleyma þeirri reynslu. En meirihlutinn í Reykjavík virðist ekkert hafa lært og heldur áfram að fegra upplýsingar og hafa rangt við í OR. Í Magma-málinu snerust deilurnar m.a. um virði tilboðs Magma. Meirihlutinn hélt því fram fullum fetum að virði tilboðs Magma væri 6,31 á hlut, þetta gagnrýndum við í minnihlutanum harðlega og töldum einsýnt að virðið væri mun lægra enda 70% greiðslunnar kúlulán til sjö ára á 1% vöxtum í formi skuldabréfs sem Magma gefur út með veði í hinum seldu bréfum. Níu mánaða árshlutareikningur sem lagður var fram í stjórn OR sl. föstudag, staðfestir að þessi gagnrýni var rétt. Enda bókfært virði þessa eignarhluta félagsins fært niður þannig að það samsvari genginu 5,4. Þannig er ljóst að stjórnarmenn í OR og almenningur fengu rangar upplýsingar við ákvarðanatöku í Magmamálinu. Í skýringum með árshlutareikningnum kemur einnig fram að gangi samningurinn við Magma eftir komi einnig til afskriftir upp á 2.272 milljónir vegna taps Orku- veitunnar á viðskiptum með bréf Hafnar- fjarðarbæjar í HS Orku. Þessu til viðbótar var hlutur Orkuveitunnar í HS orku færður niður um u.þ.b. 700 milljónir í sex mánaða uppgjöri OR. Samkvæmt þessu er bókfært tap á viðskiptum með bréf í HS Orku, gangi samningurinn eftir, um 4 milljarðar. Þrátt fyrir þessa verulegu niðurfærslu sem er þvert á fullyrðingar meirihlutans um virði tilboðs Magma er ástæða til að ætla að niðurfærslan sé of lág og virði Magmabréfsins sé enn lægra en gengið er út frá. Hitt er ljóst að stjórnarmenn, borgarfulltrúar minnihlutans og almenningur fengu rangar upplýsing um virði tilboðsins og það er óþolandi. Höfundur er borgarfulltrúi. SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR Ljótur leki Birgittu Jónsdóttur, þingmanni Hreyf- ingarinnar, var ekki skemmt í gær. Þá kom í ljós að stundataflan hennar var horfin. Þeir sem til þekkja vita að vont er að vera í óvissu um hvar á að mæta í næsta tíma, en á þessari stunda- töflu var að finna plan um hvenær hún, og aðrir stjórnarandstæðingar, ættu að standa í pontu og tala gegn Icesave, hvenær þau ættu að andmæla og þá hverjum. Birgittu þótti ósvífið að stundataflan væri horfin; hún ætti að geta treyst því að jafn viðkvæmar upplýs- ingar og málþófs- taflan fengju að vera í friði á borðinu hennar. Hún ætlar þó ekki að setja af stað rannsókn á málinu, sá sem tók blaðið viti upp á sig sökina. Góður leki Að allt öðru. Birgitta Jónsdóttir, þing- maður Hreyfingarinnar, er ein þeirra sem hafa fagnað komu aðstandenda síðunnar WikiLeaks. Á fundi með þeim í Friðarhúsi tjáði Birgitta aðdáun sína á framtaki þeirra. Á síðunni eru birtar upplýsingar sem ekki er ann- ars staðar að finna, gögn sem aðrir vilja halda leyndum og minnisblöð sem sumir vilja ekki að aðrir sjái. Fitulagið Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi er ánægður með fjárhagsáætlun Reykja- víkur fyrir næsta ár. Skyldi engan undra, Gísli er jú í meirihlut- anum sem stendur að áætluninni. Í nýlegum pistli á heimasíðu sinni ber hann saman stjórnvöld í Ráðhúsinu annars vegar og Alþingishúsinu hins vegar. Skemmst er frá því að segja að þau síðarnefndu fá falleinkunn, einkum fyrir meinta tregðu til að skera niður ríkisútgjöld. Það finnst Gísla ótækt því: „Þar hefur safnast saman fita sem hægt er að skera burt.“ Þetta er óvenjulega hreinskilin gagnrýni sjálfstæðismanns á eigin flokk. Varla heldur Gísli Marteinn að fitulagið hafi safnast saman eftir hrun og því er hressilegt að heyra hann gagnrýna átján ára valdatíð Sjálfstæðisflokkinn og þenslu á ríkisgeiranum. kolbeinn@frettabladid.is Frábært tilboð á ilmkertum TI LB OÐ Fullt verð 1.590 kr. 0 kr. auk 800 punkta x2 Ilmkerti í hæsta gæðaflokki sem brenna vel og lengi. Ýmsar ilmtegundir í boði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.