Fréttablaðið - 04.12.2009, Síða 36
2 föstudagur 4. desember
S tefán Svan Aðalheiðarson, starfsmaður í GK Reykja-
vík, spurði hvort ég vildi vera
með í að skreyta verslunina fyrir
jólin. Þetta er í fyrsta sinn sem
ég tek svona verkefni að mér en
mér fannst það mjög gaman og
er ánægð með útkomuna,“ segir
Oddný Magnea Arnbjörnsdóttir
vöruhönnuður en handsaumaðir
bangsar og dúkkur úr hennar
smiðju prýða nú glugga verslunar-
innar GK Reykjavík.
Oddný Magnea segir jóla-
skreytinguna ekki hefð-
bundna í þeim skilningi
en þó sé yfir henni einhver
krúttlegur jólaandi. „Þegar ég
horfi á skreytinguna þá finnst
mér hún svolítið barnslega jóla-
leg.“ Oddný Magnea segir bangs-
ana hafa orðið til eftir pöntun frá
yngri dóttur sinni, en áður hafði
hún verið að hanna svokallaðar
mömmudúkkur. „Yngri dóttir
mín bað mig um að gera handa
sér bangsa og ekki gat maður sagt
nei við því,“ segir hún og hlær.
Þessa dagana vinnur Oddný
Magnea hörðum höndum að því
að sauma nýja bangsa og dúkkur
fyrir væntanlegan Pop Up jóla-
markað sem haldinn verður 12.
desember. „Flestir bangsarnir
sem ég átti til fóru í gluggann á
GK Reykjavík þannig að núna er
ég að sauma nýjan lager fyrir
jólamarkað sem ég tek þátt í. Mig
grunaði aldrei að ég ætti eftir að
enda á þessari braut þegar ég út-
skrifaðist, en þetta er skemmti-
leg þróun,“ segir Oddný Magnea
en hún hefur einnig vakið mikla
athygli fyrir nýstárlegt konfekt.
Þar eru á ferðinni litlar barnatær
úr súkkulaði. - sm
núna
✽ nýtt og spennandi
þetta
HELST
Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Forsíðumynd
Arnþór Birkisson Útlitshönnun Kristín Agnars-
dóttir Ritstjórn Anna M.Björnsson Auglýsingar
Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridur-
dagny@365.is sími 512 5462 Föstudagur
Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Undanfarna mánuði hafa svokallaðar Pop-Up versl-anir notið mikilla vinsælda. Margir íslenskir hönn-
uðir hafa selt hönnun sína í þessum verslunum en þær
eru starfræktar í aðeins stuttan tíma í senn. Nú geta
íbúar höfuðborgar norðursins tekið gleði sína því í dag
verður opnuð Pop-Up verslun á Akureyri með virkilega
flottum vetrarfötum. Um er að ræða hönnun frá Ein-
veru, Nakta apanum og Birnu en þar verður að finna
flotta boli, kjóla, hlýja angórukjóla, glæsileg partídress
og svalt skótau. Opnunarteiti verður í dag milli klukk-
an 16 og 19 en búðin verður starfrækt þar til 9. janúar.
Það er því engin hætta á því að einhver fari í jólakött-
inn fyrir norðan. - amb
Einvera, Birna Design og Nakti apinn:
Pop-Up verslun á Akureyri
GUINNESS erfinginn og tísku-
drottningin Daphne Guinness mætir
til teitis í New York klædd í nýjustu
hönnun Alexanders McQueen.
augnablikið
Vöruhönnuður kemur með jólaandann í GK:
BARNSLEGUR
JÓLAANDI
Yngri dóttir mín bað mig um að gera
handa sér bangsa og ekki gat maður
sagt nei við því.
Barnslega jólalegt Oddný Magnea
Arnbjörnsdóttir skreytti glugga GK
Reykjavík með fallegum böngsum.
FR
É
TT
A
B
LA
Ð
IÐ
/V
IL
H
E
LM
Flott hönnun Þessi fjaðurkragi er frá Einveru.
ELÍSABET ALMA SVENDSEN STÍLISTI Á föstudaginn ætla ég að
kíkja á opnun í Crymo galleríi og fara á tónleika á Kaffibarnum þar sem vinir mínir verða að
spila. Á laugardaginn er ég að vinna í Rokki og rósum. Um kvöldið ætlum við í vinnunni
að hittast og drekka jólaglögg og borða sushi saman.
Menningar- og afþreyingarmiðillinn
Miðjan virðist fara vel í fólk ef marka
má fyrstu vikuna í lífi hans. „Við
erum kampakát með viðbrögðin.
Þetta hefur verið nett brjálæði en
bara gaman,“ segir Bryndís.
Áhugablaðamenn geta sent Miðj-
unni greinar til birtingar.
„Við birtum ekki hvað sem
er, en ef efnið er vandað
og fellur að umfjöllunarefni Miðjunnar,
þá birtum við það.“ Fjöldi landskunnra
einstaklinga heldur úti bloggi á vefnum.
Þar á meðal drottning matargerðarlistar-
innar, Nanna Rögnvaldardóttir, og Árni
í FM Belfast, sem jafnframt er einn eig-
enda Miðjunnar. Í dag bætist svo í hóp
Miðjubloggara einn vinsælasti matar-
bloggari landsins, Ragnar Freyr Ingvars-
son. - hhs
Kampakát með viðbrögðin
Berjast fyrir Ben
Hópur listamanna hyggst skipu-
leggja tónleika til að mótmæla synj-
un á ótímabundnu dvalarleyfi tón-
listarmannsins Bens Frost. Synjun-
in hefur farið fyrir brjóstið á vinum
hans og velgjörðarmönnum, enda
á hann hér konu og barn og á
sér fastan sess í íslensku tónlistar-
lífi. Eins og gildir um flest önnur
hitamál í dag fer baráttan fram á
Facebook. Á meðal þeirra sem
hafa rætt um mótmæla tónleikana
eru Árni Einarsson hjá Herra Örlygi,
söngkonan Vera Sölvadóttir, mynd-
listarmaðurinn Davíð Örn Halldórs-
son, Gylfi Blöndal, gítarleikari í
Kimono, og Eldar Ástþórsson,
kynningar fulltrúi
Gogo-
yoko.
Allt blóðugt í Crymo
Myndlistarkonan Sólveig Pálsdóttir
heldur sína fyrstu einkasýningu í
Gallerí Crymogeu í kvöld. Sólveig
vakti mikla athygli fyrir altaristöflur
sínar á útskriftarsýningu LHÍ síðast-
liðið vor og hún opnaði svo Gall-
erí Crymogeu á Laugavegi í sumar
ásamt nokkrum samnemendum
sínum. Sýning Sólveigar nefnist
Þetta er blóðugt og stendur yfir til
11. desember. Á efri hæð gall-
erísins verður svo myndlistar-
maðurinn Sigurður Atli með
sýningu sem kallast Værð og
veggjakrot. Á opnuninni spila
Johnny Stronghands og Elín Ey
og hefst hún klukkan 20.