Fréttablaðið - 04.12.2009, Síða 40

Fréttablaðið - 04.12.2009, Síða 40
6 föstudagur 4. desember núna ✽ heimili og hönnun Skömmu eftir að franski fata-hönnuðurinn Yves Saint Laurent lést ákvað sambýlismað- ur hans til fimmtíu ára, Pierre Bergé, að selja hið stórfenglega listasafn og innbú sem þeir áttu saman. Uppboðshaldarinn Christ- ie‘s í London hefur nú haldið þrjú uppboð á hlutum úr innbúinu og það síðasta var haldið nú í nóv- ember. „Ég vildi setja lokapunkt á þetta,“ sagði Bergé sem hélt ein- ungis eftir tveimur hlutum: Mál- verki af Saint-Laurent eftir Andy Warhol og styttu af fugli frá Afr- íku sem var það fyrsta sem þeir keyptu saman. Innbúið er eins konar minnisvarði um fransk- an smekk og inniheldur meðal annars fræg art déco-húsgögn, frönsk 18. aldar húsgögn og verk eftir Picasso og Miró. Ágóðanum af allri sölu af safninu er skipt til helminga, annars vegar til The Pierre Bergé-Yves Saint-Laurent Foundation sem er helguð því að vernda sköpunarverk hönnuðar- ins og hins vegar til góðgerða- samtaka sem Bergé hefur stofnað til þess að styðja við rannsóknir á eyðni. - amb Þ órunn Högnadóttur, förðunar-meistari og útlitshönnuð- ur, er á heimavelli í nýjum sjón- varpsþætti sem hún stjórnar og heitir Heim og saman. Hann er sýndur á miðvikudögum kl. 20.30 á sjónvarpsstöðinni ÍNN. „Ég ætla að leggja áherslu á hversu mikið er hægt að gera fyrir lítið fé. Flest fólk hefur minna milli handanna nú í kreppunni en áður en lang- ar engu að síður að lífga upp á heimili sitt. Þá þarf oft að beita útsjónarsemi. Í þáttunum mun ég sýna hvern- ig breyta megi heildarmynd heim- ilis og einstakra rýma ásamt hús- gögnum með litlum tilkostnaði. Ég fæ fagfólk til mín sem gefur góð ráð sem og stílista.“ Þórunn segir að þátturinn verði því mjög fjölbreyttur. „Ég held að það sé þörf á þætti sem þessum, þar sem lögð er áhersla á útsjón- arsemi og að gefa hlutunum nýtt líf í stað þess að kaupa allt nýtt. Það eru vissulega enn Íslending- ar sem hafa efni á því síðarnefnda og það er smekksatriði hvað fólk vill gera. En verðmætamat fólks hefur breyst í kreppunni,“ segir út- litshönnuðurinn sem hefur langa reynslu í þessum geira enda var hún í fimm ár einn af stjórnend- um lífsstílsþáttarins Innlit/Útlit á Skjá einum. „Í þættinum legg ég þó frekar upp úr því að nýta það sem til er og gera það fallegra. Það vill svo oft til að eigendunum þykir oft vænna um þá hluti sem þeir hafa lagt hönd á plóg við að gera upp eða breyta og líta þá öðrum augum en hina nýju. Það er eins og það myndist einhver tilfinninga- tengsl,“ segir Þórunn og er þotin í ný útlitshönnunarverkefni. Þórunn Högna með nýjan sjónvarpsþátt á ÍNN: ÚTSJÓNARSEMI KEMUR HEIM OG SAMAN Útsjónarsöm Þórunn Högna er byrjuð með nýjan sjónvarpsþátt á ÍNN þar sem áherslan er lögð á nýtni og útsjónarsemi. Íbúð Saint Laurents Hér sést inn í stofuna en þar hangir meðal annars verk eftir Miró. NORDICPHOTOS/AFP Uppboð á munum Yves Saint Laurent rakar inn milljónum INNBÚ MEISTARANS Frá Clinique eru komnar spennandi nýjungar sem vert er að prófa. Annars vegar er Even better-andlitskremið, en það er gætt þeim eiginleikum að jafna húðlitinn. Kremið er létt, rakagefandi og inniheldur sólvörn SPF 20. Krem- ið dregur úr dökkum blettum og örum og kemur í veg fyrir myndun nýrra bletta og litamisfella. Hins vegar er handáburðurinn Deep comfort hand & cuticle cream. Handkremið veitir langvarandi raka og hjálpar til við að bæta ástand húðar og nagla. Til að ná sem bestum árangri er gott að bera kremið á fyrir nóttina, en kremið er tilvalið í ferða- lagið eða til að hafa í veskinu til daglegrar notkunar. Nærandi krem fyrir andlit og hendur FRUMLEGT JÓLAKERTI Þessi fallegi og stæði- legi geirfugl er næstum því of mikið listaverk til þess að kveikja nokkurn tímann í honum. Æðisleg jólagjöf fyrir fagurkera. Fæst á Landnámssýningunni, Aðalstræti. FR É TT A B LA Ð IÐ /V A LL I
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.