Fréttablaðið - 04.12.2009, Síða 42

Fréttablaðið - 04.12.2009, Síða 42
8 föstudagur 4. desember Skólínan kron by kronkron hefur slegið í gegn um allan heim og er nú fáanleg í meira en þrjátíu löndum. Hönnuðir línunnar eru kærustuparið Hugrún Dögg Árnadóttir og Magni Þorsteins- son sem bera þónokkra ábyrgð á tískumótun landans undanfarinn áratug. Viðtal: Hólmfríður H. Sigurðardóttir Ljósmyndir: Valgarður Gíslason H ugrún og Magni e r u ný b ú i n a ð skila af sér fimmtu skólínunni, fyrir veturinn 2010. Um 45 pör eru í hverri línu, sem þýðir að þau hafa hannað í kringum tvö hundruð gullfalleg litrík skópör sem fá ótrúlegustu konur til að velta því fyrir sér hvenær næsta Visa-tímabil hefjist. Eru miklar breytingar á milli lína eða halda þau sömu stefnu? „Við höldum okkar karakter en verðum kannski svolítið fjölbreytt- ari,“ segir Magni. „Eftir mikinn um- hugsunartíma ákváðum við að halda bara okkar striki, enda hefur þetta gengið svo vel hjá okkur. Við látum það bara koma næst sem okkur finnst vera rétt. Ein helsta breytingin er að við verðum með meira af lægri hælum en hingað til og það kemur strax í sumarlínunni 2010.“ TÍSKUBLOGGIÐ VIRKAR Vinsældum kron by kronkron er ekki síst að þakka tískubloggurum um allar trissur, sem margir hverjir hafa farið fögrum orðum um hönn- un þeirra Hugrúnar og Magna. Ein þeirra er Susanna Lau, sem heldur úti tískublogginu Style Bubble og er eitt mest lesna blogg af því tagi í heimi. „Netmiðillinn er rosalega sterkur og er að gera góða hluti fyrir okkur. Hlutirnir gerast hrað- ast þar,“ segir Magni og Hugrún tekur undir það. „Við höfum verið í ótrúlega mörgum viðtölum úti,“ segir hún. „Bæði í tískublöðum en líka á mörgum netsíðum tengdum tískum. Í nokkrar vikur var það bara eitt viðtal á dag. Þetta er búið að vera mjög sérstakt.“ SNIÐ Í HAUS Skór voru svo sem ekki ókunnugir þeim Hugrúnu og Magna áður en þau fóru út í að hanna þá sjálf. Þau hafa rekið skóverslunina Kron í níu ár og reka jafnframt tískuverslun- ina Kronkron. Hugrún segir það hafa verið eðlilegt framhald fyrir þau að fara út í að hanna skó sjálf. „Ég hef alltaf verið mikil skómann- eskja, alveg frá því ég var lítil. Við byrjuðum í skóm og mitt passjón er í skóm. Þannig að þetta var bara tímaspursmál fyrir okkur,“ segir hún. Hugrún lærði fatahönnun í París en Magni er hins vegar hár- greiðslumaður og vinnur sem slík- ur tvo daga vikunnar hjá Rauð- hettu og úlfinum. Hallar ekkert á hann í hönnunarsamkeppninni þeirra á milli? „Nei, nei, það er nefnilega svipuð hugsun á bak við þetta. Við erum að búa til snið í haus alla daga. Þannig að það var ekkert mjög flókið fyrir mig að fara út í þetta,“ segir Magni. Hugrún segir að sér finnist það vanmetið starf að vera hárgreiðslumaður. „Þú færð bara einn haus og á tuttugu mínútum áttu að vera búinn að lesa hausinn. Svo þarftu að gera margskipt snið í þennan eina haus og manneskjan á að bera það næstu þrjá mánuð- ina. Og þetta áttu að gera á tveimur tímum! Þannig að það er mikil þjálfun í huga Magna sem kemur að góðum notun í hönnuninni.“ Gott dæmi um hversu liðtæk- ur Magni er með sníðaskærin er jólagjöf hans til Hugrúnar á þeirra öðrum jólum saman. „Hann gaf mér fullkomlega gerð nærföt, brjóstahaldara með spöngum og allan pakkann. Maðurinn hafði aldrei snert saumavél áður en bjó þetta til handa mér fyrir jólin!“ segir Hugrún og dáist að sínum manni. ENGIN SAMKEPPNI Af því að dæma hvernig þau Hug- rún og Magni tala saman virðist satt best að segja ekki um mikla samkeppni þeirra á milli að ræða, heldur samvinnu í mesta bróð- erni. Sem er kannski eins gott, þar sem þau vinna saman flesta daga og á kvöldin líka. „Við sitjum yfirleitt hérna hvort sínu megin við eldhúsborðið og teiknum,“ lýsir Magni. „Við byrjum yfirleitt í hvort í sínu lagi en förum svo að krassa ofan í hjá hvort öðru þegar á líður. Hausarnir á okkur fúnkera vel saman.“ Hugrún kinkar kolli og heldur áfram. „Við erum ótrú- lega samtaka í öllu. Kannski af því að við erum búin að vera með Kron í níu ár, við erum orðin vön því að vera samstillt og vita hvað við viljum. Stundum höfum við til dæmis kannski val um þúsund liti. Ef okkur yrði stillt upp bak í bak og látin velja hvort fyrir sig mynd- um við líklega velja sama litinn. Við erum mjög samstiga og það er alveg frábært.“ BLINT STEFNUMÓT „Við byrjuðum eiginlega að vinna saman um leið og við byrjuðum saman,“ svarar Magni þegar þau eru spurð hversu lengi þau hafa verið að vinna saman. Hugrún heldur sögunni áfram: „Við fórum á blint stefnumót á laugardags- kvöldi. Það var mjög skemmtilegt en mér fannst hann samt svolítið fullorðinn fyrir mig. En svo rakst ég á hann á Vegamótum í hádeg- inu á mánudeginum, gekk upp að honum á kyssti hann …“ “… og svo flutti hún inn um kvöldið,“ segir Magni. „Og þrem- ur mánuðum síðar byrjuðum við með Kron.“ Þau segja það ákveðna kúnst að vinna svona mikið saman. Álagið sé alltaf mikið og alltaf hundrað verk- efni fram undan sem þau þyrftu að hella sér í frekar en að slaka á. Þau nái hins vegar vel að njóta lífsins á milli stríða og skemmti sér alltaf vel saman í vinnunni. Nema þegar kemur að einhvers konar iðnaðar- mannavinnu, sem búðareigend- ur þurfa oft að taka að sér. „Það er einhvern veginn ekki okkar stund,“ segir Hugrún. „En við björgum því þannig að við ákveðum allt saman. En svo skiljast leiðir og við byrjum sitt á hvorum endanum.“ LITRÍKIR PERSÓNULEIKAR Skórnir frá kron by kronkron eru til í öllum regnbogans litum og oft er sama parið samsett úr tveimur eða þremur litum. Þrátt fyrir lita- dýrðina eru þeir mjög klassískir og sóma sér vel á dömulegustu fótum. „Okkar karakter er svona,“ segir Magni. „Við höfum bæði ofboðslega gaman af litum og áferð og viljum hafa svolítið gaman af þessu.“ Á sama tíma er þeim umhugað um að hönnunin sé tímalaus. „Þannig höfum við alltaf hugsað verslan- ir okkar líka,“ segir Hugrún. „Við reynum að elta ekki ákveðin trend heldur veljum heldur góðar, falleg- ar og klassískar vörur. Það finnst okkur sjarmerandi og það skilar sér beint í okkar hönnun.“ Skórnir eru framleiddir í lítilli skóverksmiðju á Spáni þar sem mikil áhersla er lögð á klassíska framleiðsluhætti. Þar er allt gert ✽ ba k v ið tjö ldi n MEÐ ÁSTRÍÐUNA Í SKÓNUM Uppáhaldsborgin þín: Hugrún: Ætli ég segi ekki París, hún er svo enda- laus. Annars heilla lítil þorp og bæir svo mikið. Magni: París er senni- lega uppáhaldsborgin mín; lyktin, söfnin, mat- armarkaðirnir og fólkið á götunni er engu líkt. Fallegasti staður landsins: Hugrún: Það er Þórsmörk, ekki spurn- ing, þar vil ég helst vera á sumrin. Magni: Þeir eru svo margir fal- legir að erfitt er að gera upp á milli þeirra, Esjan er falleg á sinn hátt. það eru Jökulsárgljúfrin líka. Svo hefur miðbærinn alltaf sinn sjarma. Hvað er skemmtilegast: Hugrún: Það er svo margt, en að vera með Magna og Míó í fríi er örugglega best. Og svo finnst mér voða gott að vera niðri í búð innan um gott fólk. Magni: Mér finnst langskemmti- legast að lifa lífinu lifandi. En leiðinlegast: Hugrún: Að vera með mikið óklárað. Magni: Mér finnst ekki neitt leið- inlegast. Mig dreymir um að: Hugrún: Ó nó, mig dreymir svo margt. Erfitt að taka það fram, en annars finnst mér ég vera í einum góðum draumi. Magni: Verða glaður gamall karl sáttur við lífið og tilveruna. Eftirlætishönnuðurinn: Hugrún: Ég á nú erfitt með að svara þessu en ef ég á að nefna nokkra þá finnst mér góð blanda vera Eley Kishim- oto, Vivienne Westwood og Sonia Rykiel. Litrík fjölskylda Hugrún og Magni hafa alltaf hrifist af klassískri og vandaðri hönnun. Það einkennir líka þeirra eigin skóhönnun, sem rennur ljúflega ofan í skódýrkendur um allan heim. Velgengni foreldranna hefur gert heimsborgara úr syninum Míó, sem hefur ferðast meira en flestir aðrir á sama aldri en hann á þrjátíu flugferðir að baki. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Er til betri gjöf en verkjalaus jól ! Sore No More er fáanlegt í heilsubúðum, apótekum og Fjarðarkaup Sore No More ná ttúrlega hita- og kæligeli ð er áhrifarík t á líkam sverki
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.