Fréttablaðið - 04.12.2009, Page 62

Fréttablaðið - 04.12.2009, Page 62
BAKÞANKAR Brynhildar Björnsdóttur 38 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR ■ Pondus Eftir Frode Øverli ■ Gelgjan Eftir Jerry Scott & Jim Borgman ■ Handan við hornið Eftir Tony Lopes ■ Barnalán Eftir Jerry Scott & Rick Kirkman Við getum forðast svona „nær dauða en lífi“- upplifun með því að staðnæmast við rautt ljós. Rautt ljós, Elsa, þýðir stopp. Hvað ertu búin að fara í marga ökutíma, Elsa? 250 í næstu viku. Og þá kem ég með köku. Hefurðu velt því fyrir þér að kannski eigi bensínknúin ökutæki ekki við þig? Að þú ættir í raun að halda þig frá öllum slíkum tækjum af því að þú stofnar lífi þínu og annarra vegfarenda í hættu í hvert skipti sem þú sest undir stýri? Jæja, beygðu til hægri hér. Allt í lagi! Jæja, á ég að keyra þig í skólann, Palli? Nei, Sara ætlar að fylgja mér. Og ætlarðu að fara svona? Af hverju ekki? Ég er nógu sjálfsöruggur til þess að fara ekki í kleinu ef einhver gerir athugasemdir við ástand mitt. Sagði drengur inn sem vill ekki láta sjást á opinberum vettvangi með foreldr- um sínum.. Það er líka stór munur á því að vera vandræðalegur og að vera niðurlægður. Í hverju á ég að vera í dag? Hvað með gallabuxur og peysu? Hvaða gallabuxur og hvaða peysu? Á ég að fara í sígildu gallabux- unum, venjulegu gallabuxunum, þröngu gallabuxunum, víðu galla- buxunum eða gallabuxunum sem eru með blómum við vasana? Þegar þú kemur heim tökum við til í fataskápnum þínum. Ekki gefast upp, við erum alveg að fara taka ákvörðun. Jæja, Arnaldur, segðu mér, finnst þér þessi kjóll gera mig feita? LYGAPRÓF Mikið er það nú vit- laust! Viltu ekki bara velja sjálf hvaða fötum þú verður í? JÓLAGJÖFIN FÆST Í ELLINGSEN FULLT HÚS JÓLAGJAFA REYKJAVÍK Fiskislóð 1 Sími 580 8500 Opið mán.–fös. 10–18, lau. 10–16 AKUREYRI Tryggvabraut 1–3 Sími 460 3630 Opið mán.–fös. 8–18, lau. 10–16 18.990 kr. 6.900 kr. 24.990 kr. 34.990 kr. Rauður er litur jólanna. Rauð kerti, rauð epli og rauðir vasaklútar voru aðalmálið á jólunum í gamla daga, ef marka má langömmur og langafa. Rauðar skotthúfur skinu í skuggunum og rauðklæddir jólasveinar stukku milli útihúsa í leit að varnarlausum húsdýrum eða dýrmætum mat sem ekki var undir smásjá eigandans akkúrat það augna- blikið. RAUÐ jól eiga samt ekki upp á pall- borðið, að minnsta kosti ekki í jóla- lagatextum. Þar er alltaf beðið um meiri snjó á mjall- og fannhvíta jörð, jólasnjór sindrandi umlykur Snæfinn snjókall sem bíður með sitt steinvölubros eftir að komast í sleðaferð yfir hjarnið sem jóla- stjarnan okkar allra stafar geislum sínum á. Einhvern tíma hljóta rauð jól nú samt að hafa verið æskileg, á snjólausum miðvetri er ekki alveg jafn kalt og auðveldara að komast leiðar sinnar. Kannski er rómantíkin í kringum hvítu jólin fyrst tilkomin í einhvers konar sátta- tilraun við umhverfið, jú víst er betra þegar er snjór á jólunum, þótt það sé bæði kaldara og erfiðara, jú víst! Alltaf allt best á jólunum. RAUÐA trýnið hans Rúdolfs hreindýrs reyndist honum mikið happanef. Af hverju Rúdolf var svona rauðnefjaður fylgdi ekki sögunni, kannski var hann með heymæði eða kannski var honum bara svona kalt á Norðurpólnum þar sem hann norpaði, aleinn og útundan sunnan við hjörðina. En rauða trýnið hans varð til þess að jólasveinninn rataði um heim- inn eina þokukennda jólanótt. Upp frá því var Rúdolf aðalhreindýrið og allir vildu vera vinir hans. RAUTT nef er merki trúðsins, sennilega upprunnið í rauðu og þrútnu nefi drykkju- rútsins Pantalóns í ítalska gamanleikhús- inu Kómedía dell arte. Í dag getum við öll skartað rauðu nefi og sýnt þannig stuðning við gott málefni, börn sem er stundum kalt þó svo að yfirleitt búi þau í heitu löndunum og eru alltaf svöng þó að í kringum þau séu oftast kjöraðstæður til að rækta mat. Einu sinni var öllum börn- um á Íslandi kalt um jólaleytið og mörg þeirra voru svöng. Við megum alveg við því að rifja það upp og gefa af okkur þótt við séum kannski aðeins síður aflögufær en oft áður. Höfum nef fyrir því. Sjá roðann í nefi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.