Fréttablaðið - 04.12.2009, Page 64
40 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR
menning@frettabladid.is
Fyrsta sunnudag í aðventu
hefst nýtt starfsár List-
vinafélags Hallgrímskirkju
sem er nú að hefja sitt 28.
starfsár og sem rekur, að
öðrum ólöstuðum, kraft-
mesta listastarf safnaðar
á landinu. Er fram undan
fjölbreytt starf en aðventan
hefur lengi verið annasöm á
Skólavörðuholtinu.
Um helgina syngur Mótettukór
Hallgrímskirkju en jólatónleikar
hans skipa veglegan sess í ríku-
legu jólatónleikahaldi í Reykjavík.
Á undanförnum árum hefur kórinn
flutt aðventu- og jólatónlist með
einsöngvurum í fremstu röð og
jafnan fengið frábæra dóma fyrir
vandaðan flutning. Að þessu sinni
verður Björn Steinar Sólbergsson
einleikari á tónleikunum og mun
hann leika tvö frönsk orgelverk
tengd jólum á hið glæsilega Klais-
orgel Hallgrímskirkju.
Á efnisskrá kórsins eru verk
eftir innlenda og erlenda höfunda,
bæði vel þekktar perlur svo og
minna þekkt kórverk, m.a. nýleg
jólaverk eftir höfundana Eric Whit-
acre og Ola Gjeilo, grípandi kór-
verk þar sem höfundar leika með
margradda, blæbrigðaríka hljóma,
sem undirstrika tign og fegurð
aðventu- og jólaboðskaparins. Auk
þess mun kórinn syngja íslenska
og erlenda jólasálma, þar á meðal
aðventutónlist eftir Giovanni
Perluigi da Palestrina, ómissandi
jólakórverk eftir Johann Eccard,
Betlehemsstjörnuna eftir Áskel
Jónsson og Jólagjöfina eftir Hörð
Áskelsson. Meðal annarra sálma
sem sungnir verða má nefna Nótt-
in var sú ágæt ein og Guðs kristni
í heimi og er kirkjugestum boðið
að taka undir sönginn. Stjórnandi
er Hörur Áskelsson.
Mótettukórinn hefur frá stofnun
sinni árið 1982, glatt tugþúsundir
Íslendinga á aðventu. Að þessu
sinni verða haldnir tvennir tón-
leikar í Hallgrímskirkju, á laugar-
dag kl. 21 og sunnudag kl. 17. Jóla-
tónlistarhátíð býður að þessu sinni
upp á kyrrðarstundir á aðventu á
fimmtudögum kl. 12. Þar koma
fram Schola cantorum (10. desem-
ber) og Hörður Áskelsson ( 17.
desember) og flytja aðventu- og
jólatónlist, gestakórarnir Karla-
kór Reykjavíkur og Kvennakór
Háskóla Íslands syngja í messum
sunnudaganna 6. og 13. desember
og börn flytja kafla tengda aðventu
og jólum úr bókinni Af hverju afi?
eftir Sigurbjörn Einarsson í leik-
gerð Jóns Hjartarsonar á sunnu-
daginn kl. 11 undir handleiðslu sr.
Bernharðs Guðmundssonar.
Lokatónleikarnir verða á gaml-
árskvöld kl. 17, þar sem trompet-
leikararnir Ásgeir H. Steingríms-
son og Eiríkur Örn Pálsson flytja
hátíðatónlist ásamt Herði Áskels-
syni orgelleikara á síðustu tónleik-
um ársins. pbb@frettablaðið.is
Aðventan í Hallgrímskirkju
TÓNLIST Hörður Áskelsson með sínu fólki á
æfingu í fyrra en hátíðartónleikar Mótettukórsins
eru árlegur viðburður.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/VA
LLI
Ath.
kl. 10 og 17 í Kúlunni eru sýning-
ar á Maríuhænunni, leikriti fyrir
yngstu áhorfendurna. Myndrænt
og fallegt verk fyrir smáfólkið.
Foreldrar eða forráðamenn fylgi
með í Þjóðleikhúsið.
> Ekki missa af
Händeltónleikum í Listasafni
Einars Jónssonar, en í tilefni af
150 ára ártíð Georgs Friedrichs
Händel (1685-1759) verða
haldnir tónleikar í Listasafni
Einars Jónssonar á sunnudag
kl. 17. Á tónleikunum flytja þau
Laufey Sigurðardóttir fiðlu leikari
og Páll Eyjólfsson gítarleikari
meðal annars tvær sónötur
Händels. Tónleikarnir verða í sal
á jarðhæð safnsins. Inngangur
frá höggmyndagarðinum við
Freyjugötu.
Aðventutónleikar Söngsveitarinnar Fílharmón-
íu verða í Langholtskirkju sunnudaginn 6. og
miðvikudaginn 9. desember, klukkan 20 báða
daga, undir yfirskriftinni „Með gleðiraust og
helgum hljóm”. Kórinn fagnar 50 ára afmæli
á þessu starfsári en aðventutónleikarnir hafa
verið fastur liður á jólaföstu um áratuga skeið
og ómissandi meðal unnenda kórsins. Í fyrri
hluta tónleikanna eru flutt íslensk lög frá
ýmsum tímum, bæði minna þekkt og þekkt
jólalög en í síðari hlutanum eru sungin lög
úr ólíkum áttum, meðal annars frá Norður-
löndum, Rússlandi, Katalóníu og Bretlandi.
Frumflutt verður ný tónsmíð eftir stjórnanda
kórsins, Magnús Ragnarsson, Athvarf frá kyni
til kyns, sem er samin við texta úr 90. Davíðs-
sálmi, en lagið er gjöf Magnúsar til kórsins á
hálfrar aldar afmælinu. Kórinn hefur einnig
á fyrri aðventutónleikum frumflutt lög eftir
Magnús, sem vakið hafa verðskuldaða athygli.
Ágúst Ólafsson, baríton, syngur einsöng á
tónleikunum og þá leikur Guðný Einarsdóttir
organisti á orgel.
Miðar eru seldir hjá kórfélögum, í verslun inni
12 Tónum á Skólavörðustíg og við innganginn.
Söngsveitin Fílharmonía á sunnudag
TÓNLIST Ágúst Ólafsson barítón syngur með Fíl-
harmóníunni. MYND/FÍLHARMÓNÍA
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir
umsóknum um
starf prófessors í arkitektúr
Listaháskóli Íslands auglýsir eftir umsóknum um starf
prófessors í arkitektúr við hönnunar- og arkitektúrdeild
skólans. Um er að ræða 50% starfshlutfall. Umsækjandi
skal vera starfandi arkitekt, hafa sterka faglega sýn og búa
yfir yfirgripsmikilli þekkingu á almennri hönnun mannvirkja
og skipulagi byggðar.
Við ráðningu er lagt til grundvallar að umsækjandi hafi
hannað og fengið byggð stór mannvirki sem endurspegla
sjálfstæða listsköpun hans og færni. Umsækjandi skal hafa
látið að sér kveða í almennri umræðu um arkitektúr og
skipulag, þ.m.t. með þátttöku í samkeppnum um byggingar
og skipulag. Gerð er krafa um meistaragráðu í arkitektúr,
eða sambærilega háskólagráðu, og fullgild starfsréttindi.
Umsóknum og meðfylgjandi gögnum skal skila ekki síðar
en mánudaginn 4. janúar næstkomandi til Listaháskóla
Íslands, aðalskrifstofu, Skipholti 1, 105 Reykjavík. Nánari
upplýsingar er að finna á heimasíðu skólans www.lhi.is
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki