Fréttablaðið - 04.12.2009, Side 66
42 4. desember 2009 FÖSTUDAGUR
Bókmenntir ★★★★★
ÞÞ í forheimskunarlandi
Skáldfræðisaga
Pétur Gunnarsson
JPV
Annað bindið af greiningu Péturs Gunnarssonar á
ferli og hugmyndaheimi, persónu og samtíma Þór-
bergs Þórðarsonar var ein þeirra bóka sem beðið var
með nokkurri eftirvæntingu þegar ljóst var að hún
rynni hjá í jólaflóðinu. Þar kom ýmislegt til: fyrra
bindið vakti forvitni um hvernig Pétur leysti úr hinum
stóru mótsögnum í lífi og starfi meistarans þegar
upphafsár hans, sár fátæktin í Reykjavík, mótbyrinn
fyrsti var að baki; heimalagaðar tilraunir hans í form-
byltingu ljóðabókanna og uppreisn engilsins með Bréfi
til Láru, kvennamálin öll og dóttirin unga sem hann
sannlega yfirgaf. Þá voru fram undan stóru málin:
kommúnisminn, sovéttrúin, inngróinn áhugi hans á
hinu andlega, baráttan fyrir esperanto og loks það
mikilvægasta, þróun ÞÞ sem höfundar. Pétri tekst vel
að greina og skýra örlög þess hóps sem ÞÞ tilheyrði
í stríði, baráttunni gegn fasismanum, og svo kalda-
stríðinu með sínu grimmilega uppgjöri. Pétur var rétt
byrjaður þar sem hann skildi við Þórberg, stóri partur-
inn var eftir að fyrra bindinu loknu.
Og viti menn, nýsloppin úr þurrki bókbandsins og
plöstun er bókin komin, datt í fang lesandans á full-
veldisdaginn sjálfan: með skýringargreinum, nafna-
skrám og myndasíðum er verkið 310 síður af yndis-
lega skemmtilegum texta þar sem Pétur með sína
kviku og íhugulu stílgáfu fer í göngutúr með meistara
Þórbergi um árin mikilvægu frá 1934 til dauðadags.
Í förina slást félagar úr Mjólkurfélagi andans, Þóra
Vigfúsdóttir, nokkrir helstu hugsuðir liðinnar aldar,
sagnfræðingar og múgamenn. það er miklu efni safn-
að í þessa fléttu samtímasagna, persónulegra bréfa,
viðtalsefna eftirlifenda og gerir Pétur úr þessu efni
einkar læsilegt og lifandi ferðabréf. Og við förum
víða.
Frásögnin hefst á hótelherbergi í Stokkhólmi þar
sem meistarinn nýr konu sína nivea-kremi á sólbjörtu
sumri. Sagan í þessu síðara bindi er ekki minnst löng
og hreinskilin greining á hjónabandi, ástarsaga með
átökum og fórn.
Pétur kýs að kalla verk sitt skáldfræðisögu. Víst er
svo verseruðum manni sem honum auðvelt að grípa til
verka skörpustu sam-
tímahugsuða svo við
skiljum tíðarandann,
bæði meðan hann er
og eftiráaðhyggja. En
Pétur gerir annað og
meira í leiðinni. Hann
bregður skörpu ljósi á
kjarnann í íslensku int-
elligensíunni og hvernig
vogirnar voru að lokum
stilltar í hinum seig-
drepandi mannjöfnuði
Halldórs Laxness og
Þórbergs. Og í leiðinni
vinnur hann fyrir sitt
leyti, rétt eins og hann
óskaði eftir fyrir nær
þremur áratugum í lít-
illi grein í TMM, hreingerningu í fáförnum vistar-
verum íslenskra kommúnista, sópar úr hornum, skilur
og skýrir tímana, hugsjónir, vonir, kröfur og ósigur.
Verk hans verður því mikilvægur kafli í greiningu á
íslenskri hugmyndasögu.
Sagan rennur eins og reyfari, létt og björt, kröfu-
harka hennar mild því hugurinn sem raðar brotunum
er svo klár, mannskilningurinn svo skír. Pétur hefur
frá upphafi tamið sér ljósan og gegnsæjan stíl sem nú
gerir honum kleift að koma flóknum viðfangsefnum
áfram svo þau renna niður eins og drukkið sé vatn.
Hann er ekkert hættur að nota málið af sama síunga
strákskapnum sem hoppaði inn í íslenskar bókmenntir
í Splúnkunýjum degi: „skiptiborð“ getur að sjálfsögðu
þýtt meira en mubbla í barnaherbergi, þar má skipta
um margt. Það er þessi frjóa og alltaf fallega hugsun
sem Pétur miðlar af svo einstakri smekkvísi.
ÞÞ-bindin tvö munu vonandi verða mörgum
lesendum sami gleðigjafi og þau reyndust mér; það er
þakkarvert að Pétur gaf þessu flókna verki gaum og
að hann skyldi komast svo vel frá þeim smíðatíma sem
hefur klárlega kennt honum margt í nostrinu og gefur
honum nú rúm til að setjast aftur við. Erindisbréfið
er afgreitt og kemur öllum sem vilja aftur á byrjunar-
reitinn í nýjum lestri á verkum meistarans: við
þökkum fyrir okkur.
Páll Baldvin Baldvinsson
Niðurstaða: Ítarleg og skýr, falleg og frábærlega hugsuð
ævi- og hugmyndasaga ofvitans úr Suðursveit – Þórbergs
Þórðarsonar.
Sá leyndi harmleikur tímans
Fátt er betur til þess fallið en hátíðleg tónlist til
að koma manni í jólaskap. Á aðventutónleikum
Sinfóníuhjómsveitar Íslands hljómar hátíðleg
jólatónlist frá ýmsum tímum í fl utningi tveggja
af okkar fremstu söngvurum;
og .
Bach, Handel, Corelli, Mozart, Adolphe Adam
og Sigvaldi Kaldalóns eiga allir sinn skerf á
þessari hátíðlegu og jólalegu efnisskrá. Hljóm-
sveitarstjóri er .
Miðaverð: 3.700/3.300 kr.
Tryggðu þér miða á www.sinfonia.is
eða í síma 545 2500
„Tónlistin
er ekki
uppfinning
mannanna,
heldur gjöf
guðs.“
Marteinn Lúther
Einar H. Kvaran
skáldið og brautryðjandinn
Dagskrá um Einar H. Kvaran rithöfund í Borgarleikhúsinu
sunnudaginn 6. desember kl. 14:30 en þann dag eru 150
ár frá fæðingu Einars. Stutt um erindum um Einar verður
fl étt að saman við upplestur úr verkum hans og fl utt
verður nýtt lag við ljóð Einars. Aðgangur er ókeypis.
Dagskrá
Brautryðjandinn: Ragnar Arnalds, fyrrverandi
ráðherra.
Rithöfundurinn og ljóðskálið: Guðrún Kvaran, prófessor
við HÍ.
Bréf ti l föður: Gunnar Eyjólfsson, leikari.
Blaðamaðurinn: Birgir Guðmundsson, lektor
við HA.
Kaffi hlé
Leikhúsmaðurinn: Sveinn Einarsson, fv.
Þjóðleikhússtjóri.
Leiklestur: Borgarleikhúsið.
Spíriti sti nn: Pétur Pétursson, prófessor
við HÍ.
Jólasólin: Ólöf Arnalds frumfl ytur lag
við ljóð Einars.